„Til að búa til sement og steypu þarf að fórna“ Litla-Sandfelli

Eden Mining, sem ætlar að mylja Litla-Sandfell niður til útflutn­ings, er virki­lega annt um lofts­lag jarðar ef marka má svör fyr­ir­tæk­is­ins við gagn­rýni stofn­ana á fram­kvæmd­ina. „Það er óraun­hæft að öll íslensk nátt­úra verði ósnortin um aldur og ævi.“

Litla-Sandfell í Þrengslum myndaðist í gosi undir jökli fyrir þúsundum ára.
Litla-Sandfell í Þrengslum mynd­að­ist í gosi undir jökli fyrir þús­undum ára. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Það er engin til­viljun að tvö alþjóð­leg fyr­ir­tæki eru með áform um að fá íblönd­un­ar­efni í sem­ent frá Íslandi, segja for­svars­menn Eden Mining, fyr­ir­tæk­is­ins sem ætlar sér að vinna og selja móberg úr Litla-Sand­felli í Þrengslum til þýska sem­ents­ris­ans Heidel­berg Mater­i­als. Leitað sé „log­andi ljósi“ að stað­gengli fyrir kola­ösku sem síð­ustu ára­tugi hafi verið notuð sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent en verði af skornum skammti á næstu árum eða ára­tugum. „Til að búa til sem­ent og steypu þarf að fórna jarð­mynd­unum.“

[adspot]

Áform Eden Mining eru þau að vinna allt fjallið, fjar­lægja það á um 30 árum. Stærstur hluti efn­is­ins, móbergs­ins sem þar er að finna, yrði fluttur úr landi til sem­ents­fram­leiðslu í Evrópu. En fyrst þyrfti að flytja það til hafnar í Þor­láks­höfn, þar sem ætl­unin er að vinna það í fyr­ir­hug­aðri verk­smiðju Heidel­berg. Ef reiknað er með að efni yrði flutt um 300 daga árs­ins færu vöru­flutn­inga­bílar 222 ferðir á dag til og frá námunni.

[links]Eden Mining ehf. er í eigu Kristins Ólafs­sonar og Eiríks Ingvars Ingv­ars­sonar. Fyr­ir­tækið starf­rækir einnig námu í Lamba­felli og á Hrauns­andi. Litla-Sandfell er á jörð­inni Breiða­ból­stað sem er í eigu Kirkju sjö­unda dags aðventista og hefur fyr­ir­tækið gert lang­tíma­samn­ing við trú­fé­lagið um námuna.

Umhverf­is­mats­skýrslan, sem verk­fræði­stofan Efla vann fyrir fram­kvæmda­að­il­ann, var lögð fram til kynn­ingar í haust. Lögum sam­kvæmt veittu eft­ir­lits­stofn­anir umsagnir sínar þar sem ýmis gagn­rýni kemur fram líkt og Kjarninn hefur rakið í fréttum síð­ustu vikur.

Demantar og gull

Í svörum við umsögn­unum, sem Kjarninn fékk afhent, tekur Eden Mining að „ýmsu leyti“ undir með Nátt­úru­fræði­stofnun sem segir að hið íslenska móberg, sem verður til við eld­gos undir jökli, sé í eðli sínu sér­stakt á heims­vísu og með hátt vernd­ar­gildi. „Virði móbergs mun lík­lega aukast í fram­tíð­inni eftir því sem krafan um umhverf­is­væn bygg­ing­ar­efni verður hávær­ari og því mik­il­vægt að Íslend­ingar ákveði hvernig nýt­ingu þess­arar auð­lindar verður háttað,“ segja for­svars­menn Eden Mining og Eflu.

„Nefna má sem dæmi að dem­antar, gull og alls­konar málmar eru jarð­mynd­anir sem eru sjald­gæfar á heims­vísu en það stoppar aðrar þjóðir ekki í að vinna þær úr jörðu og myndi ekki stoppa okkur ef slíkt fynd­ist í vinn­an­legu magni hér á landi – því sjald­gæfari því verð­mæt­ari. Móberg er í reynd ekk­ert öðru­vísi nema hvað það er nýtil­komið að það sé farið að hugsa um það sem nýt­an­lega auð­lind.“

Segja umhverfisáhrifin verulega jákvæð

Það sé ekki til­viljun að Litla-Sandfell hafi orðið fyrir val­inu til útflutn­ings – í fyrsta verk­efni sinnar teg­undar. „Fellið er lítið, mikið raskað af fyrri efn­is­töku, efn­is­gæði eru góð, gróður og fugla­líf er tak­markað og það er nálægt góðri útflutn­ings­höfn. Það er því til­valið í nýt­ing­ar­flokk.“

Í umhverf­is­mats­skýrsl­unni er því haldið fram fullum fetum að heild­ar­á­hrif verk­efn­is­ins á lofts­lag yrðu veru­lega jákvæð og að það myndi falla vel að stefnu stjórn­valda í lofts­lags­málum. Í þeirri stefnu eru sett fram metn­að­ar­full mark­mið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi á næstu árum.

Meiri­hluti móbergs­ins er hins vegar ekki ætl­aður til notk­unar í steypu inn­an­lands og því er erfitt að sjá, bendir Umhverf­is­stofnun á, hvernig fram­kvæmdin styðji við stefn­una nema að mjög litlu leyti.

Eden Mining tekur ekki undir þessi rök. Vissu­lega sé rétt að efnið færi í fram­leiðslu á sem­enti erlendis en allt sem­ent sem notað er á Íslandi sé inn­flutt. „Í þessu sam­bandi er hægt að benda á að ef þjóðir heims­ins mættu ein­ungis nota auð­lindir sínar til notk­unar inn­an­lands þá væri eyríkið Ísland ekki í góðum málum.“

Undrast umsögn Umhverfisstofnunar

Umhverf­is­stofnun ítrekar að lofts­lags­á­vinn­ingur sem sé ætlað að koma fram í öðru landi geti ekki talist sem rök­stuðn­ingur fyrir umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum á Íslandi.

„Þessi afstaða Umhverf­is­stofn­unar vekur nokkra undrun í ljósi þess að bar­áttan gegn hnatt­rænum loft­lags­á­hrifum vegna mik­illar los­unar koltví­sýr­ings út í and­rúms­loftið er einmitt hnatt­ræn en ekki háð ein­staka landa­mærum,“ segir í svörum Eden Mining og Eflu. „Í því sam­hengi má benda á að stór hluti þeirrar los­unar sem Ísland ber ábyrgð á í notkun sinni á bygg­ing­ar­efnum, sam­göngu­tækjum, og neyslu og fjár­fest­inga­vörum af ýmsu tagi á sér stað utan landamæra og kemur ekki fram í bók­haldi Íslands.“

[adspot]

Þá megi einnig nefna að fjöldi þeirra lausna sem Íslend­ingar reiði sig á, svo sem raf­væð­ing sam­göngu­tækja, feli í sér umfangs­mikla námu­vinnslu og til­fallandi kolefn­is­spor í öðrum löndum. „Það getur því vart verið ásætt­an­legt við­horf út frá mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins að ein­ungis sé horft til áhrifa hér inn­an­lands af fram­leiðslu sem þess­ari en ekki hnatt­ræn áhrif í loft­lags­málum. Það verður í það minnsta að telj­ast afar þröngt sjón­ar­horn í bar­átt­unni gegn hnatt­rænum lofts­lags­breyt­ingum.“

Íslend­ingar vilji og muni nota sem­ent og því fylgi umhverf­is­á­hrif. „Við höfum aftur á móti hingað til látið aðrar þjóðir taka skell­inn á sig fyrir okkur.“

Ein helsta gagn­rýni umsagn­ar­að­ila á fram­kvæmd­ina er að í útreikn­ingum í mats­skýrsl­unni sé borin saman losun vegna notk­unar móbergs og sem­entsk­lin­kers, efnis sem kolaaska er þegar notuð sem stað­geng­ill fyrir í miklum mæli. Þannig sé í raun verið að tala um lofts­lags­mark­mið sem þegar hafi náðst en yrði við­haldið. Þá sé heldur ekki reiknað með að önnur hentug íblönd­un­ar­efni kunni að finn­ast.

„Fyrir utan kola­ösku (sem er á útleið) er fátt annað í boði sem er til í nægj­an­legu magni, hægt að vinna og afla á hag­kvæman hátt í ásætt­an­legri fjar­lægð frá mörk­uðum, er umhverf­is­vænt og upp­fyllir allar gæða­kröfur, m.a. um end­ingu,“ svarar Eden Mining. „Móbergið úr Litla-Sand­felli upp­fyllir öll þessi skil­yrði.“

Fáir eða engir á ferli

Fyrir utan námu­vinnsl­una sjálfa og efa­semdir um fram­setn­ingu lofts­lags­á­vinn­ings fram­kvæmd­ar­innar er það umferð stórra vöru­flutn­inga­bíla milli námunnar og áform­aðrar verk­smiðju Heidel­berg Mater­i­als í Þor­láks­höfn sem umsagn­ar­að­ilar beina helst sjónum sínum að.

Umhverf­is­stofnun bendir t.d. á áhrif flutn­ing­anna á loft­gæði, útblástur þeirra en einnig efn­isagnir frá sliti á bremsu­borðum og dekkjum. Einnig myndu flutn­ing­arnir þyrla upp vegryki og stuðla þannig að auk­inni svifryks­mengun. „Stórir bílar eru mun mik­il­virk­ari í að þyrla upp vegryki heldur en litlir bílar,“ segir stofn­unin.

[adspot]

Eden Mining tekur margoft fram í svörum sínum að flutn­ing­arnir til og frá námunni séu á vegum ann­ars fyr­ir­tækis, Heidel­berg Mater­i­als. Fyr­ir­tækið gerir þó lítið úr áhyggjum Umhverf­is­stofn­unar og segir að „fáir eða engir“ séu á ferli með­fram Þrengsla­vegi og næsta byggð sé í meira en 600 metra fjar­lægð frá veg­inum. „Útblástur stakra bíla og upp­þyrlun vegryks hefur því hverf­andi áhrif.“

Vilja flutningana af Þrengslavegi

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus, sem Litla-Sandfell er innan, segir að eftir að umhverf­is­mats­skýrslan var kynnt hafi komið fram hug­myndir um að flytja efnið frá námunni til Þor­láks­hafnar á sér­stökum námu­vegi og á lok­uðu færi­bandi. Þetta telur sveit­ar­fé­lagið væn­legan val­kost sem myndi minnka umhverf­is­spor og bæta umferð­ar­ör­yggi veru­lega.

Eden Mining er jarð­vinnu­verk­taki og flutn­ing­arnir yrðu ekki á þess vegum heldur Heidel­berg, ítrekar fyr­ir­tækið. Hug­myndir um námu­veg og lokað færi­band hafa aftur á móti komið til umræðu af hálfu Heidel­berg. „Þar er einkum til skoð­unar hvort hægt sé að finna leiðir fyrir efn­is­flutn­inga sem færu ekki nema að litlum hluta um þjóð­vega­kerfið. Þá væri ekki verið að auka á núver­andi umferð­ar­magn þjóð­vega­kerf­is­ins nema að mjög litlu leyti á stuttum köflum ef áætl­anir ganga eftir.“

Flutn­ingur efnis að námu yrðu þannig með bílum að jaðri Þor­láks­hafnar og þaðan með færi­böndum að verk­smiðju. „Með þessu fyr­ir­komu­lagi væri unnt að tak­marka umferð í þétt­býli Þor­láks­hafnar.“

Þessi kostur verði skoð­aður þegar verk­smiðja Heidel­berg í Þor­láks­höfn fer í gegnum umhverfis- og skipu­lags­ferli.

Ruglingsleg og ómarkviss

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands telur umfjöllun í umhverf­is­mats­skýrsl­unni um móberg sem íauka­efni í sem­ent „rugl­ings­lega og ómark­vissa“ og vill fá á hreint hvort móberg eigi að koma í stað sem­entsk­lin­kers eða kola­ösku.

„Móbergið kemur í raun í stað­inn fyrir bæði,“ svarar Eden Mining. „Sem­entsk­lin­ker er afar meng­andi og til að minnka notkun hans er notuð kolaaska úr kola­orku­verum. Þegar kola­ösku nýtur ekki lengur við þarf að finna annað efni til að koma í hennar stað, ellegar nota meira af sem­entsk­lin­ker.“

Litla-Sandfell yrði „afar lítið brot“

Heil­brigð­is­eft­ir­litið bendir enn­fremur á að ekki komi fram í umhverf­is­mats­skýrsl­unni hversu mikið af klin­ker sé fram­leitt á heims­vísu í dag né að hversu miklu leyti móberg úr Litla-Sand­felli myndi koma í stað­inn. Án slíkra upp­lýs­inga sé erfitt að átta sig á heild­ar­á­vinn­ingi fram­kvæmd­ar­innar.

Þessari spurn­ingu svarar Eden Mining ekki beint en bendir á að heims­fram­leiðsla á sem­enti sé meira en 4 millj­arðar tonna á ári. „Efnið úr Litla-Sand­felli er því afar lítið brot af því heild­ar­magni.“

[adspot]

Lítið en mikilvægt

En sé útgangs­punkt­ur­inn við slíkt mat að heild­ar­á­vinn­ingur sé lít­ill, af því að verk­efnið sé lítið hlut­fall af heims­fram­leiðslu, „þá hefði það að sama skapi þá þýð­ingu að lítið sem Ísland gerir í þessum málum skiptir máli vegna þess að fram­lag okkar er almennt lítið hlut­fall af heild­ar­losun mann­kyns og í alþjóða­sam­hengi.“

Útflutn­ingur á móbergi úr Litla-Sand­felli sé braut­ryðj­enda­verk­efni sem sé mik­il­vægur liður í því að minnka kolefn­islosun sem­ents­iðn­að­ar­ins á heims­vísu og verði að skoða í því ljósi.

Aðrar þjóðir taka á sig „umhverfisskellinn“

Í umsögn Land­verndar segir að mik­il­væg­asta aðgerðin til að draga úr losun frá steypu sé að hanna og byggja með efnum sem valda sem minnstri losun. „Margar nýjar lausnir eru við sjón­deild­ar­hring­inn þegar kemur að kolefn­is­hlut­lausum bygg­ingum.“

Eden Mining rifjar upp að íslensk stjórn­völd skrif­uðu nýlega undir ramma­samn­ing við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga um upp­bygg­ingu á 35.000 íbúðum næsta ára­tug­inn og allt stefni í að þær verði hefð­bundnar stein­steyptar bygg­ingar. „Eins og staðan er í dag er allt sem­ent sem notað er á Íslandi unnið og fram­leitt erlendis og því lít­ill hvati til að breyta til, allir virð­ast sáttir með að láta aðrar þjóðir taka á sig umhverf­is­skell­inn fyrir neyslu okkar,“ svara for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins. „Með því að færa hluta fram­leiðslu­ferl­is­ins hingað til Íslands mun fólk sjá hluta áhrif­inna sem fylgja því að nota sem­ent og það mun von­andi leiða til fram­þró­unar í íslenskum bygg­ing­ar­iðn­aði.“

Vinnsla jarðefna nauðsynleg

„Það er óraun­hæft að öll íslensk nátt­úra verði ósnortin um aldur og ævi, svo lengi sem fram­kvæmdir og upp­bygg­ing á sér stað er vinnsla jarð­efna nauð­syn­leg, hvort sem hún er hér­lendis eða erlendis,“ segja for­svars­menn Eden Mining og Eflu.

„Fram­leiðsla sem­ents er því miður ekki sjálf­bær, þeim mun mik­il­væg­ara er að reyna að gera hana eins kolefn­is­hlut­lausa og hægt er. Þar spilar efnið úr Litla-Sand­felli mik­il­vægt hlut­verk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

edenmining

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár