Brottrekinn forstjóri kostaði Festi 11,6 milljónir fyrir hvern mánuð sem hann starfaði hjá félaginu í fyrra

Fyrr­ver­andi for­stjóri Festi, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, sem var rek­inn úr starfi í fyrra­sumar, fékk alls 81,2 millj­ónir króna í laun frá félag­inu í fyrra. Hann hætti störfum í lok júli og var kom­inn með nýtt for­stjóra­starf innan við tveimur vikum síðar.

Brottrekinn forstjóri kostaði Festi 11,6 milljónir fyrir hvern mánuð sem hann starfaði hjá félaginu í fyrra
Rekinn Þvi var rang­lega haldið fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í júní í fyrra að Eggert Þór hefði sagt upp störfum. Hið rétta er að hann var rek­inn. Mynd: Festi

Eggert Þór Krist­ó­fers­son und­ir­rit­aði starfs­loka­samn­ing við félagið 2. júní í fyrra og upp­sögn hans tók gildi í lok júlí sama ár. Eggert starf­aði því í sjö mán­uði hjá Festi á árinu 2022. Alls námu launa­greiðslur til hans á því ári 81,2 millj­ónum króna. Það þýðir að Eggert fékk að með­al­tali 11,6 millj­ónir króna fyrir hvern þann mánuð sem hann starf­aði fyrir Festi á síð­asta ári.

Launa­greiðsl­urnar skipt­ast þannig að hann fékk 64,9 millj­ónir króna í laun, 3,7 millj­ónir króna í hlunn­indi og 12,6 millj­ónir króna í árang­urstengd laun.  Inni í þessum launum eru þó starfs­loka­tengdar greiðslur til Eggerts. Eggert hafði verið með 4,9 millj­ónir króna á mán­uði.

Eggert var ekki án atvinnu lengi eftir að hann lauk störfum fyrir Festi. Hann var ráð­inn for­stjóri Land­eldis 13. ágúst 2022, eða tæpum tveimur vikum eftir að upp­sögn hans tók gildi. 

Í stað Eggert var Ásta S. Fjeld­sted ráðin for­stjóri Festis, en hún hafði fram að þeim tíma stýrt einu dótt­ur­fé­lagi sam­stæð­unnar, Krónunni. Hún var ráðin byrjun sept­em­ber 2022, fór í fæð­ing­ar­or­lof frá byrjun nóv­em­ber en mun snúa aftur til starfa í lok mars 2023, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­reikn­ingi. Ásta var fyrsta konan sem er ráðin for­stjóri í skráðu félagi frá því fyrir banka­hrun. Í milli­tíð­inni hefur Magnús Kr. Ingason, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs, sinnt starfi for­stjóra.

Launa­kostn­aður Ástu á árinu 2022 var 52,7 millj­ónir króna, eða um 4,4 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Festi greindi frá því í upp­gjöri fyrir þriðja árs­fjórð­ung árs­ins 2022 að kostn­aður vegna for­stjóra­skipt­anna væri allt í allt 76 millj­ónir króna og að hann hefði allur verið bók­færður á þeim árs­fjórð­ungi. Alls jókst kostn­aður Festis vegna launa lyk­il­stjórn­enda, for­stjóra og fimm fram­kvæmda­stjóra, um 17 pró­sent milli 2021 og 2022.

Auk Krón­unnar eru helstu dótt­ur­fé­lög Festis N1 og Elko. Festi hagn­að­ist um 4,1 millj­arða króna í fyrra, en hafði hagn­ast um fimm millj­arða króna á árinu 2021. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru langstærstu eig­endur Festis. Sam­an­lagt eiga þeir að minnsta kosti 73,23 pró­sent alls hluta­fjár í félag­inu. Stærsti einka­fjár­festir­inn, félag í eigu Hregg­viðs Jóns­sonar, á 1,95 pró­sent eign­ar­hlut.

Nýbúinn að standa af sér mikinn storm

Til­kynn­ingin sem send var til Kaup­hallar Íslands í júní í fyrra, um að Egg­ert sem hafði verið for­stjóri í sjö ár, hefði sagt starfi sínu lausu kom flestum í opna skjöldu. 

Það kom enda á dag­inn nokkru síðar að til­kynn­ingin var röng. Eggert hafði ekki sagt upp störfum, heldur verið rek­inn. 

Ekk­ert hafði bent til þess að Egg­ert, sem verið hafði stjórn­andi hjá Festi og fyr­ir­renn­urum þess félags frá 2011, væri á útleið. Rekstur félags­ins, eins stærsta smá­sala lands­ins, hafði gengið vel og Festi hafði haldið mark­aðsvirði sínu ágæt­lega það sem af er árinu 2022 á meðan að flest félög í Kaup­höll­inni höfðu verið að síga umtals­vert í verði.

Þá voru Egg­ert og félagið til­tölu­lega nýbúin að standa af sér mik­inn storm þegar tveir af stærstu einka­hlut­höfum Festi, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhann­es­son, voru ásak­aðir um að hafa brotið á konu kyn­ferð­is­lega í heitum potti í félagi við annan mann haustið 2020. Þórður Már neydd­ist á end­anum til að segja af sér stjórn­ar­for­mennsku í Festi vegna máls­ins. Það gerð­ist 6. jan­úar 2022.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar kenndi Þórður Már Eggerti um afdrif sín. Í Twitter-­færslu sem birt­ist rúmri viku eftir að greint var frá upp­sögn Eggerts sagði kon­an, Vítalía Lazareva, að Egg­ert hefði hlustað á hana og gefið henni tæki­­færi til að segja hennar hlið þegar Þórður Már „var búinn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórn­­inn­i“. Vítalía sagð­ist eiga Egg­erti mikið að þakka og von­aði að hann vissi það.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Johannes Karlsson skrifaði
    Hvað kostar þetta lífeyrissjóðina?
    0
  • Árni Gunnarsson skrifaði
    Hvað kostar að verða við launaóskum olíubílstjóra? Félagið virðist vera ágætlega aflögufært.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár