„Það er alls ekki innrás,“ segir sendiherra Rússlands á Íslandi

Sendi­herra Rússa segir nasísk öfl vera í Úkraínu og segir að sprengi­árásir og straumur rúss­neskra her­deilda inn í Úkraínu sé ekki inn­rás.

„Það er alls ekki innrás,“ segir sendiherra Rússlands á Íslandi
Mik­haíl V. Noskov Sendi­herra Rúss­lands á Íslandi end­ur­tekur skýr­ingar Vla­dimirs Pútíns og segir hern­að­ar­að­gerðir Rússa í Úkraínu ekki vera inn­rás. Mynd: Skjáskot / RÚV

„Það er alls ekki inn­rás á yfir­ráða­svæði Úkraínu,“ segir sendi­herra Rúss­lands gagn­vart Íslandi, Mik­haíl V. Noskov, um aðgerðir Rússa í Úkraínu sem Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti kall­aði frið­ar­gæslu, eftir að hafa þrá­fald­lega neitað síð­ustu vikur að liðs­söfn­uður við landa­mæri Úkraínu væri vegna fyr­ir­hug­aðrar inn­rásar. 

Spreng­ingar hafa dunið víða um Úkraínu í dag og hafa her­sveitir Rússa streymt inn í landið úr suðri, austri og frá Hvíta-Rúss­landi í norðri, þar sem Pútín sagði áður að þær væru við her­æf­ingar en ekki vegna áforma um inn­rás.

Sendi­herr­ann segir í sam­tali við Rík­is­út­varpið í kvöld að ekki sé um inn­rás að ræða og að um sé að ræða við­brögð við sér­stökum aðstæðum rúss­neskra borg­ara. Í síð­ustu viku hóf Pútín að saka Úkraínu um þjóð­ar­morð gegn Rússum í Donbass, í aust­ur­hluta lands­ins.

„Þið vitið hvaða atburðir leiddu til þess­arar ákvörð­unar Pútíns for­seta. Hann vís­aði til sér­stakra aðstæðna rúss­neskra borg­ara þann 22. febr­úar. Þar sagði hann frá áætl­unum vegna aðstæðna í Úkraínu og fjall­aði ítar­lega um hvað gerst hefði í Úkraínu síð­ast­liðin átta ár.“

Yfir­lýs­ing Rússa um að ekki sé inn­rás, hefur verið end­ur­ómuð af Kín­verjum.

Óhræddur við refsiaðgerðir

Sendi­herra Rússa ótt­ast ekki refsi­að­gerðir. „Við höfum lifað við refsi­að­gerðir, ekki aðeins frá 2014, heldur einnig á Sov­ét­tím­anum, á átt­unda ára­tugnum, á níunda ára­tugnum og efna­hagur okkar hefur aðlag­ast vel refsi­að­gerðum síð­ustu átta ára. Þessar refsi­að­gerðir sem nú eru framundan gætu vissu­lega haft áhrif á rúss­neskan efna­hag, en ég bendi á að þær hafa meiri áhrif á ríkin sem beita þeim.“

Segir „nasísk öfl“ vera í Úkraínu

Noskov sendi­herra ræddi einnig við fréttir Stöðvar 2. Þar end­ur­tók hann ásak­anir Pútín, sem sagði Úkraínu vera nas­ista­ríki og að Rússar vildu hreinsa nas­is­mann úr land­inu. Spurður hvort hann tryði því að aðrir myndu leggja trúnað á þessar skýr­ingar, en for­seti Úkraínu er Gyðingur, sagði hann: „Það er undir ykkur komið að ákveða það. En við höfum stað­reynd­irnar og fyrir okkur er það alger­lega skýrt að það eru nasísk öfl í Úkraínu. Við sjáum að rík­is­stjórn Úkraínu og úkra­ínsk yfir­völd gera ekk­ert til að bæla niður þessi nasísku öfl.“

Í dag mót­mæltu hund­ruðir „ofbeldi og yfir­gangi“ Rússa gegn Úkraínu fyrir framan sendi­ráð þeirra í Túngötu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Með sömu rökum þá gerði Hitler ekki innrás í Sovétríkin. Rússar hafa nú eignast sinn Hitler.
    2
  • GH
    Guðmundur Harðarson skrifaði
    Það er kannski við hæfi að reka sendiherrann aftur til Rússlands með þeim skilaboðum að það sé alls ekki verið að vísa honum heim, heldur sé hann bara að fara í sumarfrí.
    2
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Auðvitað er þetta ekkert annað en innrás... hvernig sem á það er litið. Hins vegar eru nasísk öfl í Úkraínu þessi dægrin, öfl sem ,,frjálsum" fjölmiðlum ,,siðaðra" vesturvelda er fullkunnugt um:

    https://www. thetimes.co. uk/article/neo-nazis-give-kiev-a-last-line-of-defence-in-the-east-0csqncjv3hd
    1
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      https://en.wikipedia.org/wiki/Neo-Nazism
      Þú veist líklega að Zelensky er gyðingur ásamt fleirum í stjórninni.

      Ég held að Pútín sé minnst hræddur við nato og öryggi rússlands.
      Hann er hræddur við lýðræði.Það er farið að þrengja að honum.
      Þegar Belarus varð lýðræðinu næstum að bráð ákvað hann að verja sig.
      Því spilltir einræðisherrar vita sem er að ef lýðræðið sigrar ,þá þurfa þeir líklega að dvelja á svipuðum stað og Alexei Navalny það sem eftir er.
      2
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Veit allt um það að Úkraínuforseti sé Gyðingur hr. Unnsteinn. Það breytir samt sem áður engu varðandi það að þarna eru nasísk öfl á ferð sem hann einfaldlega ræður ekki við:

      http://www. informationclearinghouse. info/56947.htm
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      Það er einfaldlega ekki hægt að réttlæta þessa innrás,Punktur.
      1
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Enda er engin að því hér hr. Unnsteinn. Kv
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      Það er gott að lesa.Þegar 45 milljóna manna þjóð er að stíga sín fyrstu skref í lýðræði þá á hún þetta ekki skilið.
      0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ef einhver minnir á nasista þá er það einræðisherrann Putin
    1
    • Borgþór Jónsson skrifaði
      Það er merkileg skilgreining ykkar Kratanna á Nasisma.
      Í Úkrainu ganga menn um í löngum bunum með hakakrossa um öxl og drepa fólk ,banna stjórnmálaflokka og hneppa stjórnarandstöðuna í fangelsi ,en samkvæmt ykkur Krötunumm eru þetta lýðræðissinnar.
      En ef einhver syngur Ísland öögrum skorið er hann Nasisti.

      Enginn andaði út orði meðan lýðræðissinnarnir með hakakrossana sláturðu 14.000 manns á Donbasssvæðinu.
      Kannski er ekki rétt að segja að menn hafi ekki andað út orði.
      Það fóru halarófur stjórnmálamanna héðan til að lýsa stuðningi við athæfið.
      Nú þegar það er verið að reyna að stoppa þetta af míga allir niðurúr af vandlætingu.
      0
    • Unnsteinn Óskar Guðmundsson skrifaði
      https://en.wikipedia.org/wiki/Casualties_of_the_Russo-Ukrainian_War
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár