Þýskur sementsrisi fær 49 þúsund fermetra undir starfsemi í Þorlákshöfn

Þýski iðn­ris­inn HeidelbergCement ætlar sér að fram­leiða að minnsta kosti milljón tonn af íblönd­un­ar­efnum í sem­ent í Þor­láks­höfn á hverju ári og hefur sótt um og fengið vil­yrði fyrir úthlutun tólf atvinnu­lóða undir starf­semi sína í bænum.

Heidelberg fær úthlutað alls 12 lóðum undir starfsemi sína á nýju athafnasvæði í grennd við höfnina í Þorlákshöfn, sem verið er að stækka.
Heidel­berg fær úthlutað alls 12 lóðum undir starf­semi sína á nýju athafna­svæði í grennd við höfn­ina í Þor­láks­höfn, sem verið er að stækka. Mynd: Ölfus

Félagið Heidel­berg Cement Pozzolanic Mater­i­als ehf., sem er hluti af einum stærsta steypu­fram­leið­anda heims, HeidelbergCement, hefur sótt um að fá úthlutað all­nokkrum lóðum undir verk­smiðju og tengda starf­semi í Þor­láks­höfn. Skipu­lags­nefnd Sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss tók jákvætt í beiðn­ina á fundi sínum í síð­ustu viku.

Heidel­berg ráð­gerir, sam­kvæmt erindi sem nýlega var sent til sveit­ar­fé­lags­ins, að fram­leiða íblönd­un­ar­efni í steypu, um 1 til 1,5 millj­ónir tonna á ári fyrst um sinn og flytja úr landi. Árleg velta starf­sem­innar er áætluð 10-15 millj­arðar króna á árs­grund­velli og orku­þörfin er talin „svipuð og hjá lít­illi stór­iðju“. Störf við fram­leiðsl­una eru sögð eiga að verða 60-80 tals­ins fyrsta kastið, en geti orðið enn fleiri með mögu­legri stækkun verk­smiðj­unnar.

Stærsti eig­andi HeidelbergCement er Þjóð­verj­inn Ludwig Merckle, sem er sam­kvæmt Forbes númer 504 á list­anum yfir rík­ustu menn heims í dag, en eignir hans eru sagðar nema 5,1 millj­arði banda­ríkja­dala. HeidelbergCement er með starf­semi í yfir 60 löndum og voru starfs­menn félags­ins á heims­vísu 53 þús­und tals­ins árið 2020.

HeidelbergCement er þátt­tak­andi í íslenskum bygg­ing­ar­iðn­aði, en fyr­ir­tækið er meiri­hluta­eig­andi Horn­steins ehf., sem á fyr­ir­tækin BM Vallá, Björgun og Sem­ents­verk­smiðj­una.

Vilja að tekið verði „fast“ á umhverfisþáttum

Lóðirnar sem Heidel­berg sótti um til sveit­ar­fé­lags­ins eru Hafn­ar­vegur 3, 5 og 7, Aust­ur­bakki 1, 2, 3, 4 og 6, Hafn­ar­bakki 14, 16 og 18 og Bakki 2, en sam­an­lögð stærð þess­ara lóða nemur rúm­lega 49 þús­und fer­metrum, sam­kvæmt lóða­töflu vegna deiliskipu­lags hafn­ar­svæð­is­ins í Þor­láks­höfn.

Skipu­lags- og umhverf­is­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins sam­þykkti á fundi sínum sem fram fór síð­asta fimmtu­dag að lóð­unum yrði úthlutað til Heidel­berg, en vís­aði mál­inu áfram til umsagnar fram­kvæmda- og hafn­ar­nefndar.

[adspot]

Í umsögn skipu­lags- og umhverf­is­nefndar segir að nefndin sé „sér­stak­lega áfram“ um að við breyt­ingar á deiliskipu­lagi sem framundan eru „verði tekið fast á umhverf­is­legum þáttum“. Nefndin segir að það komi ekki til greina að haug­setn­ing jarð­efna verði utandyra, eða að mengun svo sem ryk­mengun, hljóð­mengun eða önnur óþæg­indi stafi af starf­sem­inni. Einnig seg­ist nefndin telja mik­il­vægt að horft verði til getu inn­viða í Þor­láks­höfn og nágrenni til að þjón­usta starf­sem­ina.

Sér­stak­lega segir nefndin mik­il­vægt að huga að umferð­ar­málum og hefur hún falið starfs­mönnum sveit­ar­fé­lags­ins að kalla eftir áliti Vega­gerð­ar­innar á umferð­ar­málum tengdu verk­efn­inu og getu vega­kerf­is­ins, þar sem sér­stak­lega verði „kallað eftir yfir­liti yfir nauð­syn­legar breyt­ingar svo sem á breikkun Þrengsla­vegar, gatna­mótum við Þor­láks­hafn­ar­veg og klif­ur­rein við Skóg­ar­hlíða­brekku“.

Efnistaka úr námum á landi Kirkju sjöunda dags aðventista

[links]Sagt var frá því í Morg­un­blað­inu undir lok mars­mán­aðar að námu­fyr­ir­tækið Eden Mining kæmi að námu­vinnslu vegna verk­efn­is­ins, en það félag hefur leigt námu­rétt­indi í móbergs­fjöll­unum Litla-Sand­felli og Lamba­felli af Kirkju sjö­unda dags aðventista.

Í dag er þegar náma í í báðum fjöllum, en sú í Litla-Sand­felli hefur verið lítið notuð und­an­farin ár. Það mun hins­vegar breyt­ast ef áform Eden Mining ganga eftir, en eins og Kjarninn fjall­aði nýlega um leggur félagið upp með að vinna 15 millj­ónir rúmmetra af jarð­efni úr fjall­inu, sem mun smám saman hverfa úr lands­lag­inu gangi áformin eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár