Reiknar með að Þorsteinn Már verði aftur forstjóri Samherja

Björgólfur Jóhans­son, starf­andi for­stjóri Samherja, seg­ist reikna með að Þor­steinn Már Bald­vins­son verði aftur for­stjóri eftir að rann­sókn lög­manns­stofu, sem Samherji pant­aði á sjálfum sér, lýkur í vor.

Reiknar með að Þorsteinn Már verði aftur forstjóri Samherja
For­stjórar Þor­steinn Már Bald­vins­son og Björgólfur Jóhanns­son eiga langa sögu sam­starfs. Björgólfur tók við sem for­stjóri Samherja þegar Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar.

Starf­andi for­stjóri Samherja, Björgólfur Jóhanns­son, gerir ráð fyrir því að Þor­steinn Már Bald­vins­son snúi aftur í stól for­stjóra eftir að rann­sókn norskrar lög­manns­stofu á Samherja lýkur í lok næsta mán­aðar eða byrjun apríl.

Þetta kemur fram í sam­tali Björg­ólfs við Rík­is­út­varpið.

Samherji réði norsku lög­manns­stof­una Wik­borg Rein til þess að ranna­saka starf­semi sína tengda stór­felldum greiðslum félags­ins til emb­ættis- og stjórn­mála­manna í Namibíu á liðnum árum, sem Stundin, Kveikur og Al Jazeera greindu frá í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra.

Spurður af frétta­stofu RÚV hvort hann muni hætta störfum seg­ist Björgólfur ekki vera fram­tíð­ar­for­stjóri félags­ins, en að stjórn þess þurfi að svara hvort Þor­steinn Már snúi aftur. 

„En ég myndi reikna með því já,“ segir Björgólfur við RÚV.

Björgólfur vék sæti sem stjórn­ar­for­maður Íslands­stofu eftir að hann tók við stöðu for­stjóra Samherja. Hann vék einnig úr stjórn trygg­ing­ar­fé­lags­ins Sjóvár, en hefur verið til­nefndur í stjórn­ina á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár