Verður daglega fyrir morðhótunum á netinu

Ung íslensk kona slapp naum­lega undan manni sem réðst að henni á götu úti um hábjartan dag í Istanbúl fyrir nokkrum vikum. Maðurinn var vopn­aður hnífi. Konan, sem er fædd í Sómalíu, er sam­fé­lag­miðla­stjarna þar og birtir mynd­bönd og fyr­ir­lestra undir heit­inu MID SHOW. Hún verður dag­lega fyrir morð­hót­unum á sam­fé­lags­miðlum vegna bar­áttu sinnar fyrir rétt­læti til handa stúlkum og konum í fæð­ing­ar­landi hennar og víðar.

Verður daglega fyrir morðhótunum á netinu
Najmo Fiyasko Finn­boga­dóttir við sum­ar­hús fjöl­skyld­unnar á Íslandi

„Ég var á göngu­stíg sem er með­fram stórri umferð­ar­götu og þegar ég kem að gatna­mót­unum sé ég mann sem hleypur hratt í átt til mín. Ég hélt í fyrstu að hann væri bara úti að hlaupa en það setti samt að mér ugg því hann virt­ist vera reiður og hann starði á mig. Svo kom hann skyndi­lega alveg upp að and­lit­inu á mér og spurði hvort ég væri konan sem stýrði MID SHOW. Og hann tók upp vasa­hníf.“

Svona lýsir Najmo Fiyasko Finn­boga­dóttir, 23 ára háskóla­nemi og akti­visti, atvik­inu í Istanbúl í lok sept­em­ber, en hún fór til Tyrk­lands frá Íslandi í ágúst eftir að hafa verið hér í sum­ar­leyfi en hún er í háskóla­námi í London.
Najmo hafði byrjað ferð­ina í Ankara þar sem systir hennar býr en hún eign­að­ist nýverið dóttur og Najmo vildi sjá litlu frænku sína og verja tíma með systur sinni. Hún nýtti fríið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár