Mynd: Superwizjer / TVN24

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.

Þetta er verk­efni fyrir örygg­is­þjón­ust­una að fara ofan í, því þarna komu sann­ar­lega fram sjokker­andi upp­lýs­ingar. Það er engan veg­inn hægt  að loka aug­unum fyrir því!”

Þetta sagði vara­for­maður eins af pólsku rík­is­stjórn­ar­flokk­unum í við­tali eftir umræður í pólska þing­inu á mánu­dag.

Vill svörCezary Tomszek aðstoðar varn­ar­mála­ráð­herra Póllands

Þar og víðar hafa Pól­verjar spurt sig að því hvernig einn „manna ein­ræð­is­herr­ans Lúk­asjenkó“ hafi í þrjú ár búið óáreittur í Varsjá og þannig átt auð­velt með að stunda millj­arða við­skipti og aukið við veldi sitt í Belarús, undir vernd ein­ræð­is­herr­ans Aleksand­ers Lúk­asjenkós.

Upphafið að umræð­unni var afhjúpun pólsks frétta­skýr­inga­þáttar í síð­ustu viku. Þar var fjallað um íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, Alex­ander Mos­hen­sky, og tengsl hans við nafna sinn, ein­ræð­is­herr­ann Lúk­asjenkó.

Aðgerðir hratt og örugglega

Stjórn­mála­menn, ráð­herrar og tals­menn Donalds Tursks, for­sæt­is­ráð­herra Póllands, kröfð­ust þess að farið yrði í saumana á því „hvernig þessi maður [Mos­hen­sky] gat sest að og …

Kjósa
80
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.
Úkraína frysti eignir Moshensky-fjölskyldunnar
FréttirÓlígarkinn okkar

Úkraína frysti eignir Mos­hen­sky-fjöl­skyld­unnar

Úkraínsk yfir­völd eru sögð hafa kyrr­sett eigur og fryst banka­reikn­inga fyr­ir­tæk­is­ins Santa Kholod í Kænu­garði. Yfirvöld þar telja hví­trúss­nesk fyr­ir­tæki fjár­magna inn­rás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðn­ings ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyr­ir­tækja­keðju Aleksand­ers Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands, fisk­inn­flytj­anda og ólíg­arka í Hvíta-Rúss­landi. Sagður hafa skráð fyr­ir­tæki á dóttur sína til að verj­ast þving­unum ESB.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár