Setja spurningamerki við að fjarlægja fjall „í heilu lagi úr íslenskri náttúru“

Nátt­úru­fræði­stofnun telur að skoða þurfi frá ýmsum hliðum þá stað­reynd að fyr­ir­hugað sé að „fjar­lægja heilt fjall úr nátt­úru Íslands og flytja úr landi“. Fram­kvæmda­að­il­inn Eden Mining segir Litla-Sandfell „ósköp lítið“ og minni á „stóran hól“.

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leitahrauni í Þrengslunum. Í því hefur verið starfrækt náma frá árinu 1965 en vinnslan hefur verið lítil undanfarin ár.
Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengsl­unum. Í því hefur verið starf­rækt náma frá árinu 1965 en vinnslan hefur verið lítil und­an­farin ár. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

„Fyrir utan þau veru­legu óaft­ur­kræfu áhrif sem fram­kvæmdin mun hafa á jarð­minjar með hátt vernd­ar­gildi og lands­lag, vakna upp grund­vall­ar­spurn­ingar um tákn­ræna og sið­ferð­is­lega þýð­ingu þess að áber­andi fjall sé fjar­lægt í heilu lagi úr íslenskri nátt­úru.“

Þetta kemur fram í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands um mats­á­ætlun Eden Mining vegna fyr­ir­hug­aðrar efn­is­töku úr Litla-Sand­felli í Þrengslum. Áætlanir fyr­ir­tæk­is­ins gera ráð fyrir að vinna allt fjallið, um 15 millj­ónir rúmmetra, á þrjá­tíu árum. Megin þorri efn­is­ins yrði fluttur út og nýttur til sem­ents­fram­leiðslu í stað flug­ösku sem fer að verða af skornum skammti með áform­uðum lok­unum kola­vera í Þýska­landi og víðar.

[adspot]

Álit Skipu­lags­tofn­unnar á mats­á­ætl­un­inni, sem er eitt skref í umhverf­is­mati fram­kvæmda, liggur fyrir. Stofn­unin bendir á mörg atriði sem hún telur nauð­syn­legt að gerð verði ítar­leg grein fyrir í umhverf­is­mats­skýrslu, m.a. áhrif námu­vinnsl­unnar á lands­lag og ásýnd og á ferða­þjón­ustu og úti­vist.

[links]Fyr­ir­huguð efn­istaka er á mörkum fjar­svæðis og grann­svæðis vatns­verndar. Grunn­vatns­straumur svæð­is­ins liggur til suð­urs þar sem eru vatns­ból íbúa Þor­láks­hafnar og vatns­taka í tengslum við ýmis­konar fyr­ir­tæki, s.s. átöpp­un­ar­verk­smiðja Iceland Glacial. Skipu­lags­stofnun segir brýnt að gerð verði grein fyrir því hvaða þættir séu lík­leg­astir til að hafa nei­kvæð áhrif á grunn­vatn og hvaða ráð­staf­anir verði við­hafðar til að koma í veg fyrir mengun þess. Einnig þurfi að gera grein fyrir losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, þ.m.t. vegna flutn­inga til meg­in­lands Evrópu og meta áhrif fram­kvæmdar á lofts­lag.

Eden Mining ehf. í eigu Kristins Ólafs­sonar og Eiríks Ingvars Ingv­ars­sonar. Fyr­ir­tækið starf­rækir einnig námu í Lamba­felli og á Hrauns­andi. Litla-Sandfell er á jörð­inni Breiða­ból­stað sem er í eigu Kirkju sjö­unda dags aðventista. Söfn­uð­ur­inn á einnig landið þar sem Rauf­ar­hóls­helli er að finna. Eden Mining hefur skrifað undir samn­ing um að selja jarð­efnin úr námunni til Horn­steins ehf. sem tæki við því til vinnslu í verk­smiðju í Þor­láks­höfn. Sú verk­smiðja mun þurfa að fara í gegnum sjálf­stætt umhverfis- og skipu­lags­ferli.

Í nálægð við Litla-Sandfell eru þrjú svæði á nátt­úru­minja­skrá: Eld­borgir við Lamba­fell, Eldborg undir Meitlum og Rauf­ar­hóls­hellir. „Þetta eru allt vin­sæl úti­vist­ar­svæði með mikil tæki­færi til fram­tíðar fyrir ferða­þjón­ustu,“ segir í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar sem bendir enn­fremur á að Leita­hraun sem umlykur fjallið sé nútíma­hraun sem njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Í umsögn stofn­un­ar­innar er svo fjallað um þá miklu ásókn sem orðin er í efni úr móbergs­mynd­unum hér á landi. Megi þar m.a. nefna nálægar efn­is­námur við Litla-Sandfell eins og Lamba­fell og Ing­ólfs­fjall „en gíf­ur­lega miklu magni af efni hefur verið mokað úr þeim fjöllum á síð­ustu árum“.

Ekki sé æski­legt að til við­bótar við núver­andi efn­is­tökur hér á landi verði „farið í að moka burt heilu móbergs­fjöll­unum til útflutn­ings. Slík efn­istaka mun valda var­an­legum og óaft­ur­kræfum breyt­ingum á jarð­mynd­unum sem hafa hátt vernd­ar­gildi, ásamt breyt­ingum á lands­lagi. Litla-Sandfell stendur stakt í nálægð við Þrengsla­veg. Þrátt fyrir að vera fremur lítið er það áber­andi kenni­leiti í lands­lag­inu og mjög aðgengi­legt t.d. göngu­fólki“.

Í svörum Eden Mining við umsögn­inni, sem birt eru á vef Skipu­lags­stofn­unar, segir að Litla-Sandfell blasi vissu­lega við veg­far­endum á um fimm kíló­metra kafla á Þrengsla­vegi en það megi deila um hversu áber­andi það sé í íslenskri nátt­úru og „lík­lega geti aðeins „örlít­ill hluti lands­manna“ bent á það á korti. Litla-Sandfell standi undir nafni, „það er ósköp lítið og minnir frekar á stóran hól“.

Nátt­úru­fræði­stofnun telur það áhyggju­efni hvernig efn­istaka á Íslandi sé að þró­ast út í útflutn­ing á hrá­efni í stórum stíl, s.s. hrá­efni fyrir sem­ents­fram­leiðslu. Horfa þurfi heild­stætt á efn­is­töku og efn­is­flutn­inga og sam­legð­ar­á­hrif mis­mun­andi fyr­ir­tækja.

Segja áhrif á náttúruna verða mjög lítil

Í svörum Eden Mining við þessu er minnt á að í ára­tugi hafi verið flutt inn sem­ent, málmar og önnur efni frá öðrum löndum sem hafi stundað námu­gröft og jarð­efna­vinnslu. „Nú er komið að okkur að leggja eitt­hvað að mörkum og mun þetta fram­lag Íslend­inga hjálpa til við að minnka kolefn­islosun í heim­inum. Við getum ekki ætl­ast til að aðrar þjóðir séu hvað eftir annað að taka á sig höggið og umhverfis­kostn­að­inn sem að neysla okkar veldur og snúa svo við þeim baki þegar kemur að því að leggja eitt­hvað til á móti.“

Náman mun að sögn fram­kvæmda­að­ila raska mjög litlum gróðri og hafa lítil áhrif á fugla og annað dýra­líf. „[Á]hrif á nátt­úr­una eru mjög lítil, aðal­á­hrifin eru hug­lægt verð­mæti okkar mann­fólks sem fel­ast í ásýnd fells­ins.“

[adspot]

Arnar Þor­valds­son, annar tveggja ein­stak­linga sem skil­aði athuga­semd við áformin, segir að með þeim yrði nátt­úran skert að óþörfu. For­svars­menn Eden Mining taka ekki undir það og svara: „Fólkið sem mun búa í steyptu hús­unum sem búin eru til úr sem­enti eða fólkið sem keyrir yfir steypta brú er lík­lega ósam­mála því að þessi fram­kvæmd sé að óþörfu.“ Ef Íslend­ingar vilji „bara þiggja en ekki leggja neitt af mörkum og ætlist til að allar námur og efn­is­flutn­ingar fari fram í öðrum löndum á meðan við njótum afrakst­urs­ins þá kall­ast það græn­þvottur og útflutn­ingur á mengun“.

Krafa Landverndar kjánaleg

Í umsögn Land­verndar segir m.a. að ein­göngu yrði um fjár­hags­legan ávinn­ing fram­kvæmda­að­ila að ræða en engan sam­fé­lags­legan ávinn­ing „nema síður sé“. Í ljósi þess verði mat á umhverf­is­á­hrifum að vera mjög ítar­legt til að auð­velda leyf­is­veit­anda að taka upp­lýsta ákvörðun. Því verði Skipu­lags­stofnun að gera mun rík­ari kröfur heldur en settar eru fram í drögum Eden Mining að mats­á­ætlun.

„Skipu­lags­stofnun er hlut­laus opin­ber stofnun sem fram­fylgir lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda og eiga allir að fá sömu með­ferð,“ segir í svörum for­svars­manna Eden Mining. „Að krefj­ast þess að Skipu­lags­stofnun setji ein­hverjar við­bót­ar­kröfur á íslenskt fyr­ir­tæki af því að það á fjár­hags­legra hags­muna að gæta (allir sem fram­kvæma umhverf­is­mat eiga fjár­hags­legra hags­muna að gæta) er bæði kjána­leg krafa en að sama skapi alvar­leg þar sem allir eru jafnir fyrir lögum og hinu opin­bera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingariðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár