Úrgangur frá mannvirkjagerð rúmlega tvöfaldast á þremur árum

Frá árinu 2014 til árs­ins 2017 rúm­lega tvö­fald­að­ist úrgangur frá mann­virkja­gerð hér á landi sam­hliða mik­illi upp­bygg­inu í bygg­ing­ar­iðn­aði.

Bygg­ing­ar­iðn­aði fylgir mikil myndun úrgangs og er sá úrgangur að jafn­aði stærsti úrgangs­flokkur landa. Ísland er þar engin und­an­tekn­ing en á síð­ustu árum hefur úrgangur frá mann­virkja­gerð auk­ist gíf­ur­lega, sem og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sam­hliða mik­illi upp­sveiflu í bygg­ing­ar­geir­anum á síð­ustu árum.

62 prósent af úrgangi á Íslandi

[links]Í tölum Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að úrgangur frá mann­virkja­gerð var rúm­lega 873.522 tonn árið 2017 en það er bygg­ingar- og nið­ur­rifsúr­gangur auk óvirks úrgangs. Árið 2014 taldi slíkur úrgangur 364.943 tonn og hefur úrgangur því tvö­fald­ast á þremur árunum.

Þá hefur magn af grófum úrgangi sem berst til mót­töku- og flokk­un­ar­stöðvar Sorpu, sem tekur aðal­lega við úrgangi frá heim­ilum, einnig auk­ist til muna á síð­ustu árum. Grófur úrgangur er til að mynda inn­rétt­ingar, ónýt hús­gögn, gól­f­efni og svo fleiri. Sá úrgangur hefur auk­ist úr 4.600 tonnum árið 2015 í 9.600 tonn árið 2017.[adspot]

Bygg­ingar- og nið­ur­rifsúr­gangur var alls 49 pró­sent af úrgangi á Íslandi árið 2017. Ef óvirkur úrgangur er hins vegar reikn­aður með þá er úrgangur af mann­virkja­gerð 62 pró­sent af heild­ar­úr­gangi Íslend­inga. Óvirkur úrgangur er til að mynda múr­brot, gler og upp­mokstur.

Losun frá byggingariðnaði eykst aftur eftir hrun

Vexti í bygg­ing­ar­iðn­aði hefur ekki ein­ungis fylgt auk­inn úrgangur heldur einnig aukin losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í tölum Hagstofu Íslands má sjá að veru­lega hægð­ist á losun koltví­sýr­ings frá bygg­ing­ar­iðn­aði á árunum eftir hrun. Árið 2013 var losun frá hag­kerfi Íslands vegna bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð alls 135,18 tonn. Fjórum árum síðar var los­unin 189,79 tonn og hafði því auk­ist um 40 pró­sent.

Þá hefur losun met­ans frá bygg­ing­ar­starf­semi auk­ist sam­hliða losun koltví­sýr­ings og var alls 113,56 kílótonn árið 2017 en 80,7 kílótonn árið 2013.

Fyrir liggur að þús­undir bygg­inga munu rísa upp hér á landi á næstu þremur árum og má því búast við áfram­hald­andi aukn­ingu í úrgangs­myndun og losun koltví­sýr­ings.

Hægt að draga úr mengun

Íslensk stjórn­völd hafa sett sér stefnu um myndun úrgangs um landið allt til tólf ára í senn. Markmið stefn­unnar er að draga úr úrgangi og draga þar með úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Auk þess er mark­miðið að bæta nýt­ingu auð­linda, meðal ann­ars með því að leggja áherslu á græna nýsköpun. Núver­andi úrgagns­stefna stjórn­valda, Saman gegn sóun, er stefna stjórn­valda fyrir tíma­bilið 2016 til 2027.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni eru ákveðnir úrgangs­flokkar í brennid­epli á hverju ári og ráð­gert er að verk­efni sem heyri undir þessa flokka verði til úti í sam­fé­lag­inu og á meðan hver flokkur er í for­gangi þá sé mögu­legt að sækja um verk­efna­styrki til ráðu­neyt­is­ins. Grænar bygg­ingar verða árið 2024 í brennid­epli, sam­kvæmt stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni.

Í stefn­unni segir að með því að setja sjálf­bæra bygg­ing­ar­starf­semi í brenni­depil megi því draga úr myndun bygg­ingar– og nið­ur­rifsúr­gangs sem leiðir af sér sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, bætta nýt­ingu auð­linda og minnk­aða dreif­ingu á efnum sem eru skað­leg umhverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingariðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár