Guðni tókst á við Guðmund Franklín: „Ertu stoltur af framgöngu þinni í kvöld?“

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti svar­aði spurn­ingum mót­fram­bjóð­anda síns, Guð­mundar Frank­líns Jóns­sonar, í kapp­ræðum í kvöld.

Guðni tókst á við Guðmund Franklín: „Ertu stoltur af framgöngu þinni í kvöld?“
Frá kapp­ræð­unum í kvöld Guðni kímir við þegar Guð­mundur Franklín svarar spurn­ingu hans. Mynd: stöð 2

Um 92% Íslend­inga styðja Guðna Th. Jóhann­es­son í kom­andi for­seta­kosn­ingum, sam­kvæmt könnun sem gerð var fyrir kapp­ræður Stöðvar 2 í kvöld. Í kapp­ræð­unum mætt­ust Guðni og mót­fram­bjóð­andi hans Guð­mundur Franklín Jónsson.

Kapp­ræð­urnar ein­kennd­ust af átökum. Heimir Már Pét­urs­son, annar þátt­ar­stjórn­enda, gerði ítrekað athuga­semdir við fram­göngu Guð­mundar Franklín.

„Þú ert alltaf að spyrja mig út í loftið,“ sagði Guðmunur Franklín við Heimi Má snemma þáttar. „Ég vissi ekki að þú værir lög­spek­ingur líka, með­fram þátt­ar­stjórn­un­inni,“ sagði hann síðar, eftir að Heimir Már gerði athuga­semd við skiln­ing Guð­mundar á stjórn­skipun Íslands. „Ég er mjög stoltur af öllu sem ég hef gert, öfugt við kannski þig, Heimir,“ sagði Guð­mundur þegar síga fór undir lok þátt­ar­ins og kvart­aði undan per­sónu­legum spurn­ingum hans.

Endurvakti ásökun frá 2016

Guð­mundur Franklín vitn­aði til orða Guðna um að hann hefði talað um „fávísan lýð­inn“, sama og borið var á hann fyrir kosn­ingar 2016 vegna fræði­legrar umræðu hans í fyr­ir­lestri í Háskól­anum á Bifröst, og full­yrti að Guðni hefði sagt Íslend­inga ras­ista, spurði hann Guðna hvort hann væri stoltur af því að vera Íslend­ingur.

Að því loknu kom að Guðna að spyrja Guðmund. For­set­inn dæsti. „Hvers skal spyrja?“ sagði Guðni og þagði um stund. „Ertu stoltur af fram­göngu þinni í kvöld?“

Í svari sínu við annarri spurn­ingu Guðna sagði Guð­mundur Franklín að Vigdís Finn­boga­dóttir hafi senni­lega verið „gló­balisti líka“, eins og Guðni, en áður hafði Guðni svarað því til að hann væri Evr­ópusinni og alþjóðasinni, en neit­aði að svara spurn­ingu um afstöðu sína til Evr­ópu­sam­bands­að­ildar.

Átök í kapp­ræðumGuð­mundur Franklín Jónsson var end­ur­tekið ávíttur fyrir að grípa fram fyrir hend­urnar á þátt­ar­stjórn­endum og spyrja Guðna beint. Þátt­ar­stjórn­endur voru Heimir Már Pét­urs­son og Elín Margrét Böðv­ars­dóttir.

„Þá verðurðu bara að flytja til Bandaríkjanna“

Guð­mundur Franklín var spurður út í stuðn­ing sinn við Donald Trump. Í svari sínu sagð­ist hann telja að hvorki Trump, Pútín né Macron ættu erindi í umræðu um íslensk stjórn­mál. „Aftur á móti dáist ég að efna­hags­að­gerðum Donalds Trumps í Banda­ríkj­unum og hann er búinn að taka Banda­ríkin úr kreppu.“

Þegar Guð­mundur lýsti fyr­ir­ætl­unum sínum um að grípa inn í ýmsa lög­gjöf gerðu bæði þátt­ar­stjórn­endur og Guðni athug­semdir við skiln­ing Guð­mundar á for­seta­emb­ætt­inu.

„Þá verð­urðu bara að flytja til Banda­ríkj­anna,“ sagði Guðni að því til­efni.

Þá gerði Guð­mundur Franklín athuga­semd við að for­seta­fram­boð Guðna hefði lýst því yfir að ekki yrði eytt krónu í kosn­inga­bar­átt­una, en að Guðni segði í þætt­inum að kostn­aður væri um ein til tvær millj­ónir króna.

„Af hverju seg­irðu alltaf ósatt, Guðni? Af hverju lýg­urðu að þjóð­inni?“

Að sögn Guðna höfðu fyrri ummæli fallið í útvarps­þætti þar sem Sveinn Waage, hluti stuðn­ings­mannateymis hans, hefði setið fyrir svörum.

Guð­mundur Franklín, sem er hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi verð­bréfa­sali á Wall Street, kveðst bjóða sig fram til þess að verða örygg­is­vent­ill og koma í veg fyrir sölu auð­linda, ekki síst eftir COVID-19 krepp­una.

Guðni, sem er pró­fessor í sagn­fræði, telur hins vegar að for­seti Íslands eigi að horfa til þess sem sam­einar þjóð­ina og telur hug­myndir Guð­mundar um vald­svið for­set­ans ekki sam­ræm­ast stjórn­skipun Íslands.

Uppfært: Leiðrétt hefur verið orða­lag í til­vitnun í Guðna í setn­ing­unni „hvers skal spyrja?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2020

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár