Útiloka að Litla-Sandfell verði flutt eftir Þrengslavegi – Námuvegir og færibönd

Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Ölfusi úti­loka að jarð­efni verði flutt með almennri umferð frá Litla-Sand­felli til Þor­láks­hafnar og horfa til lausna eins og sér­stakra námu­vega og færi­banda. Slíkar lausnir eru ekki metnar í umhverf­is­mats­skýrslu.

Litla-Sandfell í Þrengslum. Námuvinnsla í fellinu og fyrirhugaður útflutningur á efni þaðan frá Þorlákshöfn hefur valdið styr á sviði bæjarmála í Ölfusi.
Litla-Sandfell í Þrengslum. Námu­vinnsla í fell­inu og fyr­ir­hug­aður útflutn­ingur á efni þaðan frá Þor­láks­höfn hefur valdið styr á sviði bæj­ar­mála í Ölfusi. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn Ölfuss segja ekki koma til greina að það efni sem fyr­ir­hugað er að vinna úr fjall­inu Litla-Sand­felli í Þrengslum og flytja úr landi frá Þor­láks­höfn, verði fært um Þrengsla­veg og Þor­láks­hafn­ar­veg í almennri umferð.

„Ekki kemur til greina að efni verði flutt frá námum eftir almenna þjóð­vega­kerf­inu. Finna þarf aðrar leiðir svo sem blöndu af námu­vegum og færi­böndum,“ segir í bókun sjálf­stæð­is­manna, sem fara með hreinan meiri­hluta í bæj­ar­stjórn­inni.

Í bókun tveggja nýrra bæj­ar­full­trúa flokks­ins segir auk­in­heldur að ef ekki verði hægt að upp­fylla þá „sjálf­sögðu kröfu að flutn­ingur efnis fari ekki um hið almenna þjóð­vega­kerfi“ verði verk­efn­inu sjálf­hætt.

Ekkert fjallað um námuvegi eða færibönd í umhverfismatsskýrslu

Umhverf­is­mats­skýrsla vegna fyr­ir­hug­aðrar námu­vinnslu í Litla-Sand­felli á vegum félags­ins Eden Mining liggur frammi til umsagnar hjá Skipu­lags­stofnun þessa dag­ana. Mögu­legir námu­vegir og færi­bönd úr Þrengslum niður í Þor­láks­höfn eru ekki nefndir einu orði í skýrsl­unni, heldur er gengið út frá því að keyrt verði með efnið úr Þrengslum. Sveit­ar­fé­lagið Ölfus gerði enga kröfu um að mögu­leg umhverf­is­á­hrif námu­vega eða færi­banda yrðu tekin til skoð­unar í umhverf­is­mats­skýrsl­unni.

Samkvæmt skýrsl­unni má gera ráð fyrir að alls 33.350 vöru­bíla­ferðir verði farnar á ári hverju á milli námunnar og Þor­láks­hafnar, eða 222 ferðir á dag fram og til baka, að því gefnu að ekið verði með efni 300 daga á ári. Þetta sam­svarar um 9,7-13,4 pró­senta aukn­ingu umferðar um veg­kafl­ann sem um er að ræða.

[adspot]

Rúmlega fjórtán kíló­metra leið er frá Litla-Sand­felli og niður að höfn­inni í Þor­láks­höfn, þar sem fyr­ir­tækið Heidel­berg Cement, þýskur iðn­risi sem er með starf­semi víða um heim og er meiri­hluta­eig­andi í íslenska félag­inu Horn­steini sem m.a. rekur BM Vallá og Björgun, hefur fengið úthlut­aðri alls 49 þús­und fer­metra lóð í grennd við höfn bæj­ar­ins til vinnslu efn­is­ins.[links]

Styr hefur verið um þessi mál á bæj­ar­mála­svið­inu í Ölfusi und­an­farnar vikur og full­trúar minni­hlut­ans hafa sett fram gagn­rýni á áformin.

Í bókun sem bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn lagði fram á fund­inum síð­asta fimmtu­dag segir að nán­ast ekk­ert af því sem fram hafi komið í máli full­trúa minni­hlut­ans eigi „stoð í veru­leik­anum“.

Meiri­hlut­inn segir sömu­leiðis að engar ákvarð­anir hafi verið teknar, málið sé ein­göngu á umræðu­stigi og ekki sé talin ástæða til þess, að svo stöddu, að hverfa frá sam­tali við Heidel­berg.

Minnihlutinn efast um gildi verkefnisins fyrir atvinnulífið

Gunn­steinn R. Ómarsson, sem var bæj­ar­stjóri í Ölfusi árin 2013-2018, er nú orð­inn vara­maður í bæj­ar­stjórn­inni fyrir hönd B-lista Fram­fara­sinna. Í bókun sem hann lagði fram á fund­inum fyrir hönd minni­hluta bæj­ar­stjórnar, B-lista og H-lista, sagði að ekki ætti að halda áfram með verk­efnið fyrr en íbúar væru búnir að fá grein­ar­góða og gagn­rýnda kynn­ingu, ekki aðeins frá fram­kvæmd­ar­að­ila heldur öðrum og ólíkum hags­muna­að­ilum.

„Það er ljóst að það eru a.m.k. tvö ár síðan sam­starf sveit­ar­fé­lags­ins og þess­ara aðila hófst með vilja­yf­ir­lýs­ingu þar sem sér­stak­lega var kveðið á um að á und­ir­bún­ings­tíma úthluti sveit­ar­fé­lagið ekki öðrum aðilum til­greindar lóðir nærri hafn­ar­svæð­inu sem fyr­ir­hugað er að félagið nýti undir bygg­ingar sem það þarf vegna starf­semi sinnar. Nú hefur þessum lóðum verið úthlutað, umhverf­is­mats­skýrslan liggur fyrir hjá Skipu­lags­stofnun til umsagnar og ef ekki þykir ástæða til að hafa sam­fé­lagið með í áfram­hald­andi ákvörð­un­ar­töku hvenær þá?“ sagði í bókun minni­hlut­ans.

Minni­hlut­inn sagði einnig að skoða þyrfti málið í stærra sam­hengi, t.d. í sam­bandi við fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á atvinnu­starf­semi við höfn­ina í Þor­láks­höfn.

„Gert er ráð fyrir 60-80 störfum í Heidel­berg verk­efn­inu sem tekur upp allar lausar lóðir við höfn­ina eða um 50.000 fm. lands og 25 ha. svæðis sem er undir í Þrengsl­unum. Sem sagt mjög fá störf m.v. upp­töku lands, þar sem gæða­lóðir við höfn­ina eru af skornum skammti,“ sagði í bókun minni­hlut­ans í bæj­ar­stjórn­inni.

Báðust afsökunar á því að hafa samþykkt lóðaúthlutun

Tveir full­trúar B-lista Fram­fara­sinna sem eiga sæti í skipu­lags­ráði sveit­ar­fé­lags­ins greiddu atkvæði með lóða­út­hlut­un­inni til Heidel­berg Cement á fundi fyrr í sumar. Fyrir rúmri viku síðan báð­ust full­trú­arnir hins vegar afsök­unar á því, í aðsendri grein sem þær birtu í stað­ar­miðl­inum Hafn­ar­fréttum.

„Margur kann að hugsa að þessi grein sé skrifuð af pressu frá sam­flokks­mönnum, H-list­anum eða vegna umræð­unnar í sam­fé­lag­inu en það er svo sann­ar­lega ekki málið. Þeir sem standa okkur næst vita að svo er ekki. Málið búið að liggja þungt á okkur enda var okkur strax ljóst að við gerðum mis­tök. En til að læra af mis­tök­unum þurfum við að horfast í augu við þau og við­ur­kenna þau,“ sögðu þær Hrönn Guð­munds­dóttir og Hrafn­hildur Hlín Hjart­ar­dóttir í grein sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár