Saga Úkraínu: Þjóð verður til

Selenskí for­seti Úkraínu er orð­inn þekktur fyrir að vísa í sögu þeirra þjóð­þinga sem hann ávarpar í gegnum hug­búnað hverju sinni. Þannig vís­aði hann í Churchill þegar hann ávarp­aði Breta, orr­ust­una við Verdun þegar hann ávarp­aði Frakka og Berlín­ar­múr­inn þegar hann ávarp­aði Þjóð­verja. Þegar röðin kom að Noregi vís­aði hann óhjá­kvæmi­lega í vík­inga og minnt­ist á hina sam­eig­in­legu vík­inga­sögu. En hver er sögu­skoðun Úkra­ínu­manna?

Saga Úkraínu: Þjóð verður til

Samkvæmt hefð­inni er upp­hafið rakið til Rús­veld­is­ins sem var stofnað af Rúrik árið 865. Kom hann lík­lega frá Roslagen í Svíþjóð en þær slav­nesku þjóðir sem byggðu það sem nú er Norð­vestur-Rússland höfðu beðið hann um að ríkja yfir sér þegar allt var komið í óefni heima fyrir. Rúrik kom sér fyrir í Hólm­garði sem nú er í grennd við Novgorod í Rúss­landi. Arftaki hans, Oleg, eða Helgi upp á nor­rænu, lagði undir sig Kænugarð sem átti eftir að verða mið­punktur hins víð­lenda Rús, á nor­rænu nefnt Garða­ríki. 

Rússar og Úkra­ínu­menn rekja þannig upp­haf sitt á sama stað, en nokkur munur er á sögu­skoðun þeirra. Rússar vilja sem minnst gera úr þætti sænskra vík­inga og telja þá ein­ungis hafa verið sendi­herra Slava en Úkra­ínu­menn vilja mun fremur kenna sig við Svíþjóð og Vestur-Evrópu. 

Rússar og Úkra­ínu­menn rekja þannig upp­haf sitt á sama stað, en nokkur munur er á sögu­skoðun þeirra. …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár