Úrvinnslusjóður rannsakaður

Hafa ekki skilað árs­reikn­ingi síðan 2016. Stjórn sjóðs­ins set­inn að meiri­hluta af hags­muna­að­ilum. Sjóð­ur­inn veltir millj­örðum króna árlega.

Úrvinnslusjóður rannsakaður
Endastöð íslenska plast­s­ins? Ráðherra umhverfis- og orku­mála í Malasíu, Yeo Bee Yin, heldur á plast­rusli frá vest­rænum löndum. Líkur eru á því að plast sem Íslend­ingar telja sig end­ur­vinna endi á haugum í Malasíu. Mynd: Mohd RASFAN / AFP

Þann 31. maí síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi Íslands að Rík­is­end­ur­skoðun skyldi gera rann­sókn á starf­semi Úrvinnslu­sjóðs. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram beiðn­ina fyrir Alþingi og var hún sam­þykkt með 57 atkvæðum. Rann­sókn­ar­beiðnin er ítar­leg og er meðal ann­ars kraf­ist svara um hvers vegna rík­is­stofnun, sem árlega veltir millj­örðum króna, hafi ekki skilað árs­skýrslum í yfir fimm ár. 

Í skýrslu­beiðn­inni kemur fram að meðal ann­ars eigi að fjalla um eft­ir­far­andi: „Árs­skýrslur sjóðs­ins síð­ustu fimm ár, hvar megi nálg­ast þær og hvers vegna þær hafi ekki verið gerðar opin­berar, hvaða reglur gildi um greiðslur úr sjóðnum og hvaða annað mat fari fram við ákvörðun um hvert greiða skuli úr sjóðnum?“

For­svars­menn Úrvinnslu­sjóðs mættu á fund umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis þann 21. maí. Tíu dögum seinna var farið fram á beiðn­ina um rann­sókn á sjóðnum.

Jón Gunn­ars­sonÞing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði fram skýrslu­beiðni um rann­sókn á Úrvinnslu­sjóði á Alþingi, sem sam­þykkt var af öllum …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár