Líf í smástund

Stund­ar­skráin 9. til 29. sept­em­ber 2022.

Líf

Hvar: Sam­komu­húsið á Akureyri

Hvenær: 23. og 24. sept­em­ber

Miðaverð: 4.900 kr.

Ein­leik­ur­inn Líf eftir eftir Margréti Sverr­is­dóttur verður sýnt í Sam­komu­hús­inu á Akureyri 23. og 24. sept­em­ber. Leik­stjóri er Jenný Lára Arn­órs­dóttir. Líf fjallar um Sissu Líf sem er tón­list­ar­kona af lífi og sál. Hún hefur óbilandi trú á eigið ágæti en finnst hún ekki alltaf njóta sann­mælis í lista­heim­inum þar sem klíku­skap­ur­inn ræður ríkjum. Eftir eins sum­ars frægð á ung­lings­ár­unum og vin­sælan einsmell­ung dreymir hana um meira. Svo miklu meira. En lífið þvælist fyrir henni og áfram­hald­andi frægð lætur bíða lengi eftir sér. En Sissa gefst ekki upp fyrr en í fulla hnef­ana og loks­ins, einn góðan veð­ur­dag, springur allt út.


Sem á himni

Hvar: Þjóð­leik­húsið, Stóra sviðið

Hvenær: Frum­sýn­ing 16. sept­em­ber

Verð: 8.900–9.900 kr.

Sem á himni er ein­stak­lega heill­andi, splunku­nýr söng­leikur sem leikur á allan til­finn­inga­skal­ann. Ægifögur tón­list, lit­ríkar og skemmti­legar per­sónur og hríf­andi saga hafa nú þegar heillað fjölda áhorf­enda erlendis og nýjar upp­setn­ingar á verk­inu eru vænt­an­legar víða. Verkið ger­ist í litlu sam­fé­lagi á lands­byggð­inni þar sem allir þekkja alla og hver hefur inn­sýn í ann­ars gleði og sorgir. Þegar heims­frægur hljóm­sveit­ar­stjóri, á hátindi fer­ils síns, sest óvænt að í þorp­inu til að draga sig út úr skarkala heims­ins þykir ýmsum til­valið að fá hann til að stýra kirkjukórnum. Þessi maður á sér sárs­auka­þrungin leynd­ar­mál en þegar tón­listin fer að óma af nýjum og áður óþekktum krafti í litla sam­fé­lag­inu byrjar að losna um margt og lífið tekur óvænta stefnu. Hrífandi saga um hin sönnu verð­mæti í líf­inu, gildi vin­átt­unnar og ást­ina.


Bara smástund!

Hvar: Stóra svið Borg­ar­leik­húss­ins

Hvenær: Frum­sýn­ing 23. sept­em­ber kl. 20

Miðaverð: 7.200 kr.

Bara smá­stund! er spreng­hlægi­legur gam­an­leikur um Michel sem sér fram á ljúfan laug­ar­dag í ró og næði og tæki­færi til að hlusta á mjög sjald­gæfa og goð­sagna­kennda djas­s­plötu sem hann hefur fundið á mark­aðnum, en það virð­ist ekki eiga að verða. Natalie, eig­in­kona hans, vill ræða son þeirra, Sebastien, sem vill láta breyta nafni sínu í Fucking Rat, og henni finnst líka tími til kom­inn að horfast í augu við gamlar syndir úr sam­band­inu; hjá­konan er þjökuð af sam­visku­biti og vill ljóstra upp um hlið­ar­spor Michels, fram­kvæmd­irnar á bað­her­berg­inu eru að fara úr bönd­unum, það lekur niður til nágrann­ans og iðn­að­ar­mað­ur­inn reyn­ist ekki allur þar sem hann er séður.

Álfrún Örn­ólfs­dóttir leik­stýrir hér glæsi­legum hópi leik­ara en aðal­hlut­verkið er í höndum Þor­steins Bachmann. 


Habanera – Syngjandi í Salnum

Hvar: Salurinn

Hvenær: 21. sept­em­ber

Miðaverð: 3.920-4.900 kr.

Guðrún Jóhanna Ólafs­dóttir mezzósópran flytur fyrir hlé, ásamt spænska klass­íska gít­ar­leik­ar­anum Francisco Javier Jáuregui, útsetn­ingar fyrir rödd og gítar á sönglög­unum Klem­ent­ínu­dans, Kisa mín og Úr Huldu­ljóðum (Smávinir fagrir) eftir Atla Heimi Sveins­son. Þau kynna einnig áhorf­endum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fyrsta skipti nýjar útsetn­ingar á banda­rískum þjóð­lögum sem John Jacob Niles gerði fræg á síð­ustu öld. Helm­ingnum lýkur með ást­sælli þýð­ingu Þórarins Eldjárn á lagi Violetu Parra, Þökk sé þessu lífi (Gracias a la vida). Eftir hlé flétta þau Guðrún og píanó­leik­ar­inn Sigurður Helgi Oddsson saman ýmsum lögum sem inn­blásin eru af habanera-takt­inum marg­fræga og að sjálf­sögðu hina frægu Habaneru-aríu Carmenar úr sam­nefndri óperu eftir Georges Bizet.


Hafið

Hvar: Lista­safn Íslands, Safna­húsið, Hverf­is­götu 15

Hvenær: Til 23. ágúst 2026.

Miðaverð: Ókeypis aðgangur fyrir börn yngri en 18 ára. Almennt miða­verð 2.000.

Hafið er umlykj­andi á nýrri sýn­ingu á 2. hæð í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu þar sem fjár­sjóður íslenskrar mynd­listar er aðgengi­legur. Gestum gefst nú tæki­færi á að upp­lifa lista­verk sem öll tengj­ast haf­inu og orð­ræð­unni um sjálf­bærni. Hafið hefur veitt mörgum lista­mönnum inn­blástur til list­sköp­unar. Verkin á sýn­ing­unni vísa í ýmsa þætti sem vert er að skoða í sam­hengi við hafið og hvernig sam­band manna við hafið hefur breyst. Auð­lindir hafs­ins, bar­áttan við bár­urnar, efl­ing nátt­úru­vit­undar og sjálf­bærni. Undur hafs­ins eru leið­ar­stef í sýn­ing­unni sem höfðar til fólks á öllum aldri.


Pottþétt 80's/90's partý

Hvar: Sjallinn

Hvenær: 17. sept­em­ber

Miðaverð: 3.500 kr.

Þann 17. sept­em­ber verður 80's 90's dans­veisla í Sjall­anum Akureyri. N3 plötu­snúðar ætla að leika fyrir dansi og ætlar hinm eini sanni Herbert Guðmunds að stíga á svið. Í gegnum tíð­ina hafa böllin hjá N3 mönnum slegið í gegn og má ekki búast við neinu öðru þetta kvöldið, hús­ið­verður  opnað kl. 23.00 og er miða­sala á tix.is.


Á elleftu stundu

Hvar: Þjóð­minja­safnið

Hvenær: 19. sept­em­ber–26. febr­úar 2023

Miðaverð: 2.500 kr. og mið­inn gildir allt árið.

 Á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar stóðu arki­tekta­skól­arnir í Kaup­manna­höfn og Árósum fyrir náms­ferðum til Íslands þar sem ýmis gömul hús voru mæld upp og teiknuð. Þessar ferðir voru skipu­lagðar af kenn­urum og nem­endum skól­anna í nánu sam­starfi við Þjóð­minja­safn Íslands. 

Árið 2017 ánafn­aði svo einn af leið­togum þess­ara leið­angra, danski arki­tekt­inn og fyrr­ver­andi kenn­ari við Arki­tekta­skól­ann í Árósum, Poul Nedergaard Jensen, Þjóð­minja­safni Íslands yfir­grips­mikið safn sitt af teikn­ingum og ljós­myndum úr upp­mæl­ing­ar­ferð­unum. Í þessu safni liggur ómet­an­leg skrán­ing á íslenskri bygg­ing­ar­list sem er að ein­hverju leyti horfin, þó að mörgu hafi tek­ist að bjarga.

Á sýn­ing­unni Á ell­eftu stundu verða teikn­ingar og ljós­myndir úr safni Pouls Nedergaards Jensens sem gerðar voru í þessum upp­mæl­inga­ferðum dönsku arki­tekta­skól­anna. Sýningin er jafn­framt afrakstur rann­sókna Kirsten Simonsen á þessum gögnum en hún hefur gegnt rann­sókn­ar­stöðu tengdu nafni Krist­jáns Eldjárn við Þjóð­minja­safn Íslands und­an­farin tvö ár. Í tengslum við sýn­ing­una mun Þjóð­minja­safnið gefa út sam­nefnt rit eftir Kirsten sem fjallar ítar­lega um þessar ferðir, afrakstur þeirra og áhrif á húsa­friðun og minja­vernd á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár