Nýtt efni

Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland
Mótmælin vegna framfærslukostnaðar drógu að sér hundruð þúsunda manna, en enduðu í átökum, skemmdarverkum og ránum í borgum víða um landið.

Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Heimurinn er kominn yfir sjö af níu þolmörkum jarðar. Prófessorinn Johan Rockström segir þróunina áhyggjuefni en að lausnir séu þegar til staðar. Smáríki þurfi að taka þátt í að leiða sjálfbæra framtíð. „Þetta er kapphlaup og það er eins gott að taka þátt í ferðalaginu eða þið verðið skilin eftir,“ segir prófessorinn.

Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, segir fegurðarskyn fólks byggja á gildismati þess og að því sé ekki auðvelt að breyta. Við opnun Vaðölduvers sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að við þyrftum að „laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni“.

Martröðin að eignast heimili
Þorvaldur S. Helgason skrifar um Fasteignamartröðina eftir Gabrielė Labanauskaitė, sem sýnd er í Samkomuhúsinu.

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
Þegar Halla Bergþóra Björnsdóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna löggæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekkert erindi í lögregluna. Hún lét það ekki á sig fá, varð lögreglustjóri og loks ríkislögreglustjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erfiðum málum og fengið hótanir. Á sama tíma hefur hún öðlast skarpari sýn á lífið, sterkari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakklæti fyrir allt það góða.

Ísland kemur einna best út úr COVID-faraldrinum
Yfirlæknir á sýkla- og veirufræðadeild Landspítalans segir gögn sýna að Ísland kom einna best út úr COVID-faraldrinum. Annarskonar áskoranir hafa þó fylgt faraldrinum, svo sem Long-COVID og vantraust til bólusetninga.

Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
Skólahald í Grindavík hefur gengið vel og óslitið frá því það hófst í lok ágúst. Loftvarnarflautur eru prófaðar í lok hvers mánaðar og rýmingaráætlanir æfðar. Um þrjátíu skólabörn eru í bænum.

Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
„Nú er tíminn til að auka stuðning okkar og herða þrýstinginn“ segir António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins.

Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
Alþjóðleg skýrsla segir að stefna stjórnvalda dugi ekki til að vernda 30 prósent lands og hafsvæða fyrir árið 2030. Ríki ræða stöðuna á COP17 í Armeníu í næstu viku.

„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust svara um hvort Eftirlitsstofnun EFTA muni draga málshöfðun gegn Íslandi til baka verði bókun 35 samþykkt á Alþingi. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sagðist ekki vita hvað stofnunin myndi gera. Þingmennirnir gagnrýndu ráðherrana fyrir óskýr svör.

Trump hættir við að streyma aftökunni
Forseti Bandaríkjanna bregst við andstöðu við umdeildum áformum Pete Hegseth varnarmálaráðherra um að streyma aftöku í beinni útsendingu. Trump tekur um leið fram að það hefði haft fælingarmátt að sýna aftökuna og að ástvinir fórnarlambanna geti verið viðstaddir.




Athugasemdir