Greta Thunberg leggur baráttu Sama lið

Íbúar í norð­ur­hluta Sví­þjóðar, þeir hinir sömu og stjórn­ar­for­maður breska námu­fyr­ir­tæk­is­ins Beowulf sagði engu máli skipta, ætla að halda áfram bar­áttu sinni fyrir járn­grýt­is­námu með stuðn­ingi Gretu Thunberg.

Greta Thunberg hefur barist fyrir loftslagið í mörg ár.
Greta Thunberg hefur barist fyrir lofts­lagið í mörg ár. Mynd: EPA

Góð­gerð­ar­stofnun Gretu Thunberg hefur gefið sam­fé­lögum Sama í norð­ur­hluta Sví­þjóðar 2 millj­ónir sænskra króna, um 27 millj­ónir íslenskra króna, til að standa straum af lög­fræði­kostn­aði í mála­ferlum gegn bresku námu­fyr­ir­tæki. Járn­grýt­is­náman sem Beowulf Mining áformar er á svæði sem er mik­il­vægt fyrir hrein­dýra­bú­skap Samanna.

[adspot]

Námu­fyr­ir­tækið, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í London, fékk leyfi sænskra yfir­valda í mars til að grafa eftir járn­grýti á svæð­inu. Ein­hverjir héldu að þar með væru úr sög­unni deilur um námu­vinnsl­una sem staðið hafa í um ára­tug en annað átti sann­ar­lega eftir að koma í ljós. Samarnir ætla ekki að gef­ast upp. Þeir hafa síð­ustu ár notið stuðn­ings víða að, m.a. frá Heimsminja­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNESCO) og leið­toga sænsku kirkj­unnar. Náman er áformuð í Jokkmokk í norð­ur­hluta Sví­þjóðar. Í byrjun árs 2020 höfn­uðu sænsk yfir­völd leyf­is­um­sókn Beowulf um námu á þessum slóðum. Tveimur árum síðar gáfu stjórn­völd hins vegar grænt ljós að und­ir­lagi við­skipta- og iðn­að­ar­ráð­herr­ans Karl-Petter Thorwaldsson sem segir að fyr­ir­tæk­inu hafi verið sett ströng skil­yrði til að lág­marka áhrif hinnar opnu námu á hrein­dýra­bú­skap Samanna.

Leið­togar Sama blása á þessi rök og segja að náman, sem verður opin yfir­borðs­náma, muni eftir sem áður hafa nei­kvæð áhrif á beit­ar­lönd hrein­dýra og far leiðir þeirra.

„Núna erum við að reyna að áfrýja ákvörðun sænskra stjórn­valda um að leyfa námuna,“ segir Jon-Mikko Länta, for­maður byggða­ráðs Jåhkågaska-sam­fé­lags­ins, sem yrði fyrir mestum áhrifum af námunni. Í við­tali við Guardian segir að fram­lag Gretu Thunberg-stofn­un­ar­innar geri frek­ari bar­áttu gegn námunni mögu­lega. „Lög­fræð­ingar okkar telja að þessi ákvörðun stjórn­valda sé ekki í sam­ræmi við alþjóða samn­inga um rétt­indi frum­byggja.“

Hin áform­aða náma yrði í um 45 kíló­metra fjar­lægð frá bænum Jokkmokk. Beowulf hefur sóst eftir leyfum fyrir henni síðan árið 2013.

Áformunum var þá þegar mót­mælt og ekki minnk­aði and­staðan ári síðar er mynd­bands­upp­taka af Clive Sinclair-Poulton, þáver­andi stjórn­ar­for­manni fyr­ir­tæk­is­ins, var birt opin­ber­lega. Upptakan var af fundi stjórnar Beowulf með vænt­an­legum fjár­festum. „Ein algeng­asta spurn­ingin sem ég fæ er: Hvað finnst íbúum á svæð­inu um þetta verk­efni? Og ég hef sýnt þeim þessa mynd [af fram­kvæmda­svæð­inu] og sagt: Hvaða íbúum?“

Fyr­ir­tækið heldur því fram að náman yrði utan Lapp­lands og þar með svæðis sem frum­byggja­lögin sem Samarnir vísa til ná yfir.

Þing Sama skrif­aði rík­is­stjórn Sví­þjóðar bréf í febr­úar og benti á að náman myndi skerða beit­ar­lönd hrein­dýra sem eru lifi­brauð margra íbúa á þessum slóðum. Á svæði sem nátt­úran er að taka breyt­ingum vegna hlýn­unar lofts­lags og sem á undir högg að sækja, m.a. vegna skóg­ar­höggs og áform­aðra vatns­afls­virkj­ana.

Lappland er á heimsminja­skrá UNESCO vegna sögu, menn­ingar og nátt­úru. Mörk vernd­ar­svæð­is­ins eru í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá hinni fyr­ir­hug­uðu yfir­borðs­námu.

Þau skil­yrði sem sett voru fyrir fram­kvæmda­leyfum eru m.a. þau að Beowulf vinni að skipu­lags- og umhverf­is­málum í nánu sam­ráði við heima­menn. Fyrsti fundur námu­fyr­ir­tæk­is­ins og full­trúa Sama verður haldin í byrjun næsta árs.

[adspot]

Greta Thunberg hefur látið sig bar­áttu Samanna varða og heim­sótti Jokkmokk í fyrra. „Í tólf ár hefur sam­fé­lagið reynd að verja beiti­lönd sín fyrir þess­ari járn­grýt­is­námu,“ segir hún. „Með þeirri bar­áttu hafa þeir staðið vörð um það sem færir okkur öllum öryggi: Líf­fræði­lega fjöl­breytta skóga sem binda kolefni sem og hreint vatn og hreint loft. Þetta er alls ekki ein­stakt bar­áttu­mál því við sjáum þetta vera að ger­ast víða um heim.“

Thunberg segir frum­byggja vera í fram­varð­ar­sveit þeirra sem vilja verja jörð­ina og vist­kerfi hennar fyrir eyði­legg­ingu. „Svíþjóð er áfram um að skil­greina sjálfa sig sem land fram­fara sem berst fyrir mann­rétt­indum. En sænska ríkið hefur lagt undir sig land Sama í aldir og leitar þar stöðugt að nýjum nátt­úru­auð­lindum sem það getur nýtt sér, oft án þess að taka til­lit til sjón­ar­miða Sama.“

Hrein­dýrin eru ekki þau einu sem yrðu fyrir áhrifum hafa sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna í mann­rétt­indum og umhverf­is­málum bent á. Náman myndi menga and­rúms­loft, jarð­veg og grunn­vatn og við vinnsl­una myndi falla til eitr­aður úrgangur. Þeir bentu auk þess á að veru­lega skorti enn á mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar.

Námu­vinnsla er umfangs­mikil atvinnu­grein nú þegar í Svíþjóð. Við hana starfa um 45 þús­und manns og hlut­deild hennar í útflutn­ings­tekjum lands­ins er um 10 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

námuvinnsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár