Covid-smit greindist hjá starfsmanni farsóttarhótels

Starfs­mað­ur­inn smit­að­ist lík­lega ekki við vinnu sína. Gylfi Þór Þor­steins­son, for­stöðu­mað­ur far­sótt­ar­húsa, seg­ir að heil vakt þurfi að fara í sótt­kví. Hann und­ir­býr flutn­ing fólks af hót­el­inu í önn­ur far­sótt­ar­hús.

Covid-smit greindist hjá starfsmanni farsóttarhótels
Segir að málum verði reddað Gylfi Þór segir að kannski hafi bara verið um tímaspursmál að ræða hvenær upp kæmi smit hjá starfsmanni.

Starfsmaður í farsóttarhúsi Rauða krossins sem rekið er á Fosshóteli Barón greindist með Covid-19 um hádegisbil í dag. Sex aðrir starfsmenn eru komnir í sóttkví vegna þessa og starfsemi farsóttarhússins í uppnámi. Er þetta í fyrsta skipti sem starfsmaður farsóttarhúsanna smitast frá því þau voru opnuð.

Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsanna, segir í samtali við Stundina að verið sé að bregðast við tíðindunum. „Það kom upp smit hjá hótelstarfsmanni sem hefur unnið í móttöku á einu af hótelunum okkar. Það smit virðist hafa komið utan frá, það er ekki af farsóttarhótelinu, en óneitanlega setur þetta eitthvað af okkar starfsfólki í sóttkví. Ég er akkúrat þessa stundina að vinna aðgerðaráætlun um hvað við gerum og hvernig.“

„Við höfum fengið til okkar 900 Covid sýkta þannig að það var nú kannski bara tímaspursmál hvenær þetta myndi gerast“

Gylfi segir að smit starfsmannsins snerti samstarfsfók hans sem nú er komið í sóttkví. Sömuleiðis þurfa fjölskyldumeðlimir í það minnsta einhverra starfsmannanna einnig að fara í sóttkví. „Við fyrstu sýn virðist þetta snerta einhverja sex starfsmenn, sem eru í raun heil vakt hjá okkur. Þetta mun hafa töluverð áhrif á þetta hótel sem um ræðir og við erum að vinna að því með rakningarteyminu að því að leysa þetta vandamál með góðum hætti. Það er ómögulegt að segja hversu marga aðra, fjölskyldur starfsmanna til að mynda, þetta snertir.“

Að sögn Gylfa er þetta í fyrsta skipti sem starfsmaður farsóttarhúss hefur greinst með Covid-19 kórónaveiruna. „Við höfum fengið til okkar 900 Covid sýkta þannig að það var nú kannski bara tímaspursmál hvenær þetta myndi gerast.“

Smitið gæti kallað á að fleira starfsfólk verði fengið til starfa við farsóttarhúsin, að sögn Gylfa. Það er þó ekki ljóst á þessari stundu. „Þetta gæti líka kallað á að við þurfum að færa þá gesti sem eru á þessu hóteli eitthvað annað, ég er að vinna í því. Við reddum þessu.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár