Ný náma í Þrengslum: 222 vörubílaferðir á dag

Til að flytja Litla-Sandfell úr landi, mulið og til­búið í sem­ent, þyrftu vöru­flutn­inga­bílar að aka 16 ferðir á klukku­stund milli námunnar og Þor­láks­hafnar ef áform fyr­ir­tæk­is­ins Eden Mining verða að veru­leika. Kötlu­vikri yrði að hluta ekið sömu leið.

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leitahrauni í Þrengslunum.
Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengsl­unum. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Fyr­ir­tækið Eden Mining ehf. vill fara í stór­tækan námu­gröft í Litla-Sand­felli í Þrengslum og flytja mik­inn meiri hluta jarð­efn­anna, um 80 pró­sent alls fjalls­ins, um fjórtán kíló­metra leið til Þor­láks­hafnar og þaðan með skipum til Rott­er­dam í Hollandi. Nýjar þrí­vídd­ar­rann­sóknir fyr­ir­tæk­is­ins benda til að vinna megi úr fjall­inu átján milljón rúmmetra af efni. Það stendur til að gera á þremur ára­tugum og að þeim tíma liðnum yrði Litla-Sandfell, eitt kenni­leit­anna við Þrengsla­veg, horfið.

Til að flytja um 80 pró­sent af þessu efni til Þor­láks­hafnar líkt og ráð­gert er, þyrftu stórir vöru­flutn­inga­bílar að aka 33.350 ferðir á ári – og svo aftur til baka að námunni. Sam­an­lagt 66.600 ferðir á 300 dögum. Þetta gerir 222 vöru­bíla­ferðir fram og til baka á dag. Séu flutn­ingar frá kl. 7-21 eru þetta um sextán ferðir á klukku­stund.

[adspot]

Mikil námu­vinnsla er einnig fyr­ir­huguð af þýsku fyr­ir­tæki á Mýr­dals­sandi, líkt og Kjarninn greindi frá í röð frétta á síð­asta ári. Vöru­bílar myndu aka til og frá þeirri námu og til Þor­láks­hafnar, um 180 kíló­metra leið, á 7-8 mín­útna fresti allan sól­ar­hring­inn, ef sú fram­kvæmd yrði að veru­leika. Allir þessir flutn­inga­bílar, úr vik­ur­námunni á Mýr­dals­sandi og námunni úr Litla-Sand­felli sem og fleiri námum sem eru á svæð­inu, myndu aka saman um 2,5 kafla af leið­inni.

Eden Mining ehf. er í eigu Kristins Ólafs­sonar og Eiríks Ingvars Ingv­ars­sonar. Fyr­ir­tækið starf­rækir einnig námu í Lamba­felli og á Hrauns­andi. Litla-Sandfell er á jörð­inni Breiða­ból­stað sem er í eigu Kirkju sjö­unda dags aðventista og hefur fyr­ir­tækið gert lang­tíma­samn­ing við trú­fé­lagið um námuna.

[links]Heidel­berg Cement Pozzolanic ehf. hefur skuld­bundið sig til að kaupa efnið úr námunni og vinna það frekar í verk­smiðju sem fyr­ir­tækið hyggst reisa á lóð sem það hefur fengið vil­yrði fyrir við norð­an­vert hafn­ar­svæðið í Þor­láks­höfn. Þaðan yrði það svo flutt með skipum til Hollands. Skipin sem notuð yrðu til útflutn­ings eru ann­ars vegar sem­ents­skip, 18-20 þús­und tonn að stærð, og hins vegar „bulk“-skip, 30-50 þús­und tonn að stærð.

Eden Mining ehf. hefur nú gefið út umhverf­is­mats­skýrslu á fyr­ir­hug­aðri námu­vinnslu í Litla-Sand­felli. Í mats­skýrslu, sem Kjarninn fjall­aði ítar­lega um fyrr á árinu, kom fram að til stæði að nema 15 millj­ónir rúmmetra af jarð­efnum en nú hljóðar áætl­unin upp á þrjár millj­ónir rúmmetra til við­bótar. Unnir yrðu því allt að 625 þús­und rúmmetrar á ári í stað 500, á þrjá­tíu ára tíma­bili eða þar til fjallið er horfið.

Í mats­á­ætlun var jafn­framt gert ráð fyrir því að 60 pró­sent efn­is­ins yrði sent erlendis og 40 pró­sent nýtt hér á landi. Í apríl fór hins vegar fram prufu­gröftur og rann­sókn var gerð á efn­inu erlendis. „Nið­ur­stöður þeirra rann­sóknar eru að gæði efn­is­ins eru betri en áður var talið og má áætla að allt að 80 pró­sent efn­is­ins verði flutt út til notk­unar í sem­ent,“ segir í umhverf­is­mats­skýrsl­unni.

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengslum, í um 0,5 kíló­metra fjar­lægð frá Þrengsla­vegi. Það er talið hafa mynd­ast í gosi undir jökli fyrir um 5.200 árum. Það er því að mestu úr móbergi, berg­teg­und sem er fágæt á heims­vísu en algeng á Íslandi. Móberg þykir, að því er fram kemur í skýrsl­unni, heppi­legur stað­geng­ill flug­ösku sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent. Flugaska verður til við brennslu kola en stefnt er á að loka kola­verum í Evrópu á næstu árum.

Stöðugir þungaflutningar um Þrengslaveg

Árið 2017 hóf Smyril Line Cargo vöru­flutn­inga til Þor­láks­hafnar með frakt­flutn­inga­skipum og í dag gerir fyr­ir­tækið út þrjú flutn­inga­skip. Þessum vöru­flutn­ingum fylgja stöðugir þunga­flutn­ingar um Þrengsla­veg alla vik­una þar sem lang­mest af vör­unum sem ber­ast til lands­ins fara á höf­uð­borg­ar­svæðið. Einnig er flutt til Þor­láks­hafnar jarð­efni frá vik­ur­námum við Heklu og mögu­lega verður í fram­tíð­inni fluttur þangað Kötlu­vikur frá Mýr­dals­sandi.

Ef námu­vinnsla Eden Mining í Litla-Sand­felli yrðu að veru­leika myndi umferð um Þrengsla­veg aukast um 9,7-13,4 pró­sent á þeirri leið sem efn­is­flutn­ing­arnir færu um. Mestir yrðu þunga­flutn­ingar á veg­kafla norðan við Þor­láks­höfn, skammt frá höfn­inni. „Það er mjög stuttur veg­kafli, og á þeim hluta leið­ar­innar þar sem umferðin er hvað hæg­ust, sem sam­legð­ar­á­hrifa gætir,“ segir í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining sem metur því sam­legð­ar­á­hrif með öðrum jarð­efna­flutn­ingum óveru­lega nei­kvæð.

Hvað áhrif á jarð­mynd­anir varðar telur fyr­ir­tækið að þau yrðu nokkuð nei­kvæð þótt bent sé á að vissu­lega myndi Litla-Sandfell hverfa og að „ekki sé hægt að horfa fram hjá því“ að móberg sé ekki algengt á heims­vísu.

„Við að fjar­lægja Litla-Sandfell hverfur áber­andi kenni­leiti við Þrengsla­veg,“ segir i í skýrsl­unni en þar segir einnig að lands­lagið „sem heild“ muni þó ekki breyt­ast mikið því móbergs­fjöllin Geita­fell, Kross­fjöll, Lit­limeit­ill og Lamba­fell muni „áfram ramma inn mosa­vaxið Leita­hraun. En það mun vanta minnsta fellið“. Litla-Sandfell er í miðj­unni og umkringt fyrr­nefndum fjöllum, „svo sjón­deild­ar­hring­ur­inn og umhverfið allt í kring verður áfram óbreytt“.

Vegfarendur munu „vonandi aðlagast breytingunni“

Að efn­is­töku lok­inni mun sárið í hraun­inu sjást að ein­hverju leyti þó það yrði nið­ur­grafið til að lág­marka ásýnd­ar­á­hrifin. Fyrir þá sem þekkja til yrði mikil breyt­ing þegar Litla-Sandfell hyrfi, „það mun þó ger­ast hægt yfir nokkra ára­tugi svo veg­far­endur von­andi aðlag­ast breyt­ing­unni“. Fyrir þá sem koma nýir á svæðið, t.d. erlendir ferða­menn, „verður erfitt að sjá fyrir sér að heilt fell hafi áður verið þar sem Litla-Sandfell stóð, þeir munu áfram sjá mun stærri móbergs­fjöll allt í kring sem standa upp úr hraun­breið­unni og ætti það ekki að hafa mikil áhrif á upp­lifun af lands­lag­inu þó að Litla-Sandfell sé ekki á sínum stað“.

Eden Mining við­ur­kennir þó í umhverf­is­mats­skýrslu sinni að það að fjar­lægja Litla-Sandfell muni hafa „tölu­verð áhrif á ásýnd frá Þrengsla­vegi og næsta nágrenni“. Fellið sé þó ekki sýni­legt langt að og lands­lags­heildin yrði áfram sú sama, „bara einu móbergs­felli færra“. Það sé þó ekki hægt að horfa fram hjá því að „þetta er mikið inn­grip við fjöl­far­inn þjóð­veg“ og metur fyr­ir­tækið áhrif á ásýnd og lands­lag tals­vert nei­kvæð.

„Það er ekki að ástæðu­lausu að Litla-Sandfell var valið í fyr­ir­hug­aða efn­is­töku,“ stendur í skýrslu Eden Mining. „Fyrir utan að hafa efni af ásætt­an­legum gæðum, þá er það gróður- og líf­laust og áhrif á nátt­úr­una eru afar tak­mörkuð. Það er auk þess fjarri allri byggð og lítið er um fólk á ferli í nágrenn­inu. Akst­ursleiðin til næstu hafnar fer jafn­framt um óbyggt svæði svo flutn­ing­arnir hafa óveru­leg áhrif. Af þessum sökum eru áhrif á flesta umhverf­is­þætti metin óveru­leg.“

Allir geta kynnt sér umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining ehf. og veitt umsögn um fram­kvæmd­ina og umhverf­is­mat hennar. Umsagnir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 3. októ­ber 2022 til Skipu­lags­stofn­unar eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ölfuss

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár