Að flytja Litla-Sandfell úr landi myndi auka losun, slíta vegum og fjölga slysum

Stofn­anir rík­is­ins hafa sitt hvað út á áform­aða námu­vinnslu við Þrengsla­veg að setja. Of lítið sé gert úr áhrifum auk­innar þunga­um­ferðar og of mikið úr jákvæðum áhrifum á lofts­lag.

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leitahrauni í Þrengslunum.
Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengsl­unum. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Umferð um Þrengsla­veg er ekki eins­leit. Þunga­um­ferð um veg­inn mun ekki aukast um 8-11 pró­sent heldur 20 pró­sent. Lofts­lags­á­vinn­ingur sem ætlað er að koma fram í öðru landi getur ekki talist rök­stuðn­ingur fyrir umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum á Íslandi. Fram­setn­ing á umfangi lofts­lags­á­vinn­ings er auk þess mis­vísandi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum nokk­urra rík­is­stofn­ana á umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining sem áformar umfangs­mikla námu­vinnslu úr Litla-Sand­felli í Þrengslum. Til stendur reyndar að fjar­lægja allt fjallið á næstu þrjá­tíu árum og senda mik­inn meiri­hluta þess úr landi til notk­unar í sem­ents­fram­leiðslu að sögn fram­kvæmda­að­ila.

[adspot]

Stórtæk námu­vinnsla í Litla-Sand­felli er því ekk­ert smá­mál. Heilt fjall, þótt lítið sé í sam­an­burði við sum önnur fjöll lands­ins, verður mulið niður, flutt á stórum flutn­inga­bílum um Þrengsla­veg sem er mjór, stundum krappur og brattur, og til Þor­láks­hafnar. Þar verður efnið úr Litla-Sand­felli unnið frekar og loks sent með skipum til Evrópu.

Vilja moka öllu fellinu í burtu

Í stuttu máli er þetta lýs­ingin á fram­kvæmd­inni eins og hún birt­ist í umhverf­is­mats­skýrslu sem aug­lýst var til umsagna í lok sum­ars:

Eden Mining fyr­ir­hugar að vinna allt að 18 milljón rúmmetra af efni úr Litla-Sand­felli á þremur ára­tugum. Ráðgert er að moka öllu fell­inu í burtu. Efnið á að flytja með vöru­bílum til Þor­láks­hafnar og munu full­fermdir bílar aka leið­ina um 115 sinnum á dag og tómir til baka – alls 230 ferðir – um Þrengsla­veg­inn. Um 80 pró­sent alls efn­is­ins verður flutt úr landi.

Sam­göngu­stofa telur að tíðni fram­úr­akst­urs muni aukast á kafl­anum milli Litla-Sand­fells og Þor­láks­hafnar þar sem um sé að ræða tölu­verða aukn­ingu á umferð stórra, þungra og hæg­fara bíla. „Sú aukn­ing mun óhjá­kvæmi­lega auka líkur á fram­úr­akstri sem hefur nei­kvæð áhrif á umferð­ar­ör­yggi á veg­kafl­anum,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar. „Að auki má búast við auk­inni hættu á að það brotni úr veg­köntum vegna fjölda þungra öku­tækja sem aka um veg­inn með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á umferð­ar­ör­yggi.“

Umsögn Vega­gerð­ar­innar er mun ítar­legri. Þar er m.a. gagn­rýnt að í umhverf­is­mats­skýrsl­unni, sem verk­fræði­stofan EFLA vann fyrir Eden Mining, sé talað um „eins­leita þjóð­vega­um­ferð“ á akst­ursleið­inni frá námu til hafnar. „Vega­gerðin telur ekki ljóst við hvað er átt með því en bendir á að við veg­inn er Rauf­ar­hóls­hellir sem er tals­vert sóttur af ferða­mönnum.“

Í skýrsl­unni segi jafn­fram að umferð muni aukast um 8-11 pró­sent á kafla veg­ar­ins þar sem nú þegar er nokkuð um þunga­flutn­inga. „Ef gert er ráð fyrir að þunga­um­ferð sé um 10 pró­sent af heild­ar­um­ferð um veg­inn eins og algengt er á þjóð­vegum er ljóst að þunga­um­ferð mun tvö­fald­ast, verða ríf­lega 20 pró­sent af heild­ar­um­ferð,“ segir í leið­rétt­ingu Vega­gerð­ar­innar á þessum þætti skýrsl­unnar.

[adspot]

Þá telur Vega­gerðin ekki rétt að akst­ursleiðin sé stutt og bein og án nokk­urra beygja eins og haldið er fram í skýrslu Eden Mining. Bendir stofn­unin á að kvart­anir hafi borist vegna þunga­flutn­inga, bæði frá sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi sem og öku­mönnum.

Áform­aðir flutn­ingar með efni úr Litla-Sand­felli gera það að verkum að flýta þyrfti vega­fram­kvæmdum sem fyr­ir­hugað var að ráð­ast í sam­kvæmt Sam­göngu­á­ætlun að um 8-12 árum liðnum. Heild­ar­kostn­aður gæti orðið um 3,5 millj­arðar króna, að mati stofn­un­ar­innar. Auk þess myndi við­halds­kostn­aður á Þrengsla­vegi aukast.

Þá tekur Vega­gerðin undir áhyggjur Sam­göngu­stofu og segir að veru­leg við­bót­ar­um­ferð þungra öku­tækja myndi hafa nei­kvæð áhrif á umferð­ar­ör­yggi. „Miðað við fyr­ir­hug­aða umferð má vænta að umferð­ar­slysum fjölgi um 1-2 á ári.“

Umtalsverð umhverfisáhrif

Umhverf­is­stofnun telur að langvar­andi efn­istaka í Litla-Sand­felli ásamt mik­illi umferð vöru­bíla um Þrengsla­veg muni hafa umtals­verð umhverf­is­á­hrif í för með sér, bæði sjón­rænt sem og vegna auk­ins álags á inn­viði í þrjá ára­tugi. Stofn­unin telur að líta hefði þurft til sam­legð­ar­á­hrifa vegna stór­felldrar efn­is­töku sem fara mun fram í Lamba­felli, sem er í nágrenni Litla-Sand­fells, um ókomna fram­tíð. Hún telur val­kost B, skárri og þá sér­stak­lega ef unnt verður að fækka ferðum frá námunni með lengri vinnslu­tíma og minni sjón­rænum áhrifum efn­is­tök­unnar á Litla-Sand­felli.

[links]Umfangs­mikið vik­ur­nám er fyr­ir­hugað á Mýr­dals­sandi og yrði vikrinum ekið þaðan og að öllum lík­indum um Þrengsla­veg, sömu leið og áformað er að flytja efni úr Litla-Sand­felli um. „Allir þessir flutn­ingar verða við­bót við mikla þunga­flutn­inga sem þegar eru frá Þor­láks­höfn um Þrengsli að höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í umsögn Umhverf­is­stofn­unar.

Mestu áhrif flutn­ing­anna á loft­gæði verða ekki af hlass­inu, sem skal breiða yfir sam­kvæmt lögum, heldur frá vöru­bíl­unum sjálfum, útblæstri þeirra á t.d. sóti og nit­uroxíð-sam­böndum en einnig efn­isögnum frá sliti á bremsu­borðum og dekkjum. Einnig myndu flutn­ing­arnir auka upp­þyrlun vegryks frá veg­yf­ir­borði og stuðla þannig að auk­inni svifryks­mengun. „Stórir bílar eru mun mik­il­virk­ari í að þyrla upp vegryki heldur en litlir bílar.“ Talið er að einn stór flutn­inga­bíll slíti vegum á við að minnsta kosti 10 þús­und fólks­bíla.

Í mats­skýrsl­unni kemur fram að til­gangur efn­is­tök­unnar sé að nýta meiri­hluta efn­is­ins sem stað­göngu­efni flug­ösku í sem­ents­fram­leiðslu. Í sam­an­tekt skýrsl­unnar um áhrif fram­kvæmd­ar­innar á lofts­lag kemur fram að árlega muni kolefn­islosun minnka um 663 milljón kíló koltví­oxíðs-ígilda vegna steypu­fram­leiðslu þegar búið sé að taka losun vegna flutn­inga með í reikn­ing­inn. Er þar átt við að móberg úr Litla-Sand­felli muni koma í stað svo­kall­aðs sem­ents­gjalls.

Umhverf­is­stofnun telur þetta mis­vísandi fram­setn­ingu þar sem í skýrsl­unni komi fram að kolaaska sé nú þegar notuð sem íblönd­un­ar­efni í stað sem­ents­gjalls. Því sé þegar búið að ná þessum lofts­lags­á­vinn­ingi.

Í skýrsl­unni segir að fram­kvæmda­að­ili telji efn­is­vinnslu úr Litla-Sand­felli falla vel að stefnu stjórn­valda um vist­væna mann­virkja­gerð og mark­mið um að draga úr kolefn­islosun vegna bygg­inga á Íslandi. Umhverf­is­stofnun bendir hins vegar á að til standi að flytja mest allt efnið úr landi og því sé erfitt að sjá hvernig fram­kvæmdin myndi styðja við þessa stefnu stjórn­valda nema að litlu leyti.

[adspot]

Í umhverf­is­mats­skýrsl­unni eru ein­ungis metin áhrif á losun á heims­vísu. „Enginn vafi er á því að þeir efn­is­flutn­ingar sem rætt er um í skýrsl­unni muni hafa áhrif til aukn­ingar los­unar hér á landi,“ segir Umhverf­is­stofnun. Það myndi ger­ast með þrennum hætti: Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna olíu­bruna vinnu­véla, vegna olíu­bruna vöru­flutn­inga­bíla og vegna olíu­bruna við skipa­flutn­inga efn­is­ins úr landi.

Ísland hefur skuld­bundið sig í gegnum EES-sam­starf við Evr­ópu­sam­bandið og Noreg til að draga úr losun á beinni ábyrgð Íslands um 29 pró­sent árið 2030 miðað við árið 2005. Auk þess hafa stjórn­völd hér á landi sett sjálf­stæð mark­mið um að draga úr losun um 55 pró­sent árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

edenmining

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár