Moshensky er verðmætur milliliður útgerðarinnar

Hags­munir íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja af því að halda Mos­hen­sky utan við refsi­að­gerðir hlaupa á millj­örðum króna. Gott sam­band hans við yfir­völd í Hvíta-Rúss­landi bjó til hjá­leið með íslenskan mak­ríl til Rúss­lands.

Moshensky er verðmætur milliliður útgerðarinnar
Okkar maður Mos­hen­sky Aleksander Mos­hen­sky hefur reynst íslenskum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum verð­mætur milli­liður við Rúss­lands­markað þrátt fyrir við­skipta­bann Rússsa á íslenskan fisk. Fyr­ir­tæki Mos­hen­sky í Hvíta-rúss­landi og Úkraínu hafa und­an­farin sex ár flutt inn mak­ríl í millj­arða­vís, sem síðan er umpakkað og hann sendur til Rúss­lands og sagður hvít-rúss­nesk fram­leiðsla. Fyrir daga við­skipta­banns­ins, hafði Mos­hen­sky lítið sem ekk­ert keypt af mak­ríl frá Íslandi.

Á nokk­urra mán­aða tíma­bili árið 2014 gengu Rússar fram með þeim hætti að alþjóða­sam­fé­lag­inu ofbauð. Fyrst með inn­rás í aust­ur­hluta Úkraínu og inn­limun Krím­skaga en ekki löngu síðar þegar far­þega­flug­vél var skotin niður yfir Úkraínu, með rúss­nesku flug­skeyti. 

Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin brugð­ust við með refsi­að­gerðum gegn Rússum, sem aftur var hert á eftir árás­ina á far­þega­þot­una um mitt árið 2014. Aðgerð­irnar voru sér­tækar og afmark­aðar, beindust lengstum að ferða­frelsi til­tek­inna aðila, fryst­ingu fjár­muna og banni við útflutn­ingi á sér­tækum varn­ingi til Rúss­lands og beindust fyrst og síð­ast að ákveðnum ein­stak­lingum, fjár­munum og fyr­ir­tækjum. 

Ísland skrif­aði undir við­skipta­þving­anir ESB og Banda­ríkj­anna gagn­vart Rússum, eins og Norðmenn. Í því fólst fyrst og fremst tákn­ræn yfir­lýs­ing, enda höfðu aðgerð­irnar engin telj­andi áhrif á íslenska við­skipta­hags­muni. Því var fyrst og fremst um að ræða opin­bera for­dæm­ingu á aðgerðum Rússa, með því að lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerð­irnar og setja nafn Íslands við …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÞ
    Sævar Þórsson skrifaði
    Er ekki málið að fylgja þessari frétt eftir. Þrýsta á ráðamenn og fyrirtæki?
    2
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Rétta aðferðin er að vekja athygli á þessu trixi og þá má byrja á að spyrja bandaríska sendiherra á hans mat á þessari bakleið.
    1
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Er einhver sem heldur að Útrásarvíkingarnir og EXIT séu horfnir?
    2
  • SÞ
    Sigurjón Þórðarson skrifaði
    Hefur einhver áhrifamaður í Vg tjáð sig um málið?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár