Kirkjan birtir auglýsingar og sendir börnum boli

Þjóð­kirkjan keypti fjög­urra blað­síðna aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu til að óska gleði­legs sum­ars. Sam­skipta­stjóri segir til­efni til að senda kveðju og styðja atvinnu­lífið í núver­andi ástandi.

Kirkjan birtir auglýsingar og sendir börnum boli
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir Biskup sýnir bol­inn sem öll börn fædd 2007 fengu sendan. Mynd: Þjóðkirkjan

„Guði sé lof fyrir gleði­legt sumar“ stóð framan á Morg­un­blað­inu á fimmtu­dag, sum­ar­dag­inn fyrsta. Kveðjan var hluti af fjög­urra blað­síðna aug­lýs­ingu Þjóð­kirkj­unnar sem birt­ist sem kápa utan um blaðið allt. Einnig voru fluttar aug­lýs­ingar í útvarpi.

Þá sendi Þjóð­kirkjan í vik­unni boli með merki stofn­un­ar­innar til 4.100 barna. Við­tak­endur eru öll börn á Íslandi fædd 2007, en þau kom­ast á ferm­ing­ar­aldur á næsta ári. „Skírn­ar­kjóls­bolnum“ svo­kall­aða fylgdu leið­bein­ingar um að fara inn á síð­una Ferming.is og leita upp­lýs­inga um athafnir næsta árs.

„Þó svo veiru­inn­rás hafi sett ferm­ingar vors­ins í kran­sa­köku sjáum við glitta í ferm­ing­ar­landið,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Þá er ekki seinna vænna að hefja ferm­ingarund­ur­bún­ing árs­ins 2021, barna fædd 2007. Það er sumsé ekki til ferm­ingarund­ir­bún­ingur. En, það er til ferm­ingarund­ur­bún­ingur. Ok, boomer!“

„Skírn­ar­kjóls­bol­ur­inn er hall­æris­lega allrar athygli verður“

Með til­kynn­ing­unni fylgdi mynd af Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­upi í bolnum. „Skírn­ar­kjóls­bol­ur­inn er hall­æris­lega allrar athygli verður, eins og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár