Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli Jóns Baldvins

Hér­aðs­dómur mun taka mál Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar til efn­is­með­ferðar. Mál­flutn­ingi hans um að meint kyn­ferð­is­leg áreitni hans sé ekki refsi­verð sam­kvæmt spænskum lögum er hafnað.

Landsréttur fellir úr gildi frávísun í máli Jóns Baldvins
Jón Baldvin Hanni­bals­son Frávísun í máli ráð­herr­ans fyrr­ver­andi hefur verið felld úr gildi. Mynd: pressphotos.biz

Hér­aðs­dómur mun taka mál Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, til efn­is­með­ferðar. Lands­réttur felldi á föstu­dag úr gildi frá­vís­unar­úr­skurð hér­aðs­dóms í mál­inu.

Jóni Baldvini er gefið að sök að hafa laug­ar­dag­inn 16. júní 2018 á heim­ili sínu í Salobreña á Spáni strokið utan­klæða rass Carmenar, sem var gestur á heim­ili hans. Greindi Stundin í upp­hafi árs 2019 frá fram­burði hennar og fleiri kvenna um kyn­ferð­is­lega áreitni. Krefur hún Jón Baldvin um eina milljón í miska­bætur, en hann krafð­ist frá­vís­unar og málsvarna­launa úr rík­is­sjóði.

Hér­aðs­dómur vís­aði mál­inu frá í byrjun árs. Í munn­legum mál­flutn­ingi hafði Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, verj­andi Jóns Baldvins, talið þýð­ingu á spænskri laga­grein gefa það í skyn að ákvæðið ætti ekki við um þann verknað sem Jón Baldvin er sak­aður um. Ekki lægi fyrir „gild yfir­lýs­ing frá þar til bærum spænskum yfir­völdum“ um að hátt­semin væri refsi­verð sam­kvæmt spænskum lögum, en refsa skal íslenskum rík­is­borg­ara eftir íslenskum hegn­ing­ar­lögum fyrir verknað fram­inn erlendis ef brotið er framið á stað sem refsi­vald ann­ars ríkis nær til að þjóða­rétti og var þá jafn­framt refsi­vert eftir lögum þess ríkis. Hér­aðs­sak­sókn­ari kærði frá­vís­unar­úr­skurð­inn til Lands­réttar.

Þrír dóm­arar Lands­réttar úrskurð­uðu í mál­inu á föstu­dag og felldu frá­vísun hér­aðs­dóms úr gildi. „Þótt íslensk þýð­ing hins spænska laga­á­kvæðis sem liggur fyrir í mál­inu sé ekki hnökra­laus verður af orða­lagi þess ráðið að það taki til kyn­ferð­is­legrar áreitni í skiln­ingi 1. mgr. 199. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, sem sam­kvæmt lög­skýr­ing­ar­gögnum felst meðal ann­ars í hvers konar snert­ingu á lík­ama ann­arrar mann­eskju sem er and­stæð góðum siðum og sam­skipta­háttum,“ segir í úrskurði Lands­réttar.

Málið fer því aftur til hér­aðs­dóms, sem tekur málið til efn­is­með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár