Svona bregðast Vesturlönd við innrás Rússa

Banda­ríkin og banda­menn leggja hömlur á starf­semi rúss­neskra banka og útflutn­ing til Rúss­lands.

Biden í kvöld Biden boðaði harðari refsiaðgerðir gegn Rússum og lofaði að Nató myndi fylgja eftir ákvæði 5. um að árás á eitt landi væri metið árás á öll.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti kynnti rétt í þessu fjöl­þættar refsi­að­gerðir gegn Rúss­landi og rúss­neskum hags­munum. Hann sagði meira en helm­ing alls heims­hag­kerf­is­ins standa saman gegn Rúss­landi Pútíns.

Ríkin sem standa að refsi­að­gerð­unum eru, auk Banda­ríkj­anna og helstu Evr­ópu­ríkja, meðal ann­ars Kanada, Nýja-Sjáland og Japan. Hvorki Indland né Kína tekur þátt.

„Við munum tak­marka getu Rússa til að eiga við­skipti í doll­urum, evrum, pundum og jenum. Til að vera hluti af alþjóða­hag­kerf­inu. Við hindrum getu þeirra til að stækka og fjár­magna rúss­neska her­inn. Við ætlum að trufla getu þeirra til að keppa í hátækni­legu umhverfi 21. aldar. Við höfum nú þegar séð áhrif aðgerða okkar á rúss­neskt hag­kerfi og gjald­mið­il­inn rúbluna, sem náði sinni veik­ustu stöðu frá upp­hafi fyrr í dag. Hluta­bréfa­mark­aður Rússa hrundi í dag,“ sagði hann.

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Moskvu féll um 35% í dag, en með­al­tals­fall á heims­vísu var 5%. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SHE
    Sigurður H. Einarsson skrifaði
    Á svo ekki að hætta að bera fram rúsneskt Vodka í ráðherraveislum eins og Thatcher gerði?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár