Lögmannstofan sem „rannsakar“ Samherja vinnur lögmannsstörf fyrir útgerðina í Namibíu

Norska lög­manns­stofan Wikborg Rein vinnur fyrir Samherja í deil­unni um togar­ann Heinaste. Samherji neit­aði því að lög­manns­stofan ynni að öðru en rann­sókn­inni á Samherja. Tals­maður lög­manns­stof­unnar segir að vinna Wikborg Rein í Heinaste-deil­unni teng­ist „rann­sókn­inni“ á Samherja.

Lögmannstofan sem „rannsakar“ Samherja  vinnur lögmannsstörf fyrir útgerðina í Namibíu
Trú­verð­ug­leiki rann­sókn­ar­innar Björgólfur Jóhanns­son sagði við Stundina í síð­ustu viku að Wikborg Rein ynni ekki önnur störf fyrir Samherja en „rann­sókn­ina“ á fyr­ir­tæk­inu þar sem slíkt gæti grafið undan trú­verð­ug­leika rann­sókn­ar­innar. Hann sést hér með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja sem er í leyfi. Mynd: Vísir/Sigurjón

Norska lög­manns­stofan Wikborg Rein sem Samherji hefur ráðið til að „rann­saka“ starf­semi útgerð­ar­innar í Namibíu og í öðrum löndum vinnur líka lög­manns­störf fyrir útgerð­ina í Namibíu sam­hliða þess­ari vinnu sinni. Þetta kemur fram í tölvu­bréfi frá einum með­eig­anda á lög­mann­stof­unni Wikborg Rein, Chris Grieveson sem starfar í London, til lög­manns­stofu í Suður-Afríku. Í bréfa­skipt­unum er deilt um ætluð kaup rúss­nesks útgerð­ar­fé­lags á tog­ar­anum Heinaste af Samherja, og namibískum með­fjár­festum íslensku útgerð­ar­innar, á 20 millj­ónir doll­ara.

Kaupin á tog­ar­anum eru komin í upp­nám vegna mútu­máls Samherja í Namibíu sem greint var frá í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera fyrir mán­uði síðan á grund­velli gagna frá Wikileaks. 

Í bréfi segir Chris Grieveson að hann komi fram sem full­trúi „eig­enda tog­ar­ans og Sam­herj­a­sam­stæð­unnar vegna söl­unnar á skip­inu“.  Í bréf­inu frá Wikborg Rein og Chris Grieveson er lögð áhersla á að fyr­ir­liggj­andi stofn­samn­ingur (e. MOA) um kaup á Heinaste frá því í lok októ­ber eigi að halda þrátt fyrir frétta­flutn­ing um Samherja sem Grieveson segir að séu „ein­fald­lega ásak­anir“ á þessu stigi máls­ins. Samherji reynir því allt hvað félagið getur til að halda sölu á Heinaste til streitu. 

Í svörum við spurn­ingum Stund­ar­innar neitar Samherji að afhenda verk­samn­ing sinn við norsku lög­manns­stof­una:  „Verk­samn­ingur sem Samherji hefur við Wikborg Rein vegna rann­sókn­ar­innar hefur verið afhentur hlut­að­eig­andi hags­muna­að­ilum. Hann verður hins vegar ekki birtur opin­ber­lega á þessu stigi,“ segir í svar­inu sem Björgólfur Jóhanns­son er titl­aður fyrir sem málsvari Samherja.

Bréfið frá Wikborg ReinBréfið frá norsku lög­manns­stof­unni Wikborg Rein til lög­manns­stofu ætl­aðs kaup­anda tog­ar­ans Heinaste sem dag­sett er þann 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Rannsókn“ Wikborg Rein

Upp­lýs­ing­arnar sem koma fram í tölvu­bréf­inu frá Wikborg Rein sýna því fram á það að norska lög­manns­stofan er ekki ein­göngu að vinna við svo­kall­aða rann­sókn á Samherja fyrir hönd Samherja heldur eru starfs­menn lög­manns­stof­unnar einnig að gæta hags­muna Samherja í deilum í Namibíu sem teygja sig til ann­arra landa.

Samherji hefur haldið því fram að þessi rann­sókn verði sjálf­stæð og hlut­læg. Þegar Samherji greindi frá „rann­sókn“ Wikborg Rein í aðdrag­anda fjöl­miðlaum­fjöll­unar um mútu­greiðsl­urnar í Namibíu í nóv­em­ber var það gert með þessum orðum: „Við tökum þessu mjög alvar­lega og höfum ráðið alþjóð­legu lög­manns­stof­una Wikborg Rein í Noregi til að fram­kvæma ítar­lega rann­sókn á starf­sem­inni í Afríku. Þar til nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar liggja fyrir munum við ekki tjá okkur um ein­stakar ásak­anir.“

 „Við tökum þessu mjög alvar­lega og höfum ráðið alþjóð­legu lög­manns­stof­una Wikborg Rein í Noregi til að fram­kvæma ítar­lega rann­sókn“

Í yfir­lýs­ingu frá Samherja nokkrum dögum síðar sagði að við­brögð Samherja við frétt­unum af mútu­greiðsl­unum myndi byggja á nið­ur­stöðum Wikborg Rein, líkt og um væri að ræða nið­ur­stöðu frá óháðri eft­ir­lits- eða rann­sókn­ar­stofnun: „Yfir­stand­andi rann­sókn, sem er í höndum alþjóð­legu lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, mun halda áfram og mun Wikborg Rein heyra beint undir stjórn félags­ins. […] Ekki er að vænta frek­ari umfjöll­unar af hálfu Samherja fyrr en stað­reyndir úr ofan­greindri rann­sókn taka á sig skýr­ari mynd.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið í nóv­em­ber sagði Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, að hann furð­aði sig á gagn­rýni á þá ákvörðun Samherja að fá Wikborg Rein til að rann­saka starfs­hætti Samherja „Það eru aðilar sem gefa sig út fyrir trú­verð­ug­leika. Ef trú­verð­ug­leik­inn bregst hafi fyr­ir­tækin enga við­skipta­vini,“ sagði Björgólfur.

Í þessu til­felli er Samherji hins vegar bæði verk­kaupi og rann­sókn­ar­efni „rann­sóknar“ Wikborg Rein  en einnig við­skipta­vinur lög­manns­stof­unnar á öðrum vígs­stöðvum eins og í deilu um sölu á tog­ara í Namibíu.

Neitaði að Wikborg Rein ynni önnur störf

Þegar Stundin spurði Samherja að því í síð­ustu viku, eftir að Stundin hafði fengið upp­lýs­ingar um að Wikborg Rein væri að vinna lög­manns­störf fyrir Samherja í Namibíu í máli sem fjall­aði ekki rann­sókn­inni á mútu­greiðslum Samherja, hvort Wikborg Rein væri að vinna fyrir Samherja með öðrum hætti en að „rann­saka“ fyr­ir­tækið neit­aði útgerðin. Spurn­ingum um þetta var beint til Mar­grétar Ólafs­dóttur, rit­ara for­stjóra Samherja. Svör Samherja koma frá eða eru eignuð Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra og tals­manns fyr­ir­tæk­is­ins og stjórnar þess. 

Í svari fra Björgólfi kom fram að vinna Wikborg Rein fyrir Samherja afmark­að­ist af „rann­sókn­inni“ á fyr­ir­tæk­inu: „Vinna Wikborg Rein afmarkast við rann­sókn á þeim ásök­unum sem settar hafa verið fram á hendur Samherja vegna starf­sem­innar í Namibíu. Inni­falið í þeirri vinnu er aðstoð við styrk­ingu á innra eft­ir­liti hjá fyr­ir­tæk­inu. Til­gang­ur­inn með því er meðal ann­ars að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar geti bakað fyr­ir­tæk­inu bóta­á­byrgð í fram­tíð­inni.“

Út frá tölvu­bréf­inu frá starfs­manni Wikborg Rein um söl­una á Heinaste, sem ekki flokk­ast sem hluti af rann­sókn­inni á Samherja, er ljóst að þetta svar frá Samherja er ekki alveg sann­leik­anum sam­kvæmt. 

Aðstoðar Samherja við rannsaka sjálfan sig

Í svari frá Geir Swiggum, lög­fræð­ingi hjá Wikborg Rein og tals­manni fyr­ir­tæk­is­ins, kemur fram að öll vinna lög­manns­stof­unnar teng­ist ásök­un­unum á hendur Sam­herj­a­sam­stæð­unni. „Öll sú vinna sem við innum að hendi teng­ist ásök­un­unum á hendur Sam­herj­a­sam­stæð­unni,“ segir í löngu svari frá Geir sem er birt í heild sinni fyrir neðan þessa frétt.

Stundin spurði Geir Swiggum beint út í vinnu lög­manns Wikborg Rein í Heinaste-deil­unni og virð­ist Wikborg Rein því líta svo að deilan um söl­una á Heinaste teng­ist „rann­sókn“ Wikborg Rein á hendur Samherja. Hvernig þetta gengur upp liggur ekki fyrir þar sem sala á tog­ara getur vart flokk­ast undir rann­sókn­ar­efni lög­mann­stof­unnar. 

Annað sem er áhuga­vert í svari Geir Swiggum er að hann segir að Wikborg Rein sé fyrst og fremst að „aðstoða stjórn­ina við innri rann­sókn“.

Út frá þessu svari er því ljóst að það er ekki norska lög­manns­stofan sem er að rann­saka Samherja, eins og útgerðin hefur sagt, heldur er Wikborg Rein að aðstoða Samherja við meinta eigin rann­sókn á fyr­ir­tæk­inu sjálfu. 

Trúverðugleiki „rannsóknarinnar“?

Björgólfur svar­aði þeirri spurn­ingu einnig neit­andi hvort önnur vinna Wikborg Rein fyrir Samherja umrædd „rann­sókn“ hefði ekki áhrif á trú­verð­ug­leika nið­ur­staðna hennar. Spurn­ingin var því í reynd, sam­kvæmt svörum Samherja sem svo virð­ist ekki vera alveg rétt, byggð á röngum for­sendum. Orðrétt sagði í svar­inu: „Wikborg Rein veitir Samherja ekki þjón­ustu sem Wikborg Rein eða við teljum að hafi nei­kvæð á hrif á getu lög­manns­stof­unnar til að sinna þeirri rann­sókn sem nú stendur yfir.“

Þetta er ekki alveg rétt en eftir stendur spurn­ingin hvort önnur vinna Wikborg Rein fyrir Samherja hafi ein­hver áhrif á trú­verð­ug­leika „rann­sókn­ar­innar“ á fyr­ir­tæk­inu eða ekki. Ef bein vinna Wikborg Rein við lög­fræði­störf fyrir Samherja hefur ekki áhrif á trú­verð­ug­leika rann­sókn­ar­innar hvers konar störf Wikborg Rein fyrir Samherja geta þá haft áhrif á þennan trú­verð­ug­leika?

Stundin beindi annarri spurn­ingu til Samherja í aðdrag­anda birt­ingar þess­arar fréttar um mis­ræmið í svörum Samherja og í gögn­unum frá Namibíu um eðli vinnu Wikborg Rein fyrir Samherja.

Orðrétt var erindið ti Samherja : „Skjöl frá Namibíu sýna að Wikborg Rein hefur unnið fyrir Samherja í tengslum við sölu­ferli á tog­ar­anum Heinaste í Namibíu. Þetta kemur fram í tölvu­bréfi starfs­manna Wikborg Rein, Chris Grieveson, frá 9. des­em­ber. Orðrétt segir í bréf­inu: Wikborg Rein acts "for the owners of the vessel and the Samherji group in respect of the sale of the vessel". Spurning mín til Samherja er:  1. Hvernig útskýrir Samherji þessa stað­reynd í ljósi þeirra svara sem bár­ust frá fyr­ir­tæk­inu við spurn­ingum Stund­ar­innar í síð­ustu viku? Þá sagði Samherji, í svörum frá þér Margrét: „Vinna Wikborg Rein afmarkast við rann­sókn á þeim ásök­unum sem settar hafa verið fram á hendur Samherja vegna starf­sem­innar í Namibíu.““

Þegar fréttin um lög­manns­vinnu Wikborg Rein fyrir Samherja var birt hafði þess­ari spurn­ingu ekki verið svarað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár