Ungt fólk gagnrýnir aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum

Þrenn sam­tök ungs fólks vilja að rík­is­stjórnin setji mark­mið um 50 pró­senta sam­drátt í heild­ar­losun fyrir árið 2030. Þá þurfi að leggja mun meira fjár­magn til mála­flokks­ins til að koma í veg fyrir hlýnun umfram 2 gráður.

Ungt fólk gagnrýnir aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum
Aðgerða­á­ætlun kynnt Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti áætl­un­ina í júní. Mynd: Stjórnarráðið

Ungir umhverf­is­sinnar, Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta og Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands telja að aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum varpi byrðum á næstu kyn­slóð þar sem hún gangi of skammt. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri umsögn um áætl­un­ina sem birt var á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda í dag.

Aðgerða­á­ætlun stjórn­valda var kynnt í júní og í henni kemur fram að stjórn­völd stefni að 40 pró­sent sam­drætti í þeirri losun sem stjórn­völd bera ábyrgð á, vel umfram þau 29 pró­sent sem alþjóð­legar skuld­bind­ingar segja til um á tíma­bil­inu 2005 til 2030. Þá er stefnt að kolefn­is­hlut­leysi Íslands árið 2040.

Þessi sam­tök ungs fólks, sem meðal ann­ars hafa tekið þátt í lofts­lags­verk­föllum, vilja hins vegar setja hærra mark­mið um sam­drátt, 50 pró­senta sam­drátt í heild­ar­losun ásamt land­notkun fyrir árið 2030. „Með því að stefna ein­ungis að 35 pró­sent sam­drætti í ESR losun á ára­tugnum 2020-2030 þá er verið að skilja eftir hin 65 pró­sentin fyrir ára­tug­inn þar á eftir, 2030-2040. Það er óábyrgt að varpa þannig meiri­hluta byrð­ar­innar yfir á næstu kyn­slóð. Þó að núver­andi áætlun hljóði upp á 35% sam­drátt í ESR losun þá er hún ein­ungis 9% sam­dráttur í heild­ar­losun ásamt land­notkun og ETS,“ segir í umsögn­inni.

„Lofts­lag­inu er sama hvaðan los­unin kemur“

Svokölluð heild­ar­losun frá Íslandi, það er losun sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda og sú sem fellur undir við­skipta­kerfi ESB sem Ísland á aðild á, hefur auk­ist tölu­vert und­an­farna ára­tugi. Benda sam­tökin á að sú losun á Íslandi, auk los­unar frá land­notkun, setji Ísland í flokk þeirra ríkja sem losa hvað mest á heims­vísu. „Við viljum að horft sé á heild­ar­losun!“ segir í umsögn­inni. „Enda búum við öll á þess­ari plánetu með allri þeirri losun sem á sér stað sama hvernig póli­tíkusar flokka hana niður. Lofts­lag­inu er sama hvaðan los­unin kemur.“

Vilja að 4 prósent landsframleiðslu fari til málaflokksins

Þá telja sam­tökin að of litlu fjár­magni sé úthlutað í mála­flokk­inn sam­kvæmt nýrri áætlun stjórn­valda og þeirri fyrri frá árinu 2018. „Gangi þetta eftir er fjár­magn eyrna­merkt lofts­lags­málum 1850 millj­ónir á ári en heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs 2020 eru 908.689 millj­ónir sam­kvæmt fjár­lögum. Eyrna­merktur pen­ingur fyrir lofts­lags­að­gerðir eru þá u.þ.b. 0,2% af heild­ar­tekjum á ári ef miðað er við heild­ar­tekjur 2020.“

Benda sam­tökin á að sam­kvæmt sviðs­mynd OECD fyrir hnatt­ræna hlýnun upp á 2 gráður sé áætlað að árlegar fjár­fest­ingar þurfi að nema því sem sam­svarar 6 pró­sent af lands­fram­leiðslu heims­ins, ann­ars vegar 4 pró­sent vegna sam­göngu­inn­viða og ann­arra inn­viða og hins vegar 2 pró­sent vegna orku­vinnslu og orku­nýtni.

„Á Íslandi hefur þegar verið tekin upp end­ur­nýj­an­lega orku­vinnsla og því standa eftir fjár­fest­ingar vegna sam­göngu­inn­viða og ann­ara inn­viða,“ segir í umsögn­inni. „Við viljum að þessi tala, 4%, verði höfð að leið­ar­ljósi þegar gerð er aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum. Við viljum að sett séu fram marg­falt öfl­ugri aðgerðir þannig áætl­unin skili fjór­falt meiri árangri, eða árlegum sam­drætti í nettó losun um 700 kt CO2 ígilda svo 50% sam­dráttur í heild­ar­losun ásamt land­notkun náist fyrir árið 2030.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár