RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum

RÚV má fækka útvarps­stöðvum verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt á að RÚV dragi úr vægi sínu á aug­lýs­inga­mark­aði um 10 pró­sent.

RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
Efsta­leitið Bygging RÚV

Nýtt frum­varp menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neyt­is­ins um RÚV hefur verið birt í sam­ráðs­gátt, en sam­kvæmt frum­varp­inu verður RÚV heim­ilt að fækka útvarps­stöðvum kjósi það svo.

Segir í nán­ari skýr­ingum að felldar verði brott úr 3. grein lag­anna kvaðir um lág­marks­fjölda útvarps- og sjón­varps­stöðva sem Rík­is­út­varp­inu er skylt að dreifa um allt land. Með breyt­ing­unni verður stjórn RÚV heim­ilt að fækka útvarps­stöðvum. Ekki er talið nauð­syn­legt eða æski­legt að fjöldi rása Rík­is­út­varps­ins sé sér­stak­lega til­greindur í lögum eins og þar segir.

Fjallað hefur verið um aðrar breyt­ingar sem finna má í frum­varp­inu, svo sem að tekjur RÚV af útvarps­gjaldi verði skertar um fjár­hæð sem nemur 10% af aug­lýs­inga­tekjum RÚV á ári hverju. Er þetta gert til þess að minnka umsvif RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði.

Hægt er að rita umsagnir við frum­varpið á vef sam­ráðs­gátt­ar­innar, en engin slík hefur borist þegar þetta er skrifað.

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár