Of lítið gert úr umhverfisáhrifum námu í Litla-Sandfelli

Nátt­úru­fræði­stofnun og Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands eru ekki sam­mála nið­ur­stöðu umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining sem ætlar að vinna efni úr Litla-Sand­felli í Þrengslum þar til það hverfur af yfir­borði jarðar.

Litla-Sandfell er skammt frá Þrengslavegi.
Litla-Sandfell er skammt frá Þrengsla­vegi. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Áhrif á jarð­minjar: Neikvæð en ekki óveru­leg.

Áhrif á gróður og fugla: Neikvæð en ekki óveru­leg.

Áhrif á lands­lag: Verulega nei­kvæð en ekki nokkuð nei­kvæð.

Áhrif á loft­gæði: Nokkuð nei­kvæð en ekki óveru­leg.

Áhrif á hljóð­vist: Nokkuð nei­kvæð en ekki óveru­leg.

Áhrif á lofts­lag: Ein­földun að meta þau veru­lega jákvæð.

Nátt­úru­fræði­stofnun er ósam­mála nið­ur­stöðum í nýlegri skýrslu námu­fyr­ir­tæk­is­ins Eden Mining á mati á umhverf­is­á­hrifum áform­aðrar námu í Litla-Sand­felli í Ölfusi. Fyr­ir­tækið, sem er í eigu tveggja Íslend­inga, áformar að vinna allt fjallið og flytja meg­in­þorra efn­is­ins til útlanda þar sem það yrði notað í sem­ents­fram­leiðslu.

[adspot]

Í umsögn sinni um skýrsl­una tekur Nátt­úru­fræði­stofnun undir gagn­rýni margra ann­arra stofn­ana á fram­kvæmd­ina fyr­ir­hug­uðu sem Kjarninn hefur þegar rakið.

Umhverf­is­mats­skýrsla er með síð­ustu skref­unum sem fyr­ir­tæki taka í mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda. Matið endar með áliti Skipu­lags­stofn­unar og nokkru sinni í ferl­inu er óskað eftir umsögnum frá stofn­unum og athuga­semdum frá almenn­ingi.

[links]Fyrri skref er m.a. mats­skýrsla um fram­kvæmd­ina og hvað námuna í Litla-Sand­felli varðar hefur nokkur breyt­ing orðið á frá útgáfu hennar fyrr á árinu og umhverf­is­mats­skýrsl­unni sem aug­lýst var nú í ágúst. Aðal­val­kost­ur­inn er að vinna allt fjallið, en val­kostur B, sem felst í helm­ingi minni vinnslu og aðal­lega í fjall­inu vest­an­verðu, er í nýju skýrsl­unni ekki sagður standa undir sér fjár­hags­lega. Yrði hann fyrir val­inu þyrfti „að auka efn­is­töku á öðrum efn­is­töku­svæðum og jafn­vel opna ný svæði til að upp­fylla þá lág­marks­þörf“.

Þetta er meðal þess sem Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands gagn­rýnir í sinni umsögn um fram­kvæmd­ina. Ef verk­efnið sé ekki fjár­hags­lega hag­kvæmt nema aðal­val­kostur verði fyrir val­inu sé er val­kostur B ekki raun­hæfur val­kostur. Að bera saman einn val­kost og núll­kost, þ.e. enga fram­kvæmd, geti ekki talist sam­an­burður á raun­hæfum kostum í skiln­ingi laga um umhverf­is­mat. Þar sem umhverf­is­mats­skýrsla Eden Mining inni­haldi ekki lýs­ingu og mat á raun­hæfum kostum upp­fylli hún ekki skil­yrði lag­anna.

Ruglingslegt og ómarkvisst

Umhverf­is­stofnun, Nátt­úru­fræði­stofnun og Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands eru gagn­rýnin á fram­setn­ingu lofts­lags­á­vinn­ings námu­vinnsl­unnar eins og hún birt­ist í skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar er hún metin veru­lega jákvæð en um það hafa stofn­an­irnar sínar efa­semdir og vilja nán­ari útskýr­ingar. Móbergið úr Litla-Sand­felli er sagt eiga að koma í stað kola­flugösku, sem verði í fram­tíð­inni af skornum skammti vegna áform­aðra lok­ana á kola­verum í sumum löndum. Þannig komi hið íslenska jarð­efni í veg fyrir að svo­kallað sem­ents­gjall (klin­ker) sem hafi meira kolefn­is­spor verði notað.

En sam­dráttur í losun er greindur í sam­an­burði við notkun klin­kers­ins og sagður umtals­verður. Umhverf­is­stofnun segir þetta mis­vísandi, þessi meinti lofts­lags­á­vinn­ingur sé þegar kom­inn fram, og Nátt­úru­fræði­stofnun telur þetta „full ein­falda nálgun“. Ekki sé tekið með í reikn­ing­inn að móbergið sé ekki að koma í stað klin­kers­ins heldur flug­ösk­unnar. Þá sé ekki heldur gert ráð fyrir að hent­ugri íblönd­un­ar­efni í sem­ent kunni að finn­ast nærri fram­leiðslu­stað.

Heil­brigð­is­eft­ir­litið telur að umfjöllun í umhverf­is­mats­skýrsl­unni um þetta atriði sé „rugl­ings­leg og ómark­viss“. Ýmist sé talað um að efnið úr Litla-Sand­felli yrði stað­geng­ils­efni kola­flugösku, auka­af­urðar sem verður til við brennslu kola í orku­verum, stað­geng­ils­efni sem­entsk­lin­kers eða í stað bæði kola­flugösku og sem­entsk­lin­kers.

Fram­kvæmda­að­ili hafi reiknað út að notkun 800.000 tonna af móbergi í stað klin­kers muni spara 663,2 milljón kíló af koltví­oxíði árlega „sem er vissu­lega umtals­vert,“ skrifar Heil­brigð­is­eft­ir­litið í umsögn sinni. „Hins vegar kemur hvorki fram hversu mikið er fram­leitt af sem­entsk­lin­ker á heims­vísu í dag né að hversu miklu leyti móbergs­flugaska úr Litla-Sand­felli mun koma í stað­inn fyrir áður­nefnd efni.“

Vegna þess­ara ann­marka sé „örð­ugt“ að átta sig á því „hvernig kom­ist er að þeirri nið­ur­stöðu að heild­ar­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar á lofts­lag eru metin veru­lega jákvæð“.

Nátt­úru­fræði­stofnun vill leggja áherslu á að þótt mik­il­vægt sé að Ísland leggi sitt af mörkum við að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og að notkun íslenskra jarð­efna í sem­ents­fram­leiðslu sé áhuga­vert við­fangs­efni hvað það varðar, þá verði að móta skýra heild­stæða stefnu byggða á grein­ar­góðu mati þannig að tryggja megi sátt um jafn­vægi sjálf­bærar nýt­ingar og verndar. Ekki sé sjálf­bært til fram­tíðar að ákvarð­anir um efn­is­töku á móbergi séu teknar á for­sendum stakra verk­efna hjá ein­stökum land­eig­endum eða sveit­ar­fé­lögum.

Til varnar Litla-Sandfelli

Stofn­unin bendir á að vernd­ar­gildi jarð­minja á Íslandi sé mjög hátt og móbergs­fjöll og vik­ur­sandar meðal sér­kenna íslensks lands­lags. Litla-Sandfell er ein­stakt og ólíkt móbergs­fjöll­unum í nágrenn­inu þar sem ekki er á því grá­grýt­is­hella. Það er stuttur móbergs­hryggur á meðan nágranna­fjöllin eru flest móbergs­stapar.

„Ef fjallið hverfur verður jarð­fræðin eins­leit­ari en nú er og jarð­breyti­leiki minnkar,“ segir stofn­unin í áliti sínu. Þá rýrir það að hennar mati ekki gildi jarð­mynd­unar að hún sé ekki áber­andi og lítt þekkt eins og fram­kvæmda­að­ili vilji meina en í skýrslu hans stendur að lík­lega geti ein­ungis „örlít­ill hluti lands­manna“ bent á Litla-Sandfell á korti. Nátt­úru­fræði­stofnun kemur Litla-Sand­felli til varnar og skrifar: „Jarð­mynd­anir hafa eigið gildi óháð því hversu vel þær eru þekktar meðal almenn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

edenmining

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár