Ríkissaksóknarinn rekur hvernig 323 milljónir frá Samherja runnu til namibísks ráðamanns og meðreiðarsveina hans

Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu, Martha Imalwa, hefur lagt fram gögn fyrir dóm­stólum þar sem sýna hvernig pen­ingar runnu frá Samherja til namibískra ráða­manna í gegnum hina svoköll­uðu Namgomar-fléttu.

Ríkissaksóknarinn rekur hvernig 323  milljónir frá Samherja runnu til namibísks ráðamanns og meðreiðarsveina hans
Forsíða The Namibian í gærÁ for­síðu namibíska blaðs­ins The Namibian í gær var fjallað um það hvernig eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Namgomar Pesca, Ricardo Gustavo, deildi pen­ing­unum sem Samherji greiddi til félags­ins.

Rík­is­sak­sókn­ar­inn í Namibíu, Martha Imalwa, hefur lagt fram gögn fyrir dómi þar í landi sem sýna hvernig tæp­lega 323 millj­ónir íslenskra króna runnu frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja í gegnum fyr­ir­tækið Namgomar Pesca og til eig­anda þess, Ricardo Gustavo, og ann­arra félaga. Þetta telur Imalwa geta nýst til að sýna fram á að rök séu fyrir því að félagið Namgomar Pesca geti verið dæmt fyrir fjár­svik og pen­inga­þvætti vegna aðkomu þess að Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. Á þessum for­sendum vill hún hald­leggja eignir félags­ins. Þetta kemur fram í gögnum sem rík­is­sak­sókn­ar­inn hefur lagt fram fyrir dómi þar í landi og fjalla namibískir fjöl­miðlar um málið í gær og í dag. 

Sam­herj­a­málið snýst um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár