Eyðsla útlendinga á Íslandi hrundi dag frá degi í marsmánuði

Erlend korta­velta dróst saman um 60 pró­sent í mars og hefur ekki verið lægri í fimm ár. Undir lok mán­að­ar­ins var veltan orðin lítil sem engin.

Eyðsla útlendinga á Íslandi hrundi dag frá degi í marsmánuði
Hrun í veltu Aðeins örfáir erlendir ferða­menn voru orðnir eftir í land­inu undir lok mars­mán­aðar sem skýrir þann gríð­ar­lega sam­drátt sem varð í erlendri korta­veltu. Mynd: Davíð Þór

Korta­velta erlendra ferða­manna hér á landi dróst saman um 60 pró­sent í mars mán­uði miðað við sama tíma á síð­asta ári. Í byrjun mán­að­ar­ins nam veltan um 80 pró­sentum af veltu sama tíma á síð­asta ári en síð­ustu daga mán­að­ar­ins var hún orðin aðeins fjögur pró­sent. 

Þetta kemur fram í gögnum sem Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar hefur tekið saman. Sam­drátt­ur­inn sem um ræðir tekur til korta­veltu erlendra ferða­manna án flug­sam­gangna og er sam­dráttur í öllum flokkum sem til­teknir eru. Heild­ar­velta erlendra korta nam 6,95 millj­örðum króna í mán­uð­inum. 

Mest dróst eyðsla erlendra ferða­manna saman í flokknum ýmis ferða­þjón­usta en þar var sam­drátt­ur­inn 75,8 pró­sent í mán­uð­inum. Þar nam veltan tæpum 800 millj­örðum króna, borið saman við um 3,2 millj­örðum króna í mars árið 2019. Velta í gisti­þjón­ustu nam 1,8 millj­örðum í mars síð­ast­liðnum og dróst saman um 2,5 millj­arða milli ára. Erlend korta­velta í veit­inga­þjón­ustu var 931 milljón króna og dróst saman um 58 pró­sent frá fyrra ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár