„Ekkert minni kona þótt þú kjósir að eignast ekki börn“

Fæð­ing­ar­tíðni þjóð­ar­innar er í frjálsu falli sam­kvæmt félags­fræð­ingnum dr. Sunnu Sím­on­ar­dóttur sem hefur rann­sakað móð­ur­hlut­verkið á Íslandi og beinir nú sjónum að konum sem kjósa að eign­ast ekki börn. Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við tvær íslenskar konur sem lýsa þeirri ákvörðun að eign­ast ekki börn og við­brögð­unum sem þær hafa fengið.

„Ekkert minni kona þótt þú kjósir að eignast ekki börn“

Fæð­ing­ar­tíðni íslensku þjóð­ar­innar er í sögu­legu lág­marki, en á sama tíma hefur mennta­stig og atvinnu­þátt­taka kvenna aldrei verið hærra. Ísland trónir iðu­lega á toppi heims­mæli­kvarða yfir kynja­jafn­rétti, en í jafn­réttisparadís­inni er þó víða pottur brot­inn. Vinna innan heim­ilis leggst í ójöfnum mæli á herðar kvenna þrátt fyrir að þær jafni hlut­deild karla á vinnu­mark­aði. Samhliða því er fjar­vera frá vinnu­mark­aði sökum fæð­ing­ar­or­lofs steinn í götu kvenna á frama­braut. Vaxandi fjöldi íslenskra kvenna hefur tekið þá ákvörðun að eign­ast ekki börn, þvert á vænt­ingar sam­fé­lags­ins um hlut­verk kvenna.

Blaða­maður Stund­ar­innar ræddi við Ingunni Odds­dóttur og Silju Jóhann­es­dóttur um ákvörðun þeirra um að snið­ganga barn­eignir, en þær lýsa báðar afskipta­semi og for­dómum í sinn garð. Silja, 41 árs, segir mik­il­vægt að konur fái að lifa eftir sínu eigin höfði, óháð kynj­uðum vænt­ingum um eðli og til­gang kvenna. „Ég vil að ungar konur viti að þetta er raun­veru­legur val­mögu­leiki og ekk­ert til að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár