Klukkunni ekki seinkað á Íslandi

Stað­ar­tími á Íslandi verður óbreyttur og áfram miðað við Greenwich-tíma. Þetta er nið­ur­staða rík­is­stjórn­ar­innar eftir tveggja ára umfjöllun um málið. Ókost­irnir taldir vega meira en kost­irnir.

Klukkunni ekki seinkað á Íslandi
Óbreytt klukka Klukk­unni á Íslandi verður ekki breytt. Mynd: Unsplash

Rík­is­stjórn Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að klukkan á Íslandi verði óbreytt, eftir tveggja ára umfjöllun um málið. Ekki hafi verið færð nægi­lega sterk rök fyrir því að breyta klukk­unni. Stað­ar­tími á Íslandi verður því óbreyttur og áfram miðað við Greenwich-tíma.

Um langa hríð hefur farið fram umræða hér­lendis um kosti þess að færa stað­ar­tíma á Íslandi nær sól­ar­tíma, með því að seinka klukk­unni um eina klukku­stund. Til­gangur slíkrar breyt­ingar væri að bæta lýð­heilsu með auknum svefn­tíma lands­manna sem auka myndi vellíðan, auka fram­leiðni og bæta náms­ár­angur og draga úr brott­falli úr skólum.

Í jan­úar á síð­asta ári var málið sett inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda til umfjöll­unar og leitað eftir áliti þar. Lagðir voru fram þrír val­kostir sem fólki var taka mætti afstöðu til; að klukkan yrði áfram óbreytt en fólk hvatt til þess að fara fyrr að sofa; að klukk­unni yrði seinkað um eina klukku­stund; eða að klukkan yrði áfram óbreytt en skólar og jafn­vel fyr­ir­tæki og stofn­anir hefðu starf­semi sína síðar að morgn­inum. Tæplega 1.600 umsagnir bár­ust um málið, sem var met­þát­taka, og nið­ur­stöður þess sam­ráðs birtar í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Birtustundum myndi fækka um 13 prósent

Í rökum umsagn­ar­að­ila með breyt­ing­unni var bent á mik­il­vægi þess að stað­ar­tími ætti að vera í takt við lík­ams­klukku og að aukin morg­un­birta myndi hafa í för með sér að börn og ung­lingar sæktu skóla í dags­birtu nær allt skóla­árið. Seinkuð lík­ams­klukka hefði í för með sér nei­kvæða heilsu­fars­legar afleið­ingar vegna skorts á næt­ur­svefni.

Helstu rök gegn breyt­ing­unni voru þau að birtu­stundum milli klukkan sjö að morgni og ell­efu að kvöldi myndu fækkka um 13 pró­sent yfir árið. Með því myndi dags­birta skerð­ast seinnipart dags, sem valda myndi minni úti­veru og fela í sér aukna slysa­hættu. Þá myndi slík breyt­ing sér­stak­lega skerða lífs­gæði þeirra sem búa á stöðum sem eru umluktir háum fjöllum, svo sem á Aust­fjörðum og Vest­fjörðum. Þá myndi auk­inn tíma­munur milli Íslands og meg­in­lands Evrópu hafa nei­kvæð áhrif á við­skipta­líf, á flug og ferða­þjón­ustu.

Þessi rök vega þyngst í ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar nú. Hins vegar telur rík­is­stjórnin mik­il­vægt að bregð­ast við mis­ræmi stað­ar­tíma og lík­ams­klukku og er því heil­brigð­is­ráð­herra falið að ráð­ast í fræðslu­á­tak um mik­il­vægi svefns og kanna svefn­tíma lands­manna. Þá var mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra falið að taka saman árangur þeirra verk­efna þar sem upp­hafi skóla­dags hefur verið frestað og leggja mat á. Enn­fremur á að ráð­ast í fleiri slík til­rauna­verk­efni þar sem fylgst yrði með svefn­tíma barna og ung­linga með slíkum breyt­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár