Zelensky Úkraínuforseti:„Takk fyrir Ísland. Dýrð sé Úkraínu“

Volodomyr Zelensky Úkra­ínu­for­seti þakk­aði Íslandi fyrir stuðn­ing­inn í ávarpi sínu til Alþingis. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra hélt aftur af tár­unum. Hún sagð­ist ekki myndu halda hlífi­skyldi yfir neinum þeim sem ætti skilið að lenda á lista yfir fólk sem sæta ætti refsi­að­gerðum þegar hún var spurð um stöðu Aleksand­ers Mos­hen­skys, kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi.

Þakkaði íslendingum Volodmyr Zelensky Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðninginn við úkraínsku þjóðina og sagðist vonast til að hægt yrði að nýta reynslu Íslendinga í orkumálum í uppbyggingarstarfi. Fyrst þyrfti þó að vinna stríðið.

Volodomyr Zelensky for­seti Úkraínu þakk­aði íslenskum stjórn­völdum og íslensku þjóð­inni fyrir stuðn­ing sinn við Úkra­ínu­menn í ávarpi sínu til Alþingis Íslend­inga nú um miðjan dag. Þingmenn voru snortnir yfir ávarpi Zelenskys, sem þeir lýstu sem áhrifa­miklu og sögu­legum við­burði. Samstaða er um að styðja áfram með kröft­ugum hætti við úkra­ínsku þjóð­ina.

Zelensky ávarp­aði þingið og bauð góðan dag á íslensku. Hann minnt­ist tengsla þjóð­anna tveggja sem næðu aftur í aldir. Hann þakk­aði íslenskum stjórn­völdum fyrir stuðn­ing þeirra við refsi­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi en hvatti til að enn yrði bætt við og engin við­skipti yrðu stunduð við ein­ræð­is­ríkið Rússland. Zelensky sagði að vinna þyrfti stríðið gegn Rússum en að því loknu gæti end­ur­upp­bygg­ing Úkraínu haf­ist. Þar gæti reynsla Íslend­inga að upp­bygg­ingu í orku­málum komið að góðum notum. „Ég er þess full­viss að munum fljót­lega geta tek­ist það verk­efni á hendur en fyrst verðum við að verja frelsi okkar, sam­eig­in­legt frelsi. Og við munum gera það. Takk fyrir Ísland. Dýrð sé Úkraínu.“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Stundina að hún hefði þurft að halda aftur af tár­unum þegar hún hlýddi á ávarp Zelenskys. Þórdís Kolbrún sagði enn fremur að eng­inn punktur yrði settur við aðstoð við Úkraínu meðan stríðið geys­aði, bætt yrði áfram í.

SamhugurÁvarp Zelenskys Úkra­ínu­for­seta snerti við gestum í þingsalnum.

Útilokar ekki að vísa sendiherra Rússlands úr landi

Spurð hvort til greina komi að vísa sendi­herra Rúss­lands úr landi sagði Þórdís að hún úti­lok­aði ekk­ert í þeim efnum. „Ég hef líka sagt að við fylgjum okkar vina- og banda­lags­þjóðum í slíkum ákvörð­unum. Litháen hefur með ákveðnum hætti gripið til ákveð­inna ráð­staf­ana en önnur lönd hafa ekki vísað sendi­herr­anum sjálfum úr landi,“ sagði Þórdís. „Diplómat­ísk sam­skipti eru ekki bara mik­il­væg á frið­ar­tímum, þau eru líka mik­il­væg á stríðs­tímum. Sam­skipti okkar við rúss­neska sendi­ráðið eru í algjöru lág­marki. Hann hefur verið kall­aður inn í ráðu­neytið þar sem við höfum getað komið okkar skila­boðum á fram­færi.“

„Þegar kemur að Kína þá vand­ast málið aðeins.“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir
utan­rík­is­ráð­herra

Spurð hvort til greina komi að gera breyt­ingar á sam­skiptum við ríki sem hafi lýst stuðn­ingi við Rússa eða neitað að for­dæma inn­rás­ina, eins og Hvíta-Rússland eða Kína, svar­aði Þórdís Kolbrún því til að þegar væru til staðar ákveðnar við­skipta­þving­anir eða refsi­að­gerðir gagn­vart Hvíta-Rúss­landi. „Þegar kemur að Kína þá vand­ast málið aðeins. Þau hafa ekki lýst yfir stuðn­ingi og talað um að landa­mæri skipti máli en hafa heldur ekki for­dæmt [inn­rás­ina]. Þannig að við sjáum hvað setur en við erum í raun ennþá í fullum sam­skiptum og við­skiptum við Kína.“

Stjórn­völd í Hvíta-Rúss­landi hafa stutt stríðs­rekstur Rússa í Úkraínu með ráðum og dáð. Kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, Aleksander Mos­hen­sky, hefur ítrekað verið nefndur til sög­unnar sem lík­legur til að lenda á lista Evr­ópu­sam­bands­ins yfir þá sem sæta skuli refsi­að­gerðum vegna náins sam­bands síns við for­seta Hvíta-Rúss­lands, Aleksander Lukashenko. Í umfjöllun Stund­ar­innar um mál Mos­hen­skys bar fjöldi við­mæl­enda að ástæða þess að hann hefði hingað til sloppið undan því væri að íslensk stjórn­völd hefðu beitt sérr fyrir hans hönd. Um miðjan apríl greindi Stundin þannig frá því að full­trúar íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefðu hringt hátt í þrjá­tíu sím­töl í full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins vegna máls­ins.

Spurð hvort hún gæti frætt blaða­mann um hvar mál Mos­hen­skys væri statt, þegar kæmi að hugs­an­legri veru hans á lista Evr­ópu­sam­bands­ins um fólk sem beita ætti refsi­að­gerðum, sagð­ist Þórdís Kolbrún ekki geta það. „Ég hef ekki heyrt af því en ég hef sagt að hvorki ég né utan­rík­is­þjón­ustan munum halda hlífi­skyldi yfir nokkrum sem á heima á slíkum lista.“

Stundin / Davíð Þór

Augljóst að einhver hagsmunagæsla hefur átt sér stað

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði ávarp Zelenskys hafa hitt sig beint fyrir og með öðru­vísi hætti en önnur hans ávörp sem hann hefði fram að þessu séð. Spurður hvort hann teldi nóg að gert í aðgerðum Íslands til stuðn­ings við Úkraínu sagði Logi að erfitt væri að svara því. „Aðal­at­riðið er að við gerum allt sem við getum,“ sagði Logi og vísað þar bæði til íslenskra stjórn­valda en eins til íslensks almenn­ings.

Þegar Logi var spurður um afstöðu hans varð­andi stöðu Aleksand­ers Mos­hen­skys sagði hann að ekki hefðu feng­ist nægi­lega góð svör vegna máls­ins. „Það er aug­ljóst mál að ef tugur sam­tala hefur átt sér stað um stöðu hans þýðir það að þar er á ferð­inni ein­hvers konar hags­muna­gæsla, sem er auð­vitað til vansa fyrir íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­þjón­ust­una. Ég á mjög erfitt með að sjá að þessi maður geti sinnt ræð­is­manns­hlut­verki fyrir Ísland.“

Engin breyting orðið á afstöðu Vinstri grænna gagnvart NATO

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lýsti því, spurð hvar Ísland gæti bætt í er varð­aði stuðn­ing sinn við Úkraínu, að Ísland hefði tekið mjög ein­dregna afstöðu með þeim efna­hags­þving­unum sem lagðar hefðu verið á Rússa á alþjóða­vett­vangi og því yrði haldið áfram. „Við höfum sömu­leiðis verið að bæta í varð­andi okkar fram­lög vegna mann­úð­ar­mála og núna síð­ast í gær, líka bara til almennrar efna­hags­upp­bygg­ingar í land­inu.“

Stundin / Davíð Þór
„Við höfum ekki gert neinar breyt­ingar á stefnu okkar“
Katrín Jak­obs­dóttir
Formaður Vinstri grænna, um stefnu gagn­vart Nató

Katrín sagði síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, eftir fund nor­rænna fosæt­is­ráð­herra, að íslensk stjórn­völd myndu gera hvað þau gætu til að greiða fyrir hraðri aðild Finna og Svía að NATÓ, kæmi til þess að löndin tvö sæktu þar um. Flokkur Katrínar, Vinstri græn, er and­vígur aðild Íslands að NATÓ og aðild að hern­að­ar­banda­lögum. Spurð hvort að afstaða hennar, eða flokks­ins, væri í ein­hverju breytt eftir atburði síð­ustu mán­aða kvað Katrín svo ekki vera. „Íslensk stjórn­völd hafa hins vegar ákveðið að ef nið­ur­staða þjóð­þinga Finna og Svía verður sú að þau óski eftir að ger­ast aðilar, þá mun ég styðja þau í því og við munum greiða fyrir því í gegnum þingið. Það er meðal ann­ars vegna ein­dreg­inna óska for­ystu­manna þess­ara þjóða. [...] Við höfum ekki gert neinar breyt­ingar á stefnu okkar og það hefur ekki verið nein krafa um að breyta henni. Við erum auð­vitað í þeirri stöðu að á sínum tíma ákváðum við að fara í þessa rík­is­stjórn og standa með sam­þykktri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Alþingis. Kannski var það umdeild­ara þá en nú, að taka þá ákvörðum,“ sagði Katrín.

Stundin / Davíð Þór

Samhugur þarf líka að ná til uppbyggingarstarfsins

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ávarp­aði Zelensky stutt­lega áður en Úkra­ínu­for­seti flutti tölu sína. Guðni lýsti því að ávarp Zelenzky hefði verið áhrifa­mikið og sterkt.

„Mér þótti vænt um að hann þakk­aði fyrir þann stuðn­ing sem íslensk stjórn­völd hefðu sýnt í verki. Mér þótti líka magnað að á þess­ari örlaga­stundu í lífi úkra­ínsku þjóð­ar­innar, þegar erlendur inn­rás­ar­her fer offorsi, skuli hann samt sem áður horfa von­ar­augum til fram­tíðar. Hann nefndi þá að mikið verk yrði að vinna og gott yrði að geta leitað til okkar. Ég vona að sam­hugur okkar, sem við höfum sýnt núna, nái líka til þess tíma­bils í sögu Úkraínu, þegar upp­bygg­ing­ar­starfið hefst eftir þessa hörmu­legu inn­rás. Þá getum við líka lagt okkar að mörkum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Óráðshjal stíðsæsingamans. Ömurlegt að verða vitni að svona viðurstyggð árið 2022. Hvað eru þessir ræflar okkar að hugsa með því að draga svona ófögnuð inn í Alþingi og á ríkissjónvarp okkar Íslendinga?
    -3
    • GE
      Guðmundur Einarsson skrifaði
      Þú ert ekki mikið fyrir að lesa þér til skilnings, er það? Fyrir það fyrsta, réðust Rússar inn í Úkraínu, ef að þú skyldir ekki hafa fylgst með fréttum. Það eru fleiri fréttamiðlar en Útvarp Saga, Fréttin og Fox News. Svona fasistar eins og þú ættu að halda sig til hlés. Eða flytja annað, eins og ykkur er tamt um að segja öðrum.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár