Dómurinn um athafnasemi okkar verður ekki kveðinn upp af okkur sjálfum heldur næstu kynslóðum á jörðinni, af þeim sem munu eiga um sárt að binda. Verkefnið er að umgangast jörðina af virðingu, umhyggju og varfærni og vinna bug á græðgi og yfirgangi sem kalla á sóun og eyðileggingu og sem raska lífsskilyrðum og náttúruundrum. Við högum okkur fyrst og fremst til að heiðra plánetuna Jörð en ekki til að öðlast virðingu okkar á milli.
Jörðin gaf og maðurinn tók
Það er til nóg af guðum en það er engin önnur jörð til fyrir mannfólkið. Það er bláköld staðreynd – sem virðist stundum gleymast. Mörgum himnaguðum hefur verið hampað og fólk fórnað lífi í dýrkun sinni á þeim en heimkynni fólks eru aðeins ein: Jörðin. Geimfarið Voyager 1 tók mynd af heimkynnum okkar árið 1990. Þar birtist jörðin sem agnarsmár fölblár depill í risavöxnum alheimi. Það er allt of sumt – en getum við lært að virða og elska þennan ljósdepil?
Fullyrt hefur verið að maðurinn hafi nú hrint af stað nýrri útrýmingar-lotu á jörðinni sem bitnar harkalega á öllu lífi í lofti, láði og legi. Þrátt fyrir töluvert langa tilveru okkar á jörðinni höfum við greinilega ekki enn lært að unna heimkynnum okkar af takmarkalausri væntumþykju. Kærleikurinn hefur streymt út fyrir gufuhvolfið inn í aðrar víddir sem hafa enga merkingu fyrir okkur.
Það er of seint að iðrast eftir dauðann, þar er hvorki drykkjarvatn eða heilsufæði. Markvissar og samstilltar aðgerðir um víða veröld sem setja hagsmuni og heilsu jarðar í forgang næstu 12–20 ár gætu mögulega komið í veg fyrir hamfarir eyðileggingarinnar. Það er örugglega langbest er að hefja meiri háttar breytingar og byltingu í lífsháttum umsvifalaust.
Jörðin geymir sýnishorn af öllum verðmætum lífsins og gleymir engu. Elstu leifarnar eru steingervingar – steinrunnar leifar eða för dýra eða plantna sem varðveittar eru í jarðlögum. Það er best að halda sig við jörðina – þar eru auðlindirnar. Það eru engir fjársjóðir sem bíða mannsins annars staðar.
Hold er mold hverju sem það klæðist
Óttinn við dauðann er áhrifamikill í mannshuganum. Óttinn hefur margar birtingarmyndir og felst meðal annars í tilhugsuninni um að þurrkast út, kveljast, lúta refsingu og vera vanvirtur – allt eftir lífsskoðun hvers samfélags. Margs konar mannleg kerfi og útfærslur hafa verið sett fram til að takast á við þennan ótta um endalokin.
Gallinn við mörg trúarbrögð er að maðurinn er ævinlega látinn svara guði fyrir gjörðir sínar sem á að geta fyrirgefið hvers konar misgjörðir. En hver kveður í raun upp dóminn? Skrifar hver og einn sinn eigin dóm með verkum sínum? Hver kynslóð? Er það himnafaðirinn, forseti hæstaréttar eða er það ef till vill plánetan Jörð?
Jarðsagan er bók lífsins. Þar eru minjar, leifar og verksummerki um hvert tímabil og það sem hefur lifað og hrærst á jörðinni, um hverja tegund, um ris og fall. Maðurinn getur aldrei verið meira en ein af þeim tegundum sem fram hafa komið í sögu lífsins á jörðinni. En afbrotaskráin er ekki aðeins gagnvart náunganum og eigin tegund, heldur öllum lífverum, stórum og smáum, og náttúrunni, hrikafegurð hennar og undrum.
Manneskjan hefur raskað lífinu á jörðinni freklega með athöfnum sínum. Mannveran stendur frammi fyrir móður jörð alla daga, þar er athvarfið og gagnvart henni þarf að svara að lokum. Dómurinn verður hvorki réttlátur né ranglátur heldur óhjákvæmilegur. Þá dugar engin kænska, mælskulist eða bænir. Vilji manneskjan lengja líf sitt þá er ekki um að ræða líf hvers og eins heldur líf tegundarinnar. Vilji hún það þá þarf hún að breyta lífsstíl sínum til betri vegar, bæta hegðun gagnvart öllu og öllum og temja sér umhyggju og virðingu.
Óttinn við dauðann
Óttinn við dauðann lifir eflaust áfram í hjartanu, óttinn við endinn og dóminn. Óttinn hverfur ekki við loforð um eitthvað annað heldur með því að líta á allt fólk sem systkin, allar verur sem förunauta og að sýna samkennd í stað yfirgangs gagnvart heimkynnum okkar (Laozi).
Jörð gefur arð eftir atburðum. Ferli jarðar felst í því að lifa og hrærast án þessa að útrýma. Ef við fylgjum því ferli þá yrði það góður vitnisburður um okkur sem ein af þeim verum sem lífið á jörðinni hefur alið af sér.
Vitnisburður grafinn í jörð þar sem hann á heima – fallegur steingervingur.
Athugasemdir