Náma í Litla-Sandfelli veldur „miklum neikvæðum umhverfisáhrifum“

Skipu­lags­stofnun telur Eden Mining van­meta umhverf­is­á­hrif námu í Litla-Sand­felli. Að fjar­lægja fjall velti upp þeirri hug­mynd „hvort verið sé að opna á þá fram­tíð­ar­sýn að íslenskar jarð­mynd­anir verði í stór­felldum mæli fluttar út til sem­ents­fram­leiðslu“.

Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leitahrauni í Þrengslunum.
Litla-Sandfell stendur um 95 metra upp úr Leita­hrauni í Þrengsl­unum. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Þó svo að námu­vinnsla í Litla-Sand­felli í Þrengslum gæti leitt til sam­dráttar í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við sem­ents­fram­leiðslu, að því gefnu að jarð­efnin komi í stað sem­entsk­lin­kers við þá fram­leiðslu, þá er verið að færa umtals­verðar fórnir fyrir þann ábata. „Fyrir liggur að fram­kvæmdin hefur í för með sér mikil nei­kvæð umhverf­is­á­hrif.“

Þetta kemur fram í nýút­gefnu áliti Skipu­lags­stofn­unar á áform­aðri námu íslenska fyr­ir­tæk­is­ins Eden Mining í Litla-Sand­felli. Fyr­ir­hugað er að vinna allt fellið á þrjá­tíu árum og flytja jarð­efnin, móbergið sem þar er að finna, úr landi.

[adspot]

„Það er mikið inn­grip í nátt­úru­far í Þrengslum að fjar­lægja Litla-Sandfell á til­tölu­lega skömmum tíma eða aðeins 30 árum,“ segir í álit­inu. Skipu­lags­stofnun telur fram­kvæmd­ina hafa í för með sér veru­lega nei­kvæð áhrif á lands­lag, vegi og umferð. Um sé að ræða var­an­leg og óaft­ur­kræf áhrif á jarð­mynd­anir og lands­lag sem „engin leið er að bæta fyrir með mót­væg­is­að­gerðum af nokkru tagi“.

[links]Stofn­unin segir að jafn­mikil efn­istaka og um yrði að ræða á ein­göngu 30 árum setji efn­is­töku í annað sam­hengi en verið hefur. Hún bendir á að í Ölfusi sem og í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins séu nokkrar mjög stórar námur sem efni hefur verið tekið úr í marga ára­tugi til inn­an­lands­nota. „Áform um algjört brott­nám Litla-Sand­fells til iðn­að­ar­nota í evr­ópskum bygg­ing­ar­iðn­aði setur málið í annað og stærra sam­hengi,“ skrifar stofn­unin. „Ákvörðun um að heil jarð­myndun fái að hverfa á til­tölu­lega skömmum tíma vegna sem­ents­fram­leiðslu á alþjóð­legum mark­aði veltir upp þeirri hug­mynd að hvort með þessu sé verið að opna á þá fram­tíð­ar­sýn að íslenskar jarð­mynd­anir verði í stór­felldum mæli fluttar út til sem­ents­fram­leiðslu.“ Skipu­lags­stofnun telur að slík áform veki frek­ari spurn­ingar heldur ein­göngu hver verði áhrif á nátt­úru­far við­kom­andi svæðis.

Vegurinn þolir ekki flutningana

Verði námu­vinnsla Eden Mining að veru­leika munu flutn­inga­bílar af stærstu gerð aka um Þrengsla­veg milli námunnar og Þor­láks­hafnar mörgum sinnum á dag. Þar yrði efnið unnið í áform­aðri verk­smiðju þýska sem­ents­ris­ans Heidel­berg Mater­i­als og að því loknu flutt sjó­leið­ina til við­skipta­vina í Evrópu.

Skipu­lags­stofnun telur, með hlið­sjón af umsögn Vega­gerð­ar­innar, ekki unnt að hefja stór­fellda efn­is­flutn­inga úr Litla-Sand­felli um núver­andi veg til Þor­láks­hafnar. Sá vegur upp­fylli „engan veg­inn“ þær kröfur sem gera þarf til þjóð­vegar sem er ætlað að anna jafn umfangs­miklum flutn­ingum og Eden Mining ráð­geri.

Til­gangur efn­is­tök­unnar í Sand­felli er að sögn Eden Mining að nýta efnið úr fell­inu sem stað­göngu­efni flug­ösku í sem­ents­fram­leiðslu. Þannig megi minnka kolefn­is­spor bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins.

Efninu úr námunni yrði ekið á vöru­bílum af „stærstu leyfi­legu gerð“ um 14 kíló­metra leið til verk­smiðj­unnar í Þor­láks­höfn. Hver bíll myndi flytja 30 tonn af móbergi í hverri ferð og heild­ar­þyngd öku­tækis þá verða allt að 49 tonn. Ef reiknað er með að efni sé flutt um 300 daga árs­ins þá yrðu farnar 111 ferðir á dag, fram og til baka gera það 222 ferðir.

Jarðmyndanir

Í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining, sem verk­fræði­stofan Efla vann, kom fram að Litla-Sandfell móberg væri ekki algengt á heims­vísu en hins vegar mjög algengt á Íslandi og er fyr­ir­huguð efn­istaka lítið brot af því móbergi sem finnst á SV-horni lands­ins. Fram­kvæmd­ar­að­ili mat því áhrif á jarð­mynd­anir með námu­vinnslu nokkuð nei­kvæð.

Nátt­úru­fræði­stofnun benti í umsögn sinni á að móberg væri sér­stakt á heims­vísu og hefði hátt vernd­ar­gildi. Litla-Sandfell sé auk þess ólíkt móbergs­fjöll­unum í nágrenn­inu, stuttur móbergs­hryggur á meðan nágranna­fjöllin séu flest móbergs­stapar. Ef Litla-Sandfell hyrfi yrði jarð­fræðin eins­leit­ari.

Skipu­lags­stofnun tekur undir með Nátt­úru­fræði­stofnun um að móbergs­mynd­anir hafi mikið vernd­ar­gildi á alþjóð­lega vísu. Móberg, einkum móbergs­hryggi, megi líta á sem ábyrgð­ar­teg­und Íslands í jarð­breyti­leika heims­ins. Skipu­lags­stofnun telur fram­kvæmda­að­ila van­meta áhrif fram­kvæmd­ar­innar á jarð­mynd­anir. Fyr­ir­huguð vinnsla á Litla-Sand­felli í heilu lagi, þar sem engum mót­væg­is­að­gerðum verði komið við, muni hafa í för með sér veru­lega nei­kvæð áhrif.

Landslag og ásýnd

Í umhverf­is­mats­skýrslu Eden Mining segir að brott­nám Litla-Sand­fells muni hafa tölu­verð áhrif á ásýnd frá Þrengsla­vegi og næsta nágrenni. Fellið sé þó ekki sýni­legt langar leiðir og lands­lags­heildin verði áfram sú sama, en einu móbergs­felli færra. Áhrif á ásýnd og lands­lag voru metin tals­vert nei­kvæð.

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands sagði að áhrif á lands­lag sværu mjög afger­andi. Hún benti á að upp vakni grund­vall­ar­spurn­ingar um tákn­ræna og sið­fræði­lega merk­ingu þess að áber­andi fjall sé fjar­lægt í heilu lagi úr íslenskri nátt­úru.

Skipu­lags­stofnun telur að veiga­mestu umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar verði sjón­ræn áhrif og áhrif á lands­lag. „Þó svo að Litla-Sandfell rísi ein­göngu um 95 metra yfir umhverfi sitt í Leita­hrauni þá er fellið afger­andi kenni­leiti í lands­lagi svæð­is­ins,“ segir í áliti stofn­un­ar­innar á fram­kvæmd­inni. „Brottnám þess á til­tölu­lega skömmum tíma, eða þeim 30 árum sem ætlað er að taki að moka því burt, hefur mikil og óaft­ur­kræf áhrif sem engin leið er að bæta fyrir með mót­væg­is­að­gerðum af nokkru tagi.“ Stofn­unin telur sjón­ræn áhrif og áhrif á lands­lag því verða veru­lega nei­kvæð.

Útivist og ferðamennska

Eden Mining mat áhrif námu­vinnsl­unnar á úti­vist og ferða­mennsku nokkuð nei­kvæð.

Skipu­lags­stofnun telur hins vegar að þó svo að unnt verði að stunda úti­vist og heim­sækja alla þá staði sem nýttir eru til úti­vistar, nema Litla Sandfell, þá muni efn­istakan hafa í för með sér mikla breyt­ingu á upp­lifun úti­vi­star­fólks. „Nú er svæðið fremur frið­sælt og einu athafn­irnar sem úti­vi­star­fólk verður vart við er umferð á Þrengsla­vegi.“ Í stað þess yrði stöðug athafna­semi með miklum efn­isla­ger við Litla-Sandfell og mikil og hávær umferð vöru­bíla til og frá fjall­inu allan árs­ins hring. Fyrir vikið myndi upp­lifun úti­vi­star­fólks í umhverfi fells­ins gjör­breyt­ast. „Þá verður ótví­rætt sjón­ar­sviptir fyrir úti­vi­star­fólk af því að fjar­lægja Litla-Sandfell sem er afger­andi kenni­leiti í hraun­breið­unni í Þrengslum.“

Einnig telur stofn­unin það rýra upp­lifun þeirra sem heim­sækja Rauf­ar­hóls­helli „að nán­ast við hell­is­munn­ann verður sífelldur hávaði frá stórum vöru­bílum“.

Skipu­lags­stofnun metur því áhrif fram­kvæmd­anna á úti­vist og ferða­mennsku tals­vert nei­kvæð.

Vegir og umferð

Fram­kvæmd­ar­að­ili metur sam­legð­ar­á­hrif á vegi og umferð með öðrum jarð­efna­flutn­ingum um hina fjórtán kíló­metra leið milli námu og Þor­láks­hafnar óveru­lega nei­kvæð.

Skipu­lags­stofnun telur með hlið­sjón af umsögn Vega­gerð­ar­innar að núver­andi vegur sé þess ekki bær að anna þeirri við­bót­ar­um­ferð þungra vöru­bif­reiða sem myndi fylgja efn­is­töku úr Litla-Sand­felli. Nauð­syn­legt væri að breikka og styrkja hluta veg­ar­ins og auk þess myndi við­halds­þörf veg­ar­ins vaxa veru­lega með til­heyr­andi kostn­aði. Þá telur stofn­unin að slysa­hætta myndi aukast veru­lega. Nið­ur­staða hennar er sú að áhrif fram­kvæmd­anna á vegi og umferð verði veru­lega nei­kvæð.

Áhrif á loftslag

Í umhverf­is­skýrslu Eden Mining kemur fram að helsti drif­kraftur verk­efn­is­ins sé að afla efnis í sem­ent sem komi í stað hins kolefn­is­freka sem­entsk­lin­kers. Móbergið þurfi hins vegar að flytja til Evrópu með til­heyr­andi kolefn­islosun, en kolefn­islosun við flutn­ing sé þó mjög lítil í sam­an­burði við losun í fram­leiðslu á klin­ker. Í skýrsl­unni er bor­inn saman kolefn­islosun við flutn­ing á móberg­inu til sem­ents­fram­leið­enda í Evrópu og kolefn­islosun sem spar­ast við það að draga úr notkun á klin­ker. Er það mat fyr­ir­tæk­is­ins að heild­ar­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar á lofts­lag séu veru­lega jákvæð.

Í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands sagði að það væri ein­föld nálgun að telja beint til tekna það magn CO2 sem verður til við fram­leiðslu sem­entsk­lin­kers og Umhverf­is­stofnun benti á að þessi ávinn­ingur væri þegar kom­inn fram með notkun flug­ösku í stað klin­kers­ins. Því væri verið að við­halda ávinn­ingi.

[adspot]

Í mats­skýrsl­unni væru ein­ungis metin áhrif á losun á heims­vísu en ekki nei­kvæð áhrif á skuld­bind­ingar Íslands í lofts­lags­málum. Enginn vafi léki því á að efn­is­flutn­ing­arnir myndu hafa áhrif til auk­innar los­unar hér á landi.

Skipu­lags­stofnun telur að notkun móbergs í stað klin­kers við fram­leiðslu sem­ents feli í sér ótví­ræðan ávinn­ing sé horft til sam­dráttar í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Sá ábati skili sér hins vegar ekki með beinum hætti í los­un­ar­bók­haldi Íslands en þar inn fær­ist fórn­ar­kostn­að­ur­inn, þ.e. losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vinnu­vélum, vöru­bílum og að ein­hverju leyti sjó­flutn­ingum móbergs­ins. Veru­legar fórnir yrðu hins vegar færðar hér á landi fyrir þann ábata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

edenmining

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár