Hlutabótalögin voru samin í samráði við SA sem ráðlögðu svo fyrirtækjum að nýta sér óskýrleika þeirra

„Mér datt ekki í hug að ein­hver héldi að hann gæti sett starfs­fólk á hluta­bætur en svo sagt við­kom­andi starfs­manni upp störfum,“ segir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar í sam­tali við Stundina. Fyr­ir­tæki hafa reynt að nota lögin til að spara sér kostnað af því að segja upp starfs­fólki.

Hlutabótalögin voru samin í samráði við SA sem ráðlögðu svo fyrirtækjum að nýta sér óskýrleika þeirra

Samtök atvinnu­lífs­ins voru á meðal þeirra aðila sem félags­mála­ráðu­neytið átti óhefð­bundið sam­ráð við þegar hluta­bóta­leiðin svo­kall­aða var útfærð og laga­setn­ingin und­ir­búin. Eftir að hluta­bóta­frum­varpið varð að lögum hafa svo sam­tökin bent fyr­ir­tækjum á að þau geti notað leið­ina til að spara sér kostn­að­inn af því að segja upp starfs­fólki, það er varpað stórum hluta kostn­að­ar­ins af launa­greiðslum í upp­sagn­ar­fresti yfir á atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð.

Stöð 2 hefur sagt fréttir af þessu und­an­farna daga og SA geng­ist við því að hafa túlkað lögin með þeim hætti að þetta mætti. Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, segir í sam­tali við Stundina í dag að hún hafi ekki haft hug­mynda­flug í að hluta­bóta­leiðin yrði nýtt með þessum hætti. „Mér datt til dæmis ekki í hug að ein­hver héldi að hann gæti sett starfs­fólk á hluta­bætur en svo sagt við­kom­andi starfs­manni upp störfum,“ segir hún. 

Upp­lýs­ing­arnar um sam­ráðið sem haft var við Samtök atvinnu­lífs­ins við smíði lag­anna koma fram í grein­ar­gerð frum­varps Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra sem sam­þykkt var þann 20. mars síð­ast­lið­inn. Þar segir að ekki hafi gef­ist svig­rúm til „hefð­bund­ins sam­ráðs“ enda frum­varpið samið við for­dæma­lausar aðstæður. „Þess ber þó að geta að frum­varpið var samið í sam­ráði ráðu­neyt­is­ins, Alþýðu­sam­bands Íslands, Samtaka atvinnu­lífs­ins og Vinnu­mála­stofn­unar.“ Í grein­ar­gerð­inni er sér­stak­lega tekið fram að sam­tök atvinnu­rek­enda ætli að „hvetja fyr­ir­tæki sem eiga í tíma­bundnum rekstr­ar­vanda til að nýta þann kost að lækka starfs­hlut­fall starfs­manna sinna tíma­bundið fremur en að grípa til upp­sagna“. 

Munu ekki greiða hlutabætur í uppsagnarfresti

Haft var eftir Halldóri Benjamín Þor­bergs­syni, fram­kvæmda­stjóra SA, á Vísi.is fyrr í vik­unni að sam­tökin teldu unnt að túlka lögin þannig að heim­ilt væri að gera samn­ing um hluta­at­vinnu­leys­is­bætur á upp­sagn­ar­tíma. Lög­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við eru sam­mála um að laga­text­ann megi túlka með þessum hætti þótt aug­ljóst sé að til­gangur lag­anna hafi verið sá að við­halda ráðn­ing­ar­sam­böndum, skapa hvata til að atvinnu­rek­endur haldi í starfs­fólk frekar en að reka það. 

Vinnu­mála­stofnun hefur nú til­kynnt að engar hluta­bætur verði greiddar til starfs­manna sem eru á upp­sagn­ar­fresti. Á vef Eflingar stétt­ar­fé­lags er félags­mönnum bent á að ef þeim sé sagt upp eftir að hafa gert sam­komu­lag við vinnu­veit­anda um minnkað starfs­hlut­fall og hluta­bætur þá falli það sam­komu­lag úr gildi og atvinnu­rek­anda beri þá að greiða laun í upp­sagn­ar­fresti miðað við kjör sem giltu áður en sam­komu­lagið var gert.

„Samtök atvinnu­lífs­ins hafa ekki úrskurð­ar­vald um rétt ein­stak­linga til atvinnu­leys­is­bóta og munu hér eftir beina því til aðild­ar­fyr­ir­tækja að haga upp­sögnum og samn­ingum um hluta­störf til sam­ræmis við túlkun Vinnu­mála­stofn­unar,“ segir á vef SA. „Óvissa um fram­kvæmd megi ekki bitna á starfs­fólki fyr­ir­tækj­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár