Draumurinn að stofna alvöru tehús

Þær Sólrún María Reg­ins­dóttir og Alma Árna­dóttir eru báðar miklar áhuga­mann­eskjur um te og koma báðar að starf­semi hins fjöl­skyldurekna Tefélags. Þær segja teheim­inn stærri en fólk geri sér almennt grein fyrir og um leið sé hann mjög lok­aður. Því er mik­il­vægt að hafa góða tengiliði en Alma fór nýverið til Sri Lanka þar sem hún skoð­aði teekrur, frædd­ist um fram­leiðsl­una og kom á mik­il­vægum tengslum.

Draumurinn að stofna alvöru tehús
Alin upp við tek­drykkju Sólrún María Reg­ins­dóttir smit­að­ist af áhuga móður sinnar á tedrykkju. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það kann að koma okkur Íslend­ingum á óvart að á eftir vatni sé te vin­sæl­asti drykkur í heimi. Enda hefur ætíð verið meiri kaffi­menn­ing hér­lendis og bless­aður mola­sop­inn frekar róm­aður en tebolli. Eitthvað hefur þetta þó sjálf­sagt breyst í gegnum tíð­ina og meðal þeirra sem lagt hafa sitt lóð á vog­ar­skál­ina við að efla temenn­ingu Íslend­inga er fjöl­skylda ein sem árið 2011 stofn­aði Tefé­lagið. Að baki Tefé­lag­inu standa hjón og þrjú börn þeirra sem höfðu búið í Danmörku og fannst vanta betra aðgengi að góðu tei hér­lendis. Þau hafa nú í nærri ára­tug glatt áskrif­endur sína með mán­að­ar­legum tes­end­ingum og hafa einnig selt laus­laufate til veit­inga­staða lands­ins til að tryggja fólki góðan bolla á eftir mál­tíð.

Sólrún María Reg­ins­dóttir kom inn í hina ágætu fjöl­skyldu á bak við Tefé­lagið um það leyti sem það var stofnað þegar hún tók saman við Andra Árnason og ber hún fram­kvæmda­stjóra­titil félags­ins í dag …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár