Umhverfisfyrirtæki ársins dreifði plastmengaðri moltu í Krýsuvík: „Öllum geta orðið á mistök“

Samtök atvinnu­lífs­ins útnefndu Terra „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“. Terra dreifði mörgum tonnum af plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík í sumar. Van­kunn­átta á eigin ferlum var ástæða þess. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir Terra hafa gefið sér grein­ar­góðar skýr­ingar.

Umhverfisfyrirtæki ársins dreifði plastmengaðri moltu í Krýsuvík: „Öllum geta orðið á mistök“
Finnst skýr­ing­arnar grein­ar­góðar Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni, fram­kvæmda­stjóra SA, þykja skýr­ingar Terra á því að fyr­ir­tækið hafi dreift 1.500 rúmmetrum af plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík grein­ar­góðar. Mynd: RÚV

Sorp­hirðu- og end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækið Terra, sem dreifði 1.500 rúmmetrum af plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík í sumar, var útnefnt „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ af Samtökum atvinn­lífs­ins um miðjan þennan mánuð. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að öllum geti orðið á mis­tök en eftir sem áður standi sú útnefn­ing.

Terra vann að því í sumar, í sam­starfi við Land­græðsl­una og með stuðn­ingi umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins, að græða upp land í Krýsuvík með því að dreifa þar moltu sem fyr­ir­tækið vann úr líf­rænum úrgangi. Stundin greindi frá því í síð­ustu viku að moltan sem dreift var hefði verið menguð af plasti af ýmsum toga, smáu sem stóru. Meðal ann­ars mátti sjá á myndum af svæð­inu heilu plas­hnífa­pörin og lyfja­um­búðir. Ferlið sem notað var við vinnslu moltunnar reynd­ist algjör­lega ófull­nægj­andi.

„Betra ef þetta hefði ekki verið“

Spurður hvort það væru von­brigði fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins að fyr­ir­tækið sem sam­tökin útnefndu sem „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ hefði orðið upp­víst að því að dreifa plast­meng­aðri moltu í tonna­vís í Krýsuvík segir Halldór Benjamín að vissu­lega hefði verið betra að það hefði ekki gerst. „Fyr­ir­tækið hefur gefið mér grein­ar­góðar skýr­ingar á þessu og mér finnst þær vera efn­is­lega mjög efn­is­ríkar. Þau eru búin að fara nokkrum sinnum á vett­vang og fara í gegnum þessa moltu, þau hafa beðist afsök­unar á þessu og þarna hafa átt sér stað ein­hver mis­tök. Jú, það hefði verið betra ef þetta hefði ekki verið en mér finnst þau hafa gefið mjög trú­verð­ugar skýr­ingar.“

„Að sjálf­sögðu, ég meina, öllum geta orðið á mis­tök“

Arn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, greindi frá því í fyrri frétt Stund­ar­innar um málið að ástæð­una fyrir því að moltan sem um ræðir hefði reynst plast­menguð hefði verið þekk­ing­ar­leysi starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins, þar hefðu menn ekki áttað sig á því að þeir verk­ferlar sem beitt væri við moltu­gerð­ina væru ófull­nægj­andi. Þegar Halldór Benjamín var spurður hvort ekki væri áhyggju­efni að aðild­ar­fyr­ir­tæki innan Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem sér­hæfði sig bein­línis í end­ur­vinnslu og umhverf­is­málum, hefði ekki þekk­ingu á þeim ferlum sem þar væri beitt svar­aði Halldór Benjamín: „Ef það er með þeim hætti sem þú lýsir þá er það óheppi­legt en ég hef ekki séð það sem þú ert að vísa til þannig að ég þarf að tala við fyr­ir­tækið og spyrja til að átta mig á því.“

Þegar Halldór Benjamín var spurður hvort málið breytti ein­hverju hvað varð­aði útnefn­ingu Terra sem umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins, hvort sú útnefn­ing standi, svar­aði Halldór Benjamín: „Að sjálf­sögðu, ég meina, öllum geta orðið á mis­tök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár