„Allt útlit fyrir“ að kísilverið í Helguvík verði ekki gangsett á ný

Arion banki og PCC hafa slitið við­ræðum um mögu­leg kaup PCC á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík. Einnig hefur Arion sagt upp raf­orku­samn­ingi við Lands­virkjun, þar sem fram­leiðsla kís­ils var for­senda samn­ings­ins.

Kísilverksmiðjan í Helguvík verður líklega flutt, eða fundið nýtt hlutverk, samkvæmt tilkynningu Arion banka.
Kís­il­verk­smiðjan í Helguvík verður lík­lega flutt, eða fundið nýtt hlut­verk, sam­kvæmt til­kynn­ingu Arion banka. Mynd: iav.is

Arion banki og PCC hafa slitið form­legum við­ræðum um mögu­leg kaup PCC á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík. Samhliða hefur Arion banki sagt upp raf­orku­samn­ingi við Lands­virkjun þar sem fram­leiðsla kís­ils var for­senda samn­ings­ins. Frá þessu segir Arion banki í frétta­til­kynn­ingu í dag.

„Því er allt útlit fyrir að kís­il­verk­smiðjan í Helguvík verði ekki gang­sett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlut­verk,“ segir í til­kynn­ingu bank­ans. Þar er haft eftir Benedikt Gísla­syni banka­stjóra að saga kís­il­vers­ins í Helguvík sé vel þekkt, en bank­inn telji nú full­reynt að þar verði rekið kís­il­ver.

Bankinn eign­að­ist verk­smiðj­una árið 2018 í kjöl­far gjald­þrots fyrri eig­anda, United Sílicon hf. Stakks­berg ehf., dótt­ur­fé­lag Arion banka hefur á und­an­förnum miss­erum gert til­raunir til að finna kaup­endur að verk­smiðj­unni, en þær til­raunir hafa nú runnið út í sand­inn.

[adspot]

Samkvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu Arion banka gerð­ist það í kjöl­far þess að PCC kynnti áform sín fyrir hag­að­ilum, en nið­ur­staða þeirrar vinnu var að PCC teldi ekki grund­völl fyrir áfram­hald­andi við­ræðum um kaup félags­ins á verk­smiðj­unni.

„Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja“

Í til­kynn­ingu bank­ans er haft eftir Benedikt að bank­inn hafi litið á það sem skyldu sína að „reyna til þrautar að nýta þá inn­viði og þau verð­mæti sem þarna hefur verið fjár­fest í“.

„Þar höfum við horft til allra hag­að­ila, ekki síst íbúa Reykja­nes­bæjar sem urðu fyrir óþæg­indum á þeim stutta tíma sem verk­smiðjan var starf­rækt. Við unnum metn­að­ar­fulla end­ur­bóta­á­ætlun á verk­smiðj­unni sem fór í gegnum umhverf­is­mat og leit­uðum að rekstr­ar­að­ila með nauð­syn­lega þekk­ingu og getu til að starf­rækja verk­smiðj­una á umhverf­is­vænan máta, í sátt við sam­fé­lagið. Bankinn telur full­reynt að þarna verði rekin kís­il­verk­smiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verk­smiðj­una eða færa henni nýtt hlut­verk,“ er haft eftir Benedikt.[links]

Viðræður komnar í gang við nokkra aðila

„Í kjöl­far þess­arar nið­ur­stöðu mun Arion banki horfa til sölu á þeim innviðum sem eru til staðar í Helguvík, annað hvort til flutn­ings eða með það að mark­miði að koma þar upp ann­ars konar starf­semi en kís­ilfram­leiðslu,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Arion banka.

Þar segir jafn­framt frá því að við­ræður séu „þegar í gangi við nokkra aðila, inn­lenda og erlenda, í þessu sam­bandi“.

Þess er getið að ákvörð­unin hafi ekki áhrif á bók­fært verð­mat eign­ar­innar, en það verði svo end­ur­metið með hlið­sjón af þróun þeirra við­ræðna sem standa yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár