Leiguverð hækkar nú meira utan höfuðborgarsvæðisins

Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hækk­aði leigu­verð um 12,9 pró­sent og um 14,5 pró­sent ann­ars staðar á lands­byggð­inni. Leigu­verð í 101 Reykja­vík er þó enn hæst en þar er leigu­verð um 3.000 krónur á fer­metr­ann.

Leigu­verð hækkar nú meira utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en innan þess. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur leigu­verð hækkað um 12,9 pró­sent og um 14,5 pró­sent ann­ars staðar á lands­byggð­inni á milli ára. Leigu­verð er þó enn hæst í 101 Reykja­vík en þar er leigu­verð í þing­lýstum leigu­samn­ingum um 3000 krónur á fer­metr­ann. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði leigu­verð um 6,1 pró­sent á milli ára. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs.

Fermetraverð leigu í 101 Reykjavík enn hæst

Póstnúmerið 101 Reykjavík er það póstnúmer á landsvísu þar sem fer­metra­verð í þinglýstum leigu­samn­ingum er hæst eða hátt í 3.000 krónur að með­al­tali á fyrstu níu mánuðum ársins. Póstnúmerið 107, sem nær til Vest­ur­bæjar Reykjavíkur, er ekki langt undan en þar var fer­metra­verð um 4 pró­sent lægra en í 101 Reykjavík á sama tímabili. Í 200 Kópavogi var verðið um 10 pró­sent lægra en í mið­borg­inni og í 220 Hafn­ar­firði var það um 21 pró­sent lægra. Á Akureyri, Selfossi og í Reykja­nesbæ var með­al­fer­metra­verð um eða undir 2.000 krónum eða um þriðj­ungi lægra en í 101 Reykjavík.

Meðalsölutími á sérbýli orðinn svipaður og á fjölbýli

Sérbýli hækkað meira en fjöl­býli á síð­ustu 12 mán­uðum. Á milli ára hafa sér­býli hækkað um 4,4 pró­sent en fjöl­býli 3,4 pró­sent. Íbúðir í sér­býli eru nú svipað lengi á sölu eins og íbúðir í fjöl­býli en á und­an­förnum árum hefur að jafn­aði tekið lengri tíma að selja sér­býli en fjöl­býli. Töluvert fleiri íbúðir eru til sölu í fjölbýli en sérbýli en hlutur fjölbýlis virð­ist hafa auk­ist smátt og smátt frá árinu 2013 þegar hlutur þess var um 65 pró­sent en það er nú um 75 pró­sent allra íbúða sem settar eru á sölu.

Hagnaðarhlutfall að meðaltali hærra í byggingariðnaði en öðrum greinum

Rekstr­ar­tekjur í bygg­ing­ar­iðn­aði voru um 360 millj­arðar í fyrra en afkoma bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins hefur batnað hratt á und­an­förnum árum. Það tók það bygg­ing­ar­iðn­að­inn um sex ár í kjölfar fjármálakrepp­unnar að ná aftur rekstr­ar­fram­legð á par við með­al­tal fyr­ir­tækja hérlendis sam­kvæmt skýrslu íbúð­ar­lána­sjóðs.

Á árinu 2016 var fram­legð af rekstri fyr­ir­tækja innan bygg­ing­ar­geirans síðan orðin meiri en í við­skipta­hag­kerf­inu í heild og á síðasta ári jókst það bil enn frekar. 

Síðast­liðin tvö ár hafa fyr­ir­tæki í bygg­ing­ar­starf­semi skilað að með­al­tali meiri hagn­aði út frá hverjum ein­staka starfs­manni sínum en aðrar atvinnu­greinar almennt. Sem hlut­fall af rekstr­ar­tekjum er hagn­aður fyrir fjár­magnsliði nú hærri í bygg­ing­ar­iðn­aði en öðrum greinum hag­kerf­is­ins en var lægri árin 2009-2015. Hagnaður fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­iðn­aði fyrir fjár­magnsliði var 41 millj­arður króna í fyrra sem er tvö­falt meira en árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingariðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár