Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út

Eft­ir­spurn eftir íslenskum jarð­efnum er gríð­ar­leg ef marka má fram­komin áform erlendra stór­fyr­ir­tækja um nýt­ingu þeirra. Vin­sældir hafn­ar­innar í Þor­láks­höfn eru sam­hliða mjög miklar.

Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Gríð­ar­lega mikil dæl­ing á sandi á sér stað í Land­eyja­höfn á hverju ári. Mark­ar­fljótið ber hund­ruð þús­unda tonna af jarð­efnum út í sjó og það á til að safn­ast upp í mynni hafn­ar­innar. Mynd: Vegagerðin

Íslensk jarð­efni henta að mati erlendra fram­leið­enda sem­ents vel til íblönd­unar. Vikur, móberg og nú sandur úr móbergi undan ströndum Íslands eru allt efni sem dásömuð eru í skýrslum erlendra stór­fyr­ir­tækja sem þurfa nú að draga veru­lega úr kolefn­is­spori sínu í fram­leiðslu til að kom­ast hjá því að greiða há meng­un­ar­gjöld sem vofa yfir innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Nýjasta dæmið um vin­sældir íslenskra jarð­efna í stað hins kolefn­is­freka sem­ents­gjalls (sem­entsk­lin­kers) eru áform þýska sem­ents­ris­ans Heidel­bergs Mater­i­als um umfangs­mikla efn­is­töku sands úr sjónum undan strönd Land­eyjar- og Eyja­fjalla­sands í Rangár­þingi eystra.

[adspot]

Efn­is­vinnslu­svæðin eru fyr­ir­huguð sitt hvoru megin við Land­eyja­höfn. Þótt ekki sé fjallað um áhrif efn­is­tök­unnar á sjálfa Land­eyja­höfn, þar sem reglu­lega þarf að dæla miklu magni af sandi í burtu svo Vest­manna­eyja­ferjan Herj­ólfur geti athafnað sig, vill Þor­steinn Víglunds­son, for­stjóri Horn­steins, dótt­ur­fé­lags Heidel­bergs Mater­i­als, meina að hin áform­aða efn­istaka gæti dregið úr inn­streymi sands að höfn­inni. Þetta þyrfti að ger­ast í góðri sam­vinnu við Vega­gerð­ina um fyr­ir­komu­lag og stað­setn­ingu vinnslu­svæð­anna og ætti að auð­velda við­halds­dýpkun.

„Þetta er spenn­andi verk­efni af því að þarna gæti farið saman nýt­ing á efni sem er að valda vand­ræðum í höfn­inni um leið og dregið er úr efn­is­flutn­ingi inn í höfn­ina sem gæti aukið rekstr­ar­ör­yggi hennar,“ sagði Þor­steinn í við­tali við Morg­un­blaðið um síð­ustu helgi.

Þurfa að tryggja að verkefnið hafi ekki skaðleg áhrif á höfnina

Vega­gerðin á hins vegar ekki beina aðkomu að verk­inu en vegna þekk­ingar á aðstæðum við Land­eyja­höfn hefur verið farið fram á að hún geri til­lögu að rann­sókn­ar­á­ætlun, segir G. Pétur Matth­í­as­son, for­stöðu­maður sam­skipta­deildar Vega­gerð­ar­innar við Kjarnann. Hann segir hlut­verk stofn­un­ar­innar í mál­inu að tryggja að efn­istakan hafi ekki skað­leg áhrif á jafn­vægi strand­ar­innar í kringum Land­eyja­höfn eða nei­kvæð áhrif á sigl­ingar um höfn­ina. Verk­efnið hafi sem sagt verið kynnt Vega­gerð­inni og rætt hefur verið um, að sögn G. Péturs, hvort að efn­istakan gæti mögu­lega hjálpað Land­eyja­höfn. „Ef að efn­istakan hefur engin nei­kvæð áhrif á jafn­vægi strand­ar­innar við Land­eyja­höfn þá er Vega­gerðin hlut­laus í þessu máli, og ef að mögu­leiki er að áhrifin verði til að bæta aðstæður þá er Vega­gerðin jákvæð.“

Fram­kvæmdin sem Heidel­berg áformar eru risa­vaxin. Unnar yrðu 60-75 millj­ónir rúmmetra af sandi á efn­is­töku­svæð­inu á þrjá­tíu ára tíma­bili eða um 2 millj­ónir rúmmetra á ári. Það er erfitt að átta sig á slíkum stærðum. Til að gera til­raun til ein­hvers sam­an­burðar er Alþing­húsið við Aust­ur­völl 4.370 rúmmetrar. Miðað við áætl­anir sem eru fram­settar í mats­á­ætl­un­inni á að flytja 7-10 þús­und tonn af efni frá vinnslu­svæð­inu og til flutn­inga­skipa í Þor­láks­höfn 8 til 10 sinnum í viku. Það eru nokkur Alþing­is­hús að rúm­máli.

Móbergið sagt henta vel í sement

Það þarf vart að taka það fram en efnið af Landeyja- og Eyja­fjalla­sandi yrði flutt úr landi. Því sand­ur­inn við Land­eyja­höfn, sem Mark­ar­fljót skilar úr jöklum og til sjávar, er ekki ein­hver venju­legur sandur í huga sem­ents­fram­leið­enda. Og ekki jarð­fræð­inga ef út í það er farið. Því frum­rann­sóknir á þessum sandi benda til, að því er segir í skýrslu Heidel­bergs, að malað gos­efni, móberg, sé að finna á stóru svæði beggja vegna Land­eyja­hafnar. Og móberg hefur Heidel­berg rann­sakað í þaula. Þetta undra­efni sem verður til við gos undir jökli eða vatni og er að finna víðs­vegar á Íslandi en er sjald­gæft á heims­vísu. Efnið sem und­ir­strikar sér­stöðu íslenskrar nátt­úru ræki­lega – þar sem eldur og ís hafa tek­ist á í árþús­undir og gera enn.

[links]Ýmsa þætti má draga fram sem hafa orðið til þess að Heidel­berg Mater­i­als horfir hýru auga til sands­ins við Land­eyja­höfn. Í fyrsta lagi eru sem­ents­fram­leið­endur að leita log­andi ljósi að stað­geng­ils­efni í sem­ent í stað flug­ösku sem hingað til hefur verið notuð í stað hins mjög svo meng­andi sem­ents­gjalls. Flugaska verður til við bruna kola í kola­verum en þeim á að loka einu af öðru á næstu árum og ára­tugum vegna umhverf­is­sjón­ar­miða. Kola­bruni er vissu­lega ekki umhverf­is­vænn en nýt­ing auka­af­urða sem verða til við slíkan bruna er vissu­lega jákvæð og í anda hringrás­ar­hag­kerf­is­ins.

Fram­burður jarð­efna með Mark­ar­fljóti, sem á upp­tök sín í Mýr­dalsjökli og Eyja­fjalla­jökli, gerir þetta svæði undan suð­ur­strönd Íslands eft­ir­sótt til námu­vinnslu. Það bæt­ist sífellt í. Allt fram streymir enda­laust, eins og sagt er. Eða í það minnsta þangað til að jökl­arnir hverfa.

Hægt að nýta fyrri rannsóknir

Í þriðja lagi hafa þegar verið gerðar tölu­verðar rann­sóknir á þessum slóðum vegna Land­eyja­hafnar, sem fram­kvæmda­að­ili getur nýtt sér, m.a. við mat á umhverf­is­á­hrifum. Heidel­berg mun m.a. nýta sér rann­sóknir Vega­gerð­ar­innar og fleiri aðila í gegnum tíð­ina. Í mats­á­ætl­un­inni er vísað til einnar slíkrar, frá árinu 2020, vegna við­halds­dýpk­unar í höfn­inni. Þær rann­sóknir eru sagðar sýna að efni sem kemur úr Land­eyja­höfn sé að lang­mestu leyti fínn og með­al­grófur sandur. Dýpt­ar­mæl­ingar Vega­gerð­ar­innar munu einnig nýt­ast sem og jarð­vegs­sýni sem stofn­unin hefur tekið. Þá munu rann­sóknir sem unnar voru fyrir umhverf­is­mat Land­eyj­ar­hafnar árið 2007 koma að notum.

Frekari rann­sókna á ýmsum sviðum er þó þörf því nán­ast engar rann­sóknir hafa farið fram á nákvæm­lega því svæði sem til greina kemur til efn­is­töku. Hefur Horn­steinn, dótt­ur­fé­lag Heidel­bergs, leyfi Orku­stofn­unar til rann­sókna á lausum jarð­efnum á hafs­botni á svæði allt frá Þor­láks­höfn að Land­eyja­höfn. Leyfið var útgefið í vor og gildir til árs­loka 2024.

Nýlegar seg­u­l­óm­mæl­ingar sem unnar voru í tengslum við fyr­ir­hug­aða efn­is­töku sýna að umtals­vert efni sem talið er henta til fram­leiðslu íblönd­un­ar­efnis í sem­ents­fram­leiðslu sé þar að finna. Að í það minnsta 50 metra þykkir set­bunkar af efni, sem virð­ist eins­leitt að gerð, hafi safn­ast upp beggja vegna Land­eyja­hafnar.

Í fjórða lagi þá þýðir efn­istaka undan strönd­inni að ekki þarf að flytja þetta gíf­ur­lega magn land­leið­ina til Þor­láks­hafnar eins og raunin er með áform­aða vik­ur­vinnslu á Mýr­dals­sandi og væntan brott­flutn­ing Litla-Sand­fells í Þrengslum, verk­efnis sem Heidel­berg kemur einnig að. Efninu yrði dælt upp af hafs­botni í borð í 90-110 metra löng skip sem myndu svo sigla með það rak­leiðis til Þor­láks­hafnar.

[adspot]

Í fimmta lagi mætti nefna mögu­legan ávinn­ing af fram­kvæmd­inni fyrir Land­eyja­höfn sjálfa og Vega­gerð­ina sem þarf eins og staðan er í dag að halda henni við með miklum til­kostn­aði. Þetta er hins vegar ekki mark­mið Heidel­berg með fram­kvæmd­inni í sjálfu sér enda gekk for­stjóri Horn­steins ekki lengra í sam­tali við Morg­un­blaðið en að segja að sam­legð­ar­á­hrif gætu orðið. Ekki er um sam­starfs­verk­efni við Vega­gerð­ina að ræða ef marka má mats­á­ætlun Heidel­berg. Þar segir þó að rann­saka þurfi strauma og set­flutn­inga á fyr­ir­hug­uðu vinnslu­svæði og hvaða áhrif efn­istakan gæti haft á set­flutn­inga og strandrof. „Gert er ráð fyrir að Vega­gerðin muni ann­ast rann­sóknir á þessum umhverf­is­þáttum í sam­starfi við aðra aðila,“ segir Heidel­berg í skýrslu sinni.

Í þágu loftslagsins

Yfirlýst mark­mið fram­kvæmd­ar­innar er að sækja jarð­efni sem íauka í sem­ent svo draga megi úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, eða við­halda henni svo ekki komi til þess að nota þurfi sem­ents­gjall í meira mæli. Í mats­á­ætlun eru rifjuð upp lofts­lags­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kalli eftir því að sam­fé­lagið bregð­ist við og fari í aðgerðir sem stuðli að minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. „Með verk­efn­inu skap­ast grund­völlur til þess að minnka þessa losun,“ segir í áætl­un­inni.

Efn­istakan færi fram utan net­laga, en það er skil­greint 115 metra út frá stór­straums­fjöru­borði. Dýpi er á bil­inu 5-40 metra en öldu­gangur er mik­ill og veldur róti á hafs­botn­inum svo dýpi á svæð­inu er mjög breyti­legt. „Dæling og löndun efnis undan Suð­ur­strönd Íslands er fram­kvæmd sem er ekki hættu­laus og meðal ann­ars háð veðri og aðstæðum,“ bendir Heidel­berg á.

Gert er ráð fyrir að þegar sand­skip er orðið full lestað verði siglt með efnið til Þor­láks­hafnar. Þar yrði því landað og það unnið áfram í verk­smiðju Heidel­berg sem stað­sett verður, ef áætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins ganga eftir, skammt frá hafn­ar­svæð­inu í Þor­láks­höfn.

[adspot]

Á þessu stigi er hins vegar óljóst hvernig sand­inum verði landað í Þor­láks­höfn. Um er að ræða tvo mögu­leika. Annars vegar að þurrka það úti á sjó og landa því með færi­bandi frá hafn­ar­að­stöðu að verk­smiðj­unni. Löndun á þurru efni myndi kalla á upp­bygg­ingu færi­bands á þeim hafn­ar­kanti sem yrði nýttur. Hinn mögu­leik­inn er að landa efn­inu blautu í sér­stakt setlón. Í því til­viki þyrfti að gera ráð fyrir land­rými nálægt höfn­inni.

Verk­smiðjan sem vísað er til í mats­á­ætl­un­inni er ekki risin en um hana hafa þó þegar risið miklar deilur. Íbúar í Þor­láks­höfn eru margir hverjir efins um ágæti þess að hafa svo stóra verk­smiðju, með fleiri tuga háum sílóum, rétt við íbúa­byggð – og rétt við fjör­una sem er einn vin­sæl­asti úti­vist­ar­stað­ur­inn á þessum slóðum. Verk­smiðjan myndi líka mylja móbergið úr Litla-Sand­felli, sem Eden Mining ætlar að grafa upp til agna og Heidel­berg að kaupa.

Skiptar skoðanir

Verk­smiðjan er því fram­kvæmd sem teng­ist mögu­legri efn­is­töku við Land­eyja­höfn en er ekki hluti af því umhverf­is­mati sem nú er hafið á því verk­efni. Reyndar hefur enn ekki verið kveðið upp úr um hvort að verk­smiðjan þurfi í umhverf­is­mat. Og meiri­hluti skipu­lags- og umhverf­is­nefndar Ölfuss telur enga þörf á slíku umstangi. Minni­hlut­inn er hins vegar á allt annarri skoðun.

Skipu­lags­stofnun bað Ölfus um umsögn um málið, þ.e. hvort að sveit­ar­fé­lagið kall­aði eftir því að fram­kvæmdin færi í umhverf­is­mat. Erindið var tekið fyrir á fundi í byrjun des­em­ber og lögðu full­trúar B-lista Fram­fara­sinna, sem sitja í nefnd­inni fyrir hönd minni­hlut­ans, fram eft­ir­far­andi álit: „Talið er mik­il­vægt að möl­un­ar­verk­smiðjan fari í umhverf­is­mat, sökum umfangs hennar miðað við sam­fé­lagið í Þor­láks­höfn.”

Minnihlutinn undrandi

Þegar fund­ar­gerð þess fundar var lögð fram á bæj­ar­stjórn­ar­fundi 15. des­em­ber til sam­þykktar, rataði álit bæj­ar­full­trúa Fram­fara­sinna ekki inn í umsögn­ina sem sveit­ar­fé­lagið sendi til Skipu­lags­stofn­unar þar sem fram kom að meiri­hlut­inn telji ekki þörf á umhverf­is­mati.

„Þessi afstaða meiri­hlut­ans vekur mikla furðu okkar bæj­ar­full­trúa í minni­hluta,“ skrifa Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir, H-lista, Hrönn Guð­munds­dóttir, B-lista, og Vil­hjálmur Baldur Guð­munds­son, B-lista í Ölfusi, í aðsendri grein sem birt var á Vísi í gær.

Rifja þau upp að í skil­yrðum sem bæj­ar­stjórn sam­þykkti í nóv­em­ber að setja Heidel­berg segi að bæj­ar­stjórn „áskilji sér fullan rétt til að tryggja hags­muni sam­fé­lags­ins við vinnslu máls­ins“, og að „ekki komi til greina að gef­inn verði afsláttur af almennum kröfum um hljóð­mengun, ryk­mengun og annað það sem valdið getur sam­fé­lag­inu ama“.

„Hvers vegna í ósköp­unum fer bæj­ar­stjórn þá ekki fram á að verk­smiðjan fari í umhverf­is­mat og þar með í gaum­gæfi­lega skoðun sem tekur á málum er varða hags­muni íbúa og umhverfis?“ skrifa full­trúar minni­hlut­ans. „Hvaða hags­muni er verið að vernda með þeirri afstöðu? Hvernig geta íbúar tekið vel ígrund­aða ákvörðun þegar kemur að íbúa­kosn­ingu, sem búið er að lofa en eng­inn veit hvenær verður, þegar sveit­ar­fé­lagið beitir sér ekki fyrir því að leiða fram allar mögu­legar upp­lýs­ingar um áhrif sem fram­kvæmdin kann að hafa?“

Óskar umsagna margra

Skipu­lags­stofnun hefur enn ekki birt ákvörðun sína um hvort fyr­ir­huguð verk­smiðja Heidel­berg þurfi að fara í umhverf­is­mat. Afstaða sveit­ar­fé­lags­ins hefur þar ekki úrslita­á­hrif enda óskar Skipu­lags­stofnun eftir umsögnum margra stofn­ana sem sér­fræð­ingar stofn­un­ar­innar horfa svo til við ákvörð­un­ar­tök­una. Hennar er að vænta á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heidelbergmaterials

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár