Framleiðni í byggingarstarfsemi vaxið hratt

Fram­leiðni­vöxtur í bygg­ing­ar­starf­semi hér á landi hefur verið tölu­vert hrað­ari en að með­al­tali á hinum Norð­ur­lönd­unum síð­ustu árin. Íslensk fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi hafa aukið fram­leiðni um tæp 40 pró­sent frá árinu 2008.

Fram­leiðni vinnu­afls í bygg­ing­ar­starf­semi hér á landi hefur auk­ist tals­vert umfram með­al­þróun hag­kerf­is­ins í heild síð­ustu tíu ár. Íslensk fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi hafa aukið fram­leiðni sína um tæp 38 pró­sent frá árinu 2008 sem er tölu­vert hrað­ari vöxtur en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Vöxturinn hraðari hér á landi

Fram­leiðni er mæli­kvarði á afköst og þau verð­mæti sem skap­ast fyrir hverja unna stund. Í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs kemur fram að fram­leiðnivöxtur­inn hér á landi hafi verið töluvert hrað­ari en að með­al­tali á hinum Norðurlöndunum síðustu árin. Á meðan íslensk fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi hafa aukið fram­leiðni sína um tæp 38 pró­sent frá árinu 2008, hefur sam­svar­andi aukn­ing í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finn­landi ein­ungis verið tæp 3 pró­sent að með­al­tali.

Í skýrsl­unni segir að bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn á Íslandi sé einnig sérstakur að því leyti að fram­leiðni­aukn­ing innan hans hefur verið hrað­ari en fram­leiðni­þróun hag­kerf­is­ins alls.

Á hinn bóginn hafa fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi á hinum Norðurlöndunum aukið fram­leiðni sína hægar en önnur fyr­ir­tæki að með­al­tali þar.

Að mati Íbúða­lán­sjóðs skýrist þessi mikli munur í fram­leiðni­vexti milli Íslands og hinna Norð­ur­land­anna á síðustu árum að ein­hverju leyti vegna þess að hag­kerfi þeirra hefur mögulega verið í meira jafn­vægi á tímabil­inu og hér hafa verið miklar verð­hækk­anir í upp­sveifl­unni á síðast­liðnum árum.

Framleiðni minnkaði með aukinni starfsemi

Hinn 1. jan­úar 2010 bjuggu 317.600 á Íslandi en 1. jan­úar á þessu ári var fjöld­inn kom­inn upp í 356 þús­und. Á þessum átta ára tíma hefur lands­mönnum því fjölgað um tæp­lega 40 þús­und manns. Þar af hefur vinnu­mark­að­ur­inn stækkað um 20 þús­und ein­stak­linga og telur hann nú um 206 þús­und. Í tölum Hagstofu Íslands hefur mátt sjá að stór hluti nýrra starfa hefur verið í ýmsum störfum innan ferða­þjón­ust­unnar og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Í bygg­ing­ar­geir­anum hafa vinnu­stundir verið yfir með­al­tali frá árinu 2015, en nýtingin náði hámarki árið 2017. Í fyrra minnk­aði hún svo og voru með­al­vinnu­stundir starfs­manna í bygg­ing­ar­iðn­aði sam­bæri­legar með­al­vinnu­stundum hag­kerf­is­ins alls.

Samhliða því að hver starfs­maður í bygg­ing­ar­iðn­aði bætti við sig vinnu­stundum hefur störfum í grein­inni fjölgað á hverjum ársfjórðungi síðan um haustið árið 2012. Mest var fjölgunin árið 2016, en dregið hefur jafnt og þétt úr henni síðan þá.[adspot]

Eftir hraðan vöxt í fram­leiðni vinnu­afls í bygg­ing­ar­starf­semi hér á landi á und­an­förnum árum tók fram­leiðnin skarpa dýfu árið 2017. Hún lækk­aði um tæp 5 pró­sent á einu ári. Þessi lækkun átti sér stað á sama tíma og starfsfólki í bygg­ing­ar­iðn­aði tók að fjölga og hver starfs­maður fór að vinna meira.

Í skýrsl­unni segir að þessar hreyf­ingar séu í sam­ræmi við kenn­ingar um minnk­andi jað­ar­fram­leiðni vinnu­afls. Stóraukn­ing í íbúðar­upp­bygg­ingu á árunum 2016 til 2017, sem var keyrð áfram af fleiri ráðningum og meiri vinnu á hvern starfs­mann, gæti að mati Íbúða­lána­sjóðs hafa leitt til minnk­andi fram­leiðni, þar sem nýir starfs­menn og starfs­menn í yfir­vinnu eru mögulega ekki jafnafkasta­miklir og aðrir.

Lækkunin í fram­leiðni varði þó stutt en í fyrra jókst fram­leiðni vinnu­afls í grein­inni á nokkurn veg­inn sama hraða í öðrum atvinnu­greinum.

Þrátt fyrir hraðan vöxt í fram­leiðni vinnu­afls hérlendis er heild­ar­fram­leiðni Noregs Dan­merkur og Svíþjóðar enn mun meiri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár