Allar deildir Landspítala reiðubúnar - 72 börn undir eftirliti

Allar deildir Land­spít­ala eru nú við­búnar því að taka á móti COVID-19 smit­uðum sjúk­lingum sem þurfa að leita á spít­al­ann af ýmsum orsökum. 20 eru í sótt­kví á ýmsum deildum spít­al­ans. 72 börn eru undir eft­ir­liti frá Barna­spít­ala Hrings­ins vegna veirunnar.

Allar deildir Landspítala reiðubúnar - 72 börn undir eftirliti
Land­spít­ali Allar deildir spít­al­ans eru við­búnar að taka á móti COVID-19 smit­uðum sjúk­lingum sem þurfa að leita á spít­al­ann af ýmsum orsökum.

Allar deildir Land­spít­ala eru nú við­búnar því að taka á móti COVID-19 smit­uðum sjúk­lingum sem þurfa að leita á spít­al­ann af ýmsum orsökum. Núna liggja 20 manns  í sótt­kví á ýmsum deildum spít­al­ans.  72 börn eru undir eft­ir­liti frá Barna­spít­ala Hrings­ins vegna veirunnar.

Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­ala, segir að þessu fylgi ekki að legu­rúmum hafi verið fækkað á spít­al­anum, á all­flestum deildum hans séu einka­stofur sem nota megi í þessum til­gangi. 

„Ef á spít­al­ann kemur ein­stak­lingur með stað­fest COVID-19 smit og ástæða kom­unnar er önnur en smitið, þá tekur sú deild sem á við í því til­viki að sjálf­sögðu á móti honum og hann fær þá lækn­is­hjálp sem hann þarf og hann við­heldur þá þar sinni ein­angrun,“ segir Anna Sigrún.

Hún segir að ekki sé verið að útskrifa fólk fyrr af spít­al­anum en venja er vegna far­ald­urs­ins. „Okkur hefur tek­ist mjög vel að sinna okkar verk­efnum þrátt fyrir þetta auka­á­lag og ég á ekki von á öðru en að svo verði áfram, segir Anna Sigrún. „Við höfum ekki sent neinn heim sem ekki er útskrif­ar­hæfur og fólk er hér að sjálf­sögðu í með­ferð eins og alltaf af ýmsum ástæðum.“

Á vef­síðu Land­spít­ala kemur fram að nú liggja 30 sjúk­lingar með stað­fest COVID-19 þar. Af þeim eru tíu á gjör­gæslu­deild og sjö þeirra eru í önd­un­ar­vél. Sex liggja inni á spít­al­anum vegna gruns um COVID-19 smit og hefur fjöldi slíkra sjúk­linga tvö­fald­ast síðan í gær þegar þeir voru þrír. 

Deildir undirbúnar til að verða COVID-deildir

Deild A7, sem er smit­sjúk­dóma­deild, er nú ein­göngu ætluð COVID-19 smit­uðum og allt stefnir í að deild A-6, lungna­deild, muni einnig þjóna því hlut­verki, að sögn Önnu Sigrúnar. Deildir B-5, E-6 og 12-B hafi einnig verið und­ir­búnar fyrir þessa notkun.

Á vef­síðu Land­spít­ala kemur fram að alls hafi 53 frá upp­hafi verið lagðir inn á spít­al­ann vegna COVID-19 smits. 936 eru undir eft­ir­liti frá COVID-göngu­deild og 72 börn eru í eft­ir­liti Barna­spít­ala Hrings­ins vegna COVID-19. Þeim hefur fjölgað um sex síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár