Litla-Sandfell mun hverfa

„Við efn­is­tök­una mun ásýnd fells­ins óhjá­kvæmi­lega breyt­ast og að lokum mun fjallið hverfa,“ segir í mats­á­ætlun Eden Mining um áform­aða efn­is­töku úr Litla-Sand­felli í Þrengslum í Ölfusi. Stærstur hluti fjalls­ins yrði fluttur úr landi.

Litla-Sandfell er skammt frá Þrengslavegi.
Litla-Sandfell er skammt frá Þrengsla­vegi. Mynd: Úr matsáætlun Eden Mining

Fyr­ir­tækið Eden Mining ehf. áformar að vinna 15 millj­ónir rúmmetra af jarð­efni úr Litla-Sand­felli við Þrengsla­veg í Ölfusi sem yrði að hluta nýtt í fram­kvæmdir á svæð­inu og að hluta sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent.

Miðað við það sem fram kemur í mats­á­ætlun hinnar fyr­ir­hug­uðu námu­vinnslu myndi fjallið hverfa á um þrjá­tíu árum. Fyr­ir­tækið, sem er í eigu Kristins Ólafs­sonar og Eiríks Ingvars Ingv­ars­sonar, starf­rækir einnig námu í Lamba­felli og á Hrauns­andi. Litla-Sandfell er á jörð­inni Breiða­ból­stað sem er í eigu Kirkju sjö­unda dags aðventista. Hefur Eden gert lang­tíma­leigu­samn­ing við eig­end­urna.

[adspot]

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengsl­unum. Í því hefur verið starf­rækt náma frá árinu 1965 en vinnslan hefur verið lítil und­an­farin ár. Efnið úr námunni er basalt túff og hefur verið notað í fram­kvæmdir á svæð­inu und­an­farna ára­tugi, t.d. Þrengsla­veg á 7. ára­tug síð­ustu aldar, Suð­ur­strand­ar­veg og almennar bygg­ing­ar­fram­kvæmdir í Ölfusi.

Allt umhverfis fjallið er Leita­hraun (Lamba­fells­hraun) sem rann úr gígnum Leiti í aust­an­verðum Blá­fjöllum fyrir um 5.200 árum. Litla-Sandfell rís upp úr þess­ari hraun­breiðu og er líkt og nán­ast öll önnur fjöll í kring úr móbergi. Eldgosið sem mynd­aði Litla-Sandfell náði þó aldrei að brjót­ast í gegnum ísald­ar­jökul­inn og þess vegna er engin grá­grýt­is­hetta í fjall­inu og bergið í því til­tölu­lega veikt.

Til­gangur efn­is­tök­unnar í Sand­felli er í mats­á­ætl­un­inni sagður vera að nýta efnið að mestu sem stað­göngu­efni flug­ösku í sem­ents­fram­leiðslu. „Til­gangur verk­efn­is­ins snýr líka að lækkun á kolefn­is­spori bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins á Íslandi og í Norður-Evrópu,“ segir í mats­á­ætl­un­inni. Síðustu ár og ára­tugi hefur notkun íauka, einkum flug­ösku úr kola­verum, auk­ist mikið. „Með nýjum áherslum í orku­fram­leiðslu í Evrópu eru þó blikur á lofti um öflun [flug­ösku],“ segir í skýrsl­unni. Þýska­land hafi t.d. ein­sett sér að loka öllum kola­verum fyrir 2038 og þar með sé búið að fjar­lægja helstu upp­sprettu íauka í sem­ent.

[links]Til að kom­ast hjá því að sem­ents­fram­leið­endur noti efni sem hafi enn meiri kolefn­is­spor en flugaskan þurfi „að fylla upp í þetta skarð sem að lokun kola­ver­anna skilur eftir sig með ein­hverjum öðrum íaukum, t.d. með muldu móbergi“. Mulda móbergið, segir í mats­á­ætl­un­inni, er ekki ætlað sem við­bót á sem­ents­mark­að­inn eða til þess að auka heild­ar­fram­leiðslu, „heldur kemur það í stað efna sem notuð eru við fram­leiðslu á sem­enti í óum­hverf­is­vænna fram­leiðslu­ferli“.

Sand­fells­náman er um 13 kíló­metra fjar­lægð frá Þor­láks­höfn og í um 0,5 km fjar­lægð frá Þrengsla­vegi. Efnið yrði flokkað í tvær stærðir, 0-10 mm og 10-100 mm. Meiri­hluta fínna efn­is­ins yrði keyrt jafn­óðum til Þor­láks­hafnar, þar sem Horn­steinn ehf. hefur skuld­bundið sig til að kaupa það og vinna til útflutn­ings. Grófara efni yrði haug­sett og unnið eftir þörfum í fram­kvæmdir á svæð­inu. Áætlað er að 60 pró­sent efn­is­ins verði fínt og 40 pró­sent gróf­ara.

Byrjað yrði að vinna í fell­inu vest­an­verðu svo ásýnd þess veg­megin hald­ist óröskuð sem lengst. Miðað við áformin mun náman hins vegar tæm­ast, þ.e. fjallið hverfa, á þrjá­tíu árum. „Þegar fjallið hefur verið fjar­lægt“ yrði farið eftir leið­bein­ingum Vega­gerð­ar­innar varð­andi frá­gang námu­svæða.

Aðal­val­kostur fram­kvæmd­ar­innar, sem kynntur er í mats­á­ætl­un­inni er að vinna 15 milljón rúmmetra í heild­ina. Vinnslu­svæðið yrði þá allt fellið og að efn­is­töku lok­inni yrði það alveg horfið. Val­kostur B er að helm­inga efn­is­tök­una og vinna fellið ein­göngu að vest­an­verðu svo það hverfi ekki alveg og að ásýndin hald­ist að ein­hverju leyti óbreytt frá Þrengsla­vegi. Í þessum val­kosti felst að vinna 8 milljón rúmmetra í heild­ina.

[adspot]

Til að fyr­ir­huguð námu­vinnsla geti farið fram þarf að vinna aðal­skipu­lags­breyt­ingu. Ekkert deiliskipu­lag er heldur til fyrir svæðið en fram­kvæmda­að­ili segir til standa að vinna slíkt í sam­ráði við sveit­ar­fé­lagið.

Eden Mining hefur lagt mats­á­ætlun sína fram til Skipu­lags­stofn­unar sem hluta af umhverf­is­mati fram­kvæmd­anna. Allir geta kynnt sér áætl­un­ina og veitt umsögn. Þær skulu ber­ast Skipu­lags­stofnun eigi síðar en 3. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingariðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár