Bankastjóri Arion banka með 7,3 milljónir á mánuði og starfsmenn fengu 1,6 milljarða í bónus

Gangi áform Arion banka eftir mun hann greiða hlut­höfum sínum á átt­unda tug millj­arða króna hið minnsta á þremur árum. Heild­ar­laun banka­stjór­ans Bene­dikts Gísla­sonar hækk­uðu um 25 pró­sent milli 2021 og 2022.

Bankastjóri Arion banka með 7,3 milljónir á mánuði og starfsmenn fengu 1,6 milljarða í bónus
Banka­stjóri Benedikt Gíslason hefur verið banka­stjóri Arion banka frá því á árinu 2019. Mynd: Arion banki

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, fékk alls 87,2 millj­ónir króna í laun frá bank­anum í fyrra eða um 7,3 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Heild­ar­laun hans, sem sam­an­standa af launum, árang­urstengdri greiðslu upp á 9,1 milljón króna og mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, hækk­uðu um 25 pró­sent milli ára. Á árinu 2021 fékk Benedikt 69,8 millj­ónir króna greiddar, eða um 5,8 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. 

Þetta má lesa úr nýbirtum árs­reikn­ingi Arion banka. Þar segir að árang­urstengdar greiðslur upp á 47,2 millj­ónir króna, sem dreifð­ust á nokkra núver­andi og fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endur, hafi verið vegna frestaðra greiðslna sem byggðar eru á rekstr­ar­ár­angri árs­ins 2017. 

Til sam­an­burðar má nefna að lág­marks­laun á Íslandi þorra árs í fyrra voru 368 þús­und krónur á mán­uði, eða um 4,4 millj­ónir króna á ári. Mán­að­ar­laun Bene­dikts voru því 66 pró­sent hærri en árs­laun þess sem var á lág­marks­launum hér­lendis á síð­asta ári.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru langstærstu eig­endur Arion banka. Sam­an­lagt eiga þeir beint að minnsta kosti 46,3 pró­sent hlut í bank­anum. Auk þess eiga hlut­deild­ars­kirteini í sjóðum sem fjár­fest hafa í Arion banka. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem félags­menn Eflingar greiða meðal ann­ars í, með 9,77 pró­sent hlut. Þar á eftir kemur Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 9,53 pró­sent hlut og þriðji stærsti eig­and­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem félags­menn í VR greiða meðal ann­ars í, með 9,14 pró­sent eign­ar­hlut. 

Stærstu einka­fjár­fest­arnir eru fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, með 5,20 pró­sent hlut, og Hvalur ehf. sem Kristján Loftsson stýrir, en eign­ar­hlutur þess félags er 2,44 pró­sent. 

Starfsmenn fengu 1,6 milljarða í bónus

Arð­semi eigin fjár Arion bank­a var 13,7 pró­sent á árinu. Með því náð­ist það mark­mið að vera með hærri arð­semi en vegin arð­semi eigin fjár hjá helstu sam­keppn­is­að­ilum bank­ans (Lands­bank­an­um, Íslands­banka og Kviku), sem þýðir að kaup­auki verður greiddur til starfs­manna. Arion banki gjald­færði  1.606 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna í fyrra en útgreiddur kaup­auki á árinu 2021 var 1.580 millj­ónir króna. 

Í kaupauka­kerf­inu, sem kall­ast einnig bónus­kerfi, felst að allt fast­ráðið starfs­­­­­fólk Arion banka fær allt að tíu pró­­­­­sent af föstum árs­­­­­launum sínum á árinu 2022 í kaupauka. 

Þeir stjórn­­­­­endur og það starfs­­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans fá allt að 25 pró­­­­­sent af föstum árs­­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­­­um. Í til­felli Bene­dikts Gísla­son­ar, banka­stjóra Arion banka, þýðir það kaupauka upp á 19,5 millj­ónir króna.

Innan Arion banka er líka í gildi kaup­rétt­­ar­á­ætlun. Hún virkar þannig að starfs­menn geta keypt hluta­bréf í bank­­­­anum fyrir alls í 1,5 millj­ónir króna á ári í fimm ár. Fyrsti nýt­ing­­­­ar­­­­dagur var í febr­úar í fyrra – en þá gátu starfs­menn þó ein­ungis keypt fyrir 600 þús­und krónur – en síð­­­­­­­asti í febr­­­­úar 2026. Allir fast­ráðnir starfs­menn Arion banka sem gátu nýtt sér kaup­rétt­inn þegar honum var komið á snemma árs 2021, alls 628 manns, ákváðu að nýta hann. 

Kaup­verð starfs­­­­manna Arion banka á hlutum í bank­­­­anum er vegið með­­­­al­verð í við­­­­skiptum með hluta­bréf félags­­­­ins tíu við­­­­skipta­daga fyrir samn­ings­dag, sem var 3. febr­­­­úar 2021, eða 95,5 krónur hver hlut­­­­ur. Mark­aðs­gengi Arion banka er 61 pró­sent yfir því gengi í dag.

Mark­aðsvirði Arion banka rauk upp á árinu 2021 og þegar kom að næsta nýt­ing­ar­glugga í byrjun árs í fyrra hafði kaup­verðið hækkað í 181,7 krónur á hlut, sem er umtals­vert yfir núver­andi mark­aðsvirði bank­ans. Þegar síð­ustu kaup­rétt­ar­samn­ingar síð­asta árs voru gerðir var kaup­verðið 170, 9 krónur á hlut.

Fjármunum skóflað til hluthafa ár eftir ár

Það var verð­bólga víðar í Arion banka. Heild­ar­laun stjórn­ar­for­manns bank­ans, Brynj­ólfs Bjarna­sonar, fóru úr 20,3 millj­ónum króna í 23,4 millj­ónir króna. Þau hækk­uðu því um rúm­lega 15 pró­sent á árinu. Brynjólfur fær 1.050 þús­und krónur á mán­uði fyrir að sinna hlut­verki stjórn­ar­for­manns en fær auk þess greiðslur fyrir að sitja í öðrum nefndum bank­ans. Sú seta ýtir heild­ar­launum hans upp í næstum tvær millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. 

Alls hækk­uðu laun stjórn­ar­manna í Arion banka í heild úr 90,9 millj­ónum króna árið 2021 í 101 milljón króna í fyrra, eða um 11,1 pró­sent.

Stjórn­ar­for­maðurBrynjólfur Bjarna­son fær 23,4 millj­ónir króna í laun á ári fyrir stjórn­ar­störf sín hjá Arion banka. Hann situr sem óháður stjórn­ar­maður, líkt og raunar allir stjórn­ar­menn í bank­anum.

Arion banki hagn­að­ist um 25,4 millj­arða króna á síð­asta ári, sem er 3,2 millj­örðum krónum minna en árið áður.  Bankinn ætlar að greiða hlut­höfum sínum út 12,5 millj­arða króna í arð á grund­velli þessa árang­urs í ár auk þess sem til stendur að halda áfram að kaupa eigin bréf af hlut­höfum.

Arion banki, sá eini af stóru bönk­unum þremur sem er ekki að neinu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hefur verið stór­tækur í því að taka fjár­muni úr bank­anum og færa þá til hlut­hafa með arð­greiðslum eða end­ur­kaupum á bréfum á und­an­förnum árum. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­­arða króna ​á árinu 2021. Í fyrra skil­aði Arion banki skilað um 32,3 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­­ur­­kaup á bréf­­um. 

Gangi áform bank­ans um útgreiðslur í ár eftir mun hann að minnsta kosti hafa greitt rúm­lega 76 millj­arða króna til hlut­hafa sinna á þremur árum. Þá á eftir að taka inn þau end­ur­kaup sem munu eiga sér stað á árinu. Það er í sam­ræmi við áform sem Arion banki gerði opin­ber fyrir nokkrum árum, þegar bank­inn sagð­ist ætla að skila nálægt 90 millj­örðum króna til hlut­hafa á fáum árum. 

Langstærsta tekju­lind Arion banka eru vaxta­tekjur, sem bank­inn hefur af útlánum til heim­ila og fyr­ir­tækja lands­ins. Þær uxu um næstum 30  millj­arða króna á síð­asta ári og voru 83,6 millj­arðar króna. Vaxta­munur Arion banka á síð­asta árs­fjórð­ungi 2022 var kom­inn upp í 3,1 pró­sent. 

Bankastjóri Landsbankans hækkar vel

Heild­ar­laun banka­stjóra og lyk­il­stjórn­enda hinna stóru bank­anna, Lands­bank­ans og Íslands­banka, breytt­ust líka í fyrra. Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, var með 61,6 millj­ónir króna í heild­ar­laun á árinu 2022, eða 5,1 milljón króna að með­al­tali á mán­uði. Laun hennar hækk­uðu um 14 pró­sent á milli ára.

Rík­is­bankiLilja Björk Ein­ars­dóttir stýrir Lands­bank­anum.

Alls námu laun og hlunn­indi helstu stjórn­enda Lands­bank­ans og stjórn­ar­manna hans 445,6 millj­ónum króna í fyrra. Það er aðeins minni heild­ar­upp­hæð en bank­inn greiddi til þeirra á árinu 2021 en þá var hann að borga út tvo fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyrir sam­tals um 118 millj­ónir króna. Þegar leið­rétt er fyrir þeirri tölu liggur fyrir að kostn­aður Lands­bank­ans vegna launa og hlunn­inda helstu stjórn­enda, stjórnar og vara­manna í stjórn va 341 milljón króna á árinu 2021, og því óx hann um rúm­lega 30 pró­sent í fyrra þegar greiðsl­urnar til fram­kvæmda­stjór­anna eru und­an­skildar.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka var með 59,8 millj­ónir króna í heild­ar­laun á síð­asta ári. Það var rúmum tveimur millj­ónum krónum meira en hún fékk í föst laun, hlunn­indi og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði á árinu 2021. Þá voru heild­ar­laun hennar hins vegar 68,6 millj­ónir króna vegna þess að Birna fékk sér­staka 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfir­vinnu í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað sum­arið 2021.

Birna fékk enga sér­staka yfir­vinnu­greiðslu vegna söl­unnar á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka á síð­asta ári. Með­al­mán­að­ar­laun Birnu lækk­uðu því á síð­asta ári, úr 5,7 millj­ónum króna árið 2021 í fimm millj­ónir króna á mán­uði. Hún er nú sá banka­stjóri í stórum banka á Íslandi sem er með lægstu launin.

Tveir lyk­il­stjórn­endur Íslands­banka hækk­uðu veru­lega í launum milli ára. Ásmundur Tryggva­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja og fjár­festa, fór úr því að vera með árs­laun upp á 46,7 millj­ónir króna árið 2021 í að vera með 53,7 millj­ónir króna í fyrra, eða næstum 4,5 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. Laun hans hækk­uðu um 16,2 pró­sent á árinu 2022. Jón Guðni Ómarsson, fjár­mála­stjóri Íslands­banka, fór úr 45,1 millj­ónum króna í árs­laun 2021 í 53,5 millj­ónir króna, eða rétt tæp­lega 4,5 millj­ónir króna á mán­uði. Laun hans hækk­uðu um næstum 19 pró­sent á árinu 2022. Inni­falið í launum beggja í fyrra voru starfs­af­mæl­is­greiðslur, sem eru í sam­ræmi við kjara­samn­ing Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SSF).

Alls juk­ust launa­greiðslur til helstu sjö helstu stjórn­enda Íslands­banka um tíu pró­sent í fyrra og voru 357 millj­ónir króna.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Olafur Oddgeirsson skrifaði
    Það er alltaf verið að tala um að hagræða og auka samkeppni til að ná niður verði á vörum og þjónustu. Hvernig væri að hafa útboð um þessi störf og láta bjóða í, sjá hvort það sé ekki til fólk á Íslandi sem gæti gert þetta fyrir ögn minni pening? :-)
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Að hafa skoðun á svona háum launum heitir víst að vera öfundsjúkur. En, ég ætla að segja ykkur að skattarnir af þessari upphæð duga varla fyrir eftirlaunum fyrrum borgarstjóra, alþingismanni, ráðherra, seðlabankastjóra og núna ritstjóra Moggableðilsins.

    Er fólk ekkert að vakna til vitundar um spillinguna hér á landi? Eða erum við svona ljómandi heimsk?
    2
  • Svo er SA fólk að bregða Eflingarfólki um fégræðgi, eða þannig
    2
  • P
    Piotr skrifaði
    The salaries of employees in Iceland are not growing at such a pace. Another proof of inequality.
    0
  • Þorsteinn Einarsson skrifaði
    Þetta fólk hlýtur að vera mjög duglegt
    1
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hvað gerir þessi maður til að verðskulda 7.3 millj á mánuði?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár