Katrín Jakobsdóttir „hefur ekkert gert fyrir umhverfið“

Tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir segir for­sæt­is­ráð­herra hafa svikið lof­orð sem hún gaf um aðgerðir í lofts­lags­málum.

Katrín Jakobsdóttir „hefur ekkert gert fyrir umhverfið“
Hefði viljað styðja Katrínu Björk segir að hún hefði gjarnan viljað styðja Katrínu á stóli for­sæt­is­ráð­herra en það sé henni ómögu­legt vegna þess að ráð­herra hafi ekk­ert gert fyrir umhverfið.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra brást trausti Bjarkar Guð­munds­dóttur tón­list­ar­konu með því að því að ganga á bak orða sinna. Katrín hafði að sögn heitið Björk því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. „Hún hefur ekk­ert gert fyrir umhverfið.“

Björk lýsir þessu í við­tali við breska blaðið Guardian, í til­efni af nýrri plötu tón­list­ar­kon­unnar, Fossora. Björk til­einkar tvö lög á plöt­unni móður sinni heit­inni, Hildi Rúnu Hauks­dóttur, sem lést árið 2018. Hildur Rúna var þekkt bar­áttu­kona fyrir umhverfis- og nátt­úru­vernd, mál­stað sem Björk hefur sjálf sann­ar­lega gert að sínum.

Í við­tal­inu er því lýst að árið 2019 hafi Björk tekið saman höndum með sænska umhverf­isaktí­vist­anum Gretu Thunberg og Katrínu for­sæt­is­ráð­herra um að sú síð­ast­nefnda myndi lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Þegar til kom brást Katrín hins vegar trausti Bjarkar, að því er hún segir. „Ég treysti henni, kannski vegna þess að hún er kona. En síðan hélt hún ræð­una og minnt­ist ekki orði á þetta. Ekki orði. Ég varð svo reið! Því ég hafði skipu­lagt þetta um margra mán­aða skeið.“

Von­brigði Bjarkar voru mikil, ekki síst vegna þess að hún vildi svo gjarnan styðja við Katrínu að því er hún segir. „Það er erfitt að vera kona á stóli for­sæt­is­ráð­herra, hún er með alla sveita­dur­g­ana á bak­inu. En hún hefur ekk­ert gert fyrir umhverfið.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (13)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Kristófersson skrifaði
    Það er ekki neyðarástand í loftlagsmálum á Íslandi, og því rangt að lýsa því yfir. Sannleikurinn er sá að Ísland notar hærra hlutfall af umhverfisvænni orku en flestar þjóðir. Hins vegar er neyðarástand í heilbrigðismálum á íslandi. Forsætisráðherra á að vera verkstjóri ríkisstjórnar. Þar sýnir Katrín algera vanhæfni. Alvöru forsætisráðherra væri búinn að kalla saman neyðarfund ríkisstjórnar vegna heilbrigðismála, og ganga þegar í stað frá röð neyðaraðgerða sem fælust í að ráða fimm hundruð nýja starfsmenn erlendis frá, lækna, hjúkrunarfólk og sjúkraliða. Einnig að hefja byggingu á nýjum alvöruspítala, því holan í miðbænum verður aldrei spítali, aðeins rannsóknarstofur. Gáfulegast væri að fá erlenda fjárfesta í þær framkvæmdir, og að nýji spítalinn yrði bæði fyr íslendinga og alþjóðlegur.
    -3
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Katrín hef ekki bara svikið umhverfisverndarsinna heldur alla þjóðina með því að þykjast vera vinstrimaður og vera ábyrg fyrir spilltri hægristjórn
    5
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Katrín er upp á punt, Bjarni ræður.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hún Katrín talar mikið ?

    Muna ekki allir hvað hún sagði um kjör eldri borgara ?

    Ekki orð að marka hana ?
    1
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Hagsmunir stóreignafólks eru einu hagsmunirnir sem Katrín hefur áhuga á að vernda.
    8
  • EÝP
    Erna Ýr Pétursdóttir skrifaði
    Pælið í því að kalla þjóðina sína sveitadurga í The Guardian. Aldeilis að Björk er orðið fín og forfrömuð í útlöndum.
    -9
    • HG
      Hlédís Guðmundsdóttir skrifaði
      Á nú að sýna pempuílega vandlætingu yfir orðavali? - Dæmigert!
      4
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      @Erna Ýr Pétursdóttir.
      Eitthvað er nú brogað við lesskilninginn þinn gæskan.
      Því Björk er ekkert að kalla "þjóðina", sveitadurga.
      Heldur er hún að vísa til yfirslektar hyskisins og pólutíkusana sem hún ver og er stjórnuð af.
      katrín thoroddsen jakopsdóttir er eins og bolta tuðra sem skoppar og hoppar eftir þörfum arðræningja íslensku þjóðarinnar!
      1
    • Gunnar Linda skrifaði
      Hvað hefur Björk gert í umhverfismálum annað en að kannski flokka heima hjá sér ef hún hefur ekki þjónustufólk til þess. Þessi kona er hávær og tekur mikið pláss. Sumir eru ekkert hrifnir af henni hvorki sem listamanni né umhverfissinna eins og hún telur sig vera.
      -5
  • Ingimar Sævarsson skrifaði
    Katrín hefur ekki staðið við neitt af sýnum loforðum.
    11
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Katrín Jakobsdóttir er pólitískur refur og ekkert meir.
    8
    • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
      Hún er nú ekki einu sinni nógu kæn til að geta kallast refur. Hún er taglhnýtingur
      4
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Takk Björk takk , okkur vantar fólk þungarvigtar fólk ávið þig í barátunna gegn auðræðis hiskini.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár