Mótmæltu „ofbeldi og yfirgangi“ við rússneska sendiráðið

Hundruð manna mót­mæltu inn­rás Rússa í Úkraínu við sendi­ráðið í Túngötu.

Mótmæltu „ofbeldi og yfirgangi“ við rússneska sendiráðið

Hundruð manna mót­mæltu í dag inn­rás Rússa í Úkraínu við sendi­ráð lands­ins við Tungötu í mið­borg Reykja­víkur.

Andrei Mens­hen­in, rúss­nesk­ur blaða­maður, skipu­lagði mót­mælin. Sagði hann í sam­tali við mbl.is marga Rússa vera and­snúna inn­rásinni og hafa sett svarta prófíl­mynd á sam­fé­lags­miðlum í dag.

Einn við­staddra var Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar. „Allir voru daprir eftir það sem gerð­ist og er að ger­ast. Bar­átt­unni gegn ofbeldi og yfir­gangi lýkur aldrei,“ sagði hann á Facebook.

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, sagð­ist vilja sýna sam­stöðu með úkra­ínsku þjóð­inni. „Það nátt­úru­lega gengur ekki að það sé vaðið yfir hana með ofbeldi og yfir­gangi,“ sagði hann.

Andrés Ingi JónssonÞing­maður Pírata var við­staddur mót­mælin.Davíð Þór

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár