Gagnrýni stofnana „vakið nokkra undrun“ hjá Heidelberg

Hver verður lofts­lags­á­vinn­ingur þess að mylja niður íslenskt fjall, vinna efnið í verk­smiðju í Þor­láks­höfn og senda það með skipi á markað í Evrópu? Það fer eftir því hver er til svars: Fram­kvæmda­að­ilar eða eft­ir­lits­stofn­anir.

Heidelberg Materials hefur fengið úthlutað 55 þúsund fermetra lóð við höfnina í Þorlákshöfn. Þar hyggst fyrirtækið reisa stóra verksmiðju með 40-50 metra háum sílóum.
Heidel­berg Mater­i­als hefur fengið úthlutað 55 þús­und fer­metra lóð við höfn­ina í Þor­láks­höfn. Þar hyggst fyr­ir­tækið reisa stóra verk­smiðju með 40-50 metra háum sílóum.

„Einn helsti drif­kraftur þessa verk­efnis er að afla efnis í sem­ent sem kemur í stað hins kolefn­is­freka sem­entsk­lin­kers.“

„Til­gangur efn­is­tök­unnar í [Litla-]Sand­felli er að nýta meiri­hluta efn­is­ins sem stað­göngu­efni flug­ösku í sem­ents­fram­leiðslu.“

Verði ekki af námunni „munu sem­ents­fram­leið­endur þurfa að finna annað efni í stað flug­ösku“ og tak­ist ekki að finna það „þarf að nota sem­entsk­lin­ker með þeirri gríð­ar­miklu koldí­oxíð­losun sem því fylgir. Hnattræn áhrif á lofts­lag gætu því reynst mjög nei­kvæð.“

„Móberg úr Litla-Sandfell mun koma í stað sem­entsk­lin­kers og árlega minnka kolefn­islosun vegna steypu­fram­leiðslu um 663 millj­ónir kíló CO2 ígilda. Það er því mat fram­kvæmda­að­ila að heild­ar­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar á lofts­lag séu veru­lega jákvæð.“

Þessu er öllu saman haldið fram í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining, fyr­ir­tækis í eigu tveggja Íslend­inga, sem áformar að moka Litla-Sand­felli í Þrengslum upp á vöru­bíla og flytja það til verk­smiðju sem þýski sem­ents­ris­inn Heidel­berg Mater­i­als hyggst reisa í Þor­láks­höfn. Skýrslan, sem er nú til með­ferðar hjá sér­fræð­ingum Skipu­lags­stofn­unar, er unnin af verk­fræði­stof­unni Eflu.

[adspot]

Stofn­anir sem gefið hafa umsögn sína við skýrsl­una setja spurn­ing­ar­merki við full­yrð­ingar sem í henni er að finna. Þær segja að fram­setn­ing á lofts­lags­á­vinn­ingi sé „rugl­ings­leg“ og „ómark­viss“ og að útreikn­ingur á kolefn­islosun sé „því marki brenndur“ að í raun muni fram­kvæmdin ekki draga úr losun heldur við­halda árangri sem þegar hafi náðst, þ.e. að draga úr losun með notkun flug­ösku í stað klin­kers „en þó með nýjum umhverf­is­á­hrifum sem áður voru ekki fyrir hendi,“ segir Umhverf­is­stofnun m.a. í umsögn sinni.

Stofn­unin spyr hvort ekki megi finna annan stað­gengil flug­ösku en íslenska móbergið enda sé vinnsla þess ekki í anda hringrás­ar­hag­kerf­is­ins. Bent er m.a. á efni sem mynd­ast við brennslu heim­il­issorps eða timb­urs sem í dag er urðað.

[links]Sement er fínmalað vökva­bindi­efni og einn af aðal­þáttum þess er sem­ents­gjall, svo­kall­aður klin­ker. Klin­ker­inn er búinn til með því að bræða saman kalk­stein og leir og í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining segir að við fram­leiðslu á einu tonni af klin­ker losni 842 kíló af koltví­sýr­ingi. Til að minnka notkun á klin­ker, og þar með minnka losun, hefur notkun íauka, einkum flug­ösku úr kola­verum, auk­ist mikið.

Á fundi í Þor­láks­höfn í síð­ustu viku, þar sem móbergs­vinnsla Heidel­berg Mater­i­als var kynnt, sagði Þor­steinn Víglunds­son, for­stjóri Horn­steins og tals­maður þýska sem­ents­ris­ans, að með því að nota móberg sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent megi spara um 20 pró­sent af kolefn­is­spori fram­leiðsl­unnar í dag, eða með­al­tali um 700-750 kíló CO2 á hvert tonn af sem­enti.

Eden Mining áætlar að ef leyfi fáist fyrir námu­vinnsl­unni verði hægt að vinna 800 þús­und til milljón tonn af móbergi á ári í þrjá­tíu ár. Að þeim tíma liðnum væri Litla-Sandfell, sem mynd­að­ist undir jökli í lok síð­ustu ísaldar, horfið af yfir­borði jarðar. Að minnsta kosti í sinni nátt­úru­legu mynd.

Bæði

En fáist þessi leyfi, hvort yrði íslenska móbergið stað­geng­ill fyrir flug­ösku eða sem­entsk­lin­ker?

„Það er gert ráð fyrir hvoru tveggja til lengri tíma litið, það er að ann­ars vegar komi móbergið í stað þeirrar flug­ösku sem notuð er í dag en jafn­framt er gert ráð fyrir að móbergið komi að hluta í stað þess sem­ents­gjalls sem notað er í dag,“ segir Þor­steinn í svari við þess­ari fyr­ir­spurn Kjarnans. Prófanir sýni að hægt væri að auka nokkuð íblöndun móbergs á móti sem­entsk­lin­ker í sem­enti sam­an­borið við flug­ösk­una.

Hann seg­ist hafa séð gagn­rýni ýmissa stofn­ana varð­andi þessa fram­setn­ingu „og hún hefur vakið nokkra undrun hjá okkur,“ segir Þor­steinn og segir ástæður þess eft­ir­far­andi:

„Í fyrsta lagi er alveg ljóst að fram­boð flug­ösku er nú þegar orðið af mjög skornum skammti vegna minnk­andi vægis kola í raf­orku­fram­leiðslu. Sú þróun er mjög jákvæð og gert er ráð fyrir að hún haldi áfram og að kola­orku­ver í Evrópu heyri sög­unni til innan ekki langs tíma.

Full­yrð­ingar ýmissa stofn­ana um gnótt fram­boð flug­ösku koma okkur mjög á óvart enda end­ur­speglar verð­þróun og sú stað­reynd að farið er að flytja flug­ösku mun lengri vega­lengdir en áður til að mæta þörf sem­ents­iðn­aðar í þeim efnum.

Auk þess verður að hafa í huga að ekki er hægt að nota alla ösku sem fellur til í orku- eða málm­fram­leiðslu inn í sem­ent vegna efna­eig­in­leika og spilli­efna sem er að finna í hluta hennar. Það væri enda sér­kenni­legt að flestir sem­ents­fram­leið­endur í Evrópu væru að leggja höf­uð­á­herslu á þróun nýrra íauka í sem­ent í stað flug­ösku, með til­heyr­andi kostn­aði, ef nægt fram­boð væri af henni til langrar fram­tíðar.

Finnist ekki aðrir kostir mun kolefn­is­spor sem­ents­fram­leiðslu því aukast á nýjan leik þegar flug­ösku nýtur ekki lengur við.“

Í öðru lagi segir Þor­steinn það vera mat Heidel­berg að til lengri tíma upp­fylli flugaska ekki við­mið um sjálf­bæra lausn þar sem notkun hennar styðji við notkun kola til brennslu „sem seint verður talin sjálf­bær lausn“.

Kínverjar eru risar í framleiðslu klinkers

Kína er það land í heim­inum sem fram­leiðir lang­mest af sem­entsk­lin­ker eða um 2.000 millj­ónir tonna á ári. Eitthvað af honum er unnið innan Evr­ópu­sam­bands­ins og umtals­vert magn er svo unnið í Tyrk­landi.

Ef Litla-Sandfell verður ekki mulið og flutt úr landi, með til­heyr­andi umhverf­is­á­hrifum hér, m.a. frá umferð flutn­inga­bíla, sliti á vegum og óneit­an­legri stór­breyttri ásýnd lands, „munu sem­ents­fram­leið­endur þurfa að finna annað efni til að koma í stað flug­ösk­unnar „þegar kola­verum Evrópu verður lokað á næstu árum og ára­tugum, segir í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining. Takist það ekki þurfi að nota sem­entsk­lin­ker „með þeirri gríð­ar­miklu koldí­oxíð­losun sem því fylgir,“ segir enn­fremur í skýrsl­unni. Þar er því svo einnig haldið fram að auk þess þyrfti að ráð­ast í frek­ari námu­gröft í Evrópu til að ná í kalk­stein­inn sem þarf til að búa til klin­ker­inn „eða flytja inn sem­entsk­lin­ker frá löndum utan EES-svæð­is­ins sem eru ekki með­limir í evr­ópska ETS við­skipta­kerf­inu með kolefn­isk­vóta, t.d. Tyrk­landi“.

Því nú fer að líða að því að los­un­ar­heim­ildir sem sem­ents­fram­leið­endur hafa hingað til fengið ókeypis muni að kosta sitt. Með því að vinna íslenskt móberg, sem er nátt­úru­lega brennt eftir eld­gos undir jökli og þarf því ekki að brenna í verk­smiðju líkt og sem­entsk­lin­ker­inn, má spara fleira en koldí­oxíð.

[adspot]

„Lofts­lags­á­vinn­ingur sem ætlað er að koma fram í öðru landi [getur] ekki talist rök­stuðn­ingur fyrir umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum á Íslandi nema þá að fyrir liggi alþjóð­legir samn­ingar, bendir Umhverf­is­stofnun á í umsögn sinni um mats­skýrslu Eden Mining.

Sérstök sjónarmið

„Þetta eru nokkuð sér­stök sjón­ar­mið í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar sem hingað til hefur verið tal­inn hnatt­rænn vandi sem krefj­ist hnatt­rænna lausna,“ segir Þor­steinn, tals­maður Heidel­berg, við Kjarnann. „Þannig má nefna sem dæmi að orku­skipti okkar í sam­göngum eru veru­lega háð náma­vinnslu af ýmsu tagi sem þarf til fram­leiðslu á raf­hlöðum í bif­reiðar, áli til að létta þær sömu bif­reiðar og auka drægni raf­bíla og svo mætti áfram telja.“

Þau umhverf­is­á­hrif verði til í öðrum löndum en minnkun los­unar komi fram íslenska lofts­lags­bók­hald­inu. „Það ætti því að liggja í augum uppi að vanda­málið verður ekki leyst ein­angrað í hverju landi fyrir sig heldur þvert á móti með auknu alþjóð­legu sam­starfi þar sem þjóðir leggja það af mörkum sem þær hafa tök á. Hvort heldur sem það fram­lag er til lækk­unar á eigin kolefn­is­spori eða kolefn­is­spori ann­arra landa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heidelbergmaterials

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár