Ekki í forgangi hjá Landsvirkjun að selja raforku til vinnslu hrávöru

Orku­fyr­ir­tækin segja eft­ir­spurn eftir raf­orku gríð­ar­lega og að for­gangs­raða þurfi sam­tölum við áhuga­sama kaup­endur. Lítil umframorka sé í kerf­inu ólíkt því sem tals­maður sem­ents­ris­ans Heidel­berg Mater­i­als hélt fram á íbúa­fundi á dög­unum.

Ekki er í for­gangi hjá Lands­virkjun að selja raf­orku í nýja stór­iðju tengda málm­iðn­aði eða annarri hrá­vöru.

Þetta kemur fram í svörum fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort Lands­virkjun sé í við­ræðum við þýska sem­ents­ris­ann Heidel­berg Mater­i­als um afhend­ingu á raf­orku sem þarf til að knýja verk­smiðju í Þor­láks­höfn þar sem móberg úr Litla-Sand­felli yrði malað.

[adspot]

Fyr­ir­spurnin er til­komin vegna þess­ara orða tals­manns Heidel­berg á Íslandi, Þor­steins Víglunds­sonar, á íbúa­fundi í Þor­láks­höfn í síð­ustu viku: „Það er gert ráð fyrir um það bil 40 mega­vatta raf­orku­notkun í fyrsta áfanga verk­efn­is­ins og það gæti auk­ist í 60 mega­vött í öðrum áfanga. Þetta er ekki risa orku­not­andi en vissu­lega stór, það er alveg rétt.“ Í þessu sam­hengi má nefna að Kröflu­virkjun er 60 mega­vött (MW) að afli.

[links]Á fund­inum var spurt: „Er búið að tryggja þessa orku?“

„Ja, það er eitt af því sem er í umræð­unni,“ svar­aði Þor­steinn.

Þá var spurt: „Er til raf­orka í kerf­inu fyrir þetta verk­efni?“

„Það er til raf­magn í kerf­inu já, og það er til raf­magn hjá orku­fram­leið­endum,“ svar­aði hann. „Þannig að við höfum bæði verið að ræða við Landsnet og raf­orku­fram­leið­endur varð­andi aðgang að raf­magni. Það er auð­vitað grund­vall­ar­for­senda þess að hægt sé að reisa verk­smiðju sem þessa.“

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Lands­virkjun, HS Orku og Orku nátt­úr­unnar um hvort við­ræður væru í gangi við Heidel­berg Mater­i­als vegna móbergs­verk­smiðj­unnar, hvort að raf­orka væri til í kerf­inu líkt og Þor­steinn hélt fram eða hvort ráð­ast þyrfti í nýja vinnslu – ef samið yrði við Heidel­berg yfir höfuð.

„Vegna trún­aðar í við­skiptum getur Lands­virkjun almennt ekki tjáð sig opin­ber­lega um við­ræður við ein­staka núver­andi eða mögu­lega nýja við­skipta­vini,“ segir í svari Ragn­hildar Sverr­is­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­virkj­unar.

Hún segir Lands­virkjun þó geta lýst því yfir opin­ber­lega að sem stendur sjái fyr­ir­tækið mikla eft­ir­spurn eftir end­ur­nýj­an­legri orku en tak­markað mögu­legt nýtt fram­boð til að mæta þeirri eft­ir­spurn næstu 4-6 ár eða svo. „Fyr­ir­tækið þarf því að for­gangs­raða þeim sam­tölum sem nú eru tekin um mögu­lega orku­sölu og í því sam­hengi hefur fyr­ir­tækið auk­in­heldur nýlega lýst því yfir opin­ber­lega að sem stendur er ekki í for­gangi hjá fyr­ir­tæk­inu að selja raf­orku í nýja stór­iðju tengda málm­iðn­aði eða annarri hrá­vöru.“

Í verk­smiðju Heidel­berg í Þor­láks­höfn yrði móberg sem unnið yrði úr Litla-Sand­felli, þurrkað og malað og flutt út til meg­in­lands Evrópu sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent. Hér er því um hrá­vöru að ræða.

[adspot]

Í svörum Orku nátt­úr­unnar við þessum sömu spurn­ingum segir að engar við­ræður hafi átt sér stað við Heidel­berg. Íslenskt ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem vinni fyrir umrædda aðila hafi hins vegar óskað eftir fundi með Orku nátt­úr­unnar til þess að kynna hug­myndir. Þá kynn­ingu hafa sér­fræð­ingar ON fengið „en næstu skref hafa ekki verið ákveðin“.

Almennt þá funda fyr­ir­tæki sem hafa hug á að vera með starf­semi á Íslandi með orku­fyr­ir­tækj­unum „og við tökum sam­töl við þau sem óska eftir því,“ segir í svari ON. „Þegar og ef við­ræður fara lengra þá eru fyr­ir­tækin skoðuð með til­liti til þeirrar starf­semi sem þau eru í, áhættu og fleiri þátta.“

En yrði hægt að afhenda Heidel­berg Mater­i­als 40-60 MW að mati ON án þess að ráð­ast í frek­ari orku­vinnslu?

„Orka nátt­úr­unnar þekkir ekki umrætt fyr­ir­tæki nægj­an­lega vel og hefur ekki skoðað áform þeirra með þeim hætti að hægt sé að svara þessu. Það er margt sem spilar inn í við svona ákvarð­anir m.a. magn, verð og samn­ings­tími.“

Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar hjá HS Orku segir eft­ir­spurn eftir raf­orku í augna­blik­inu „gríð­ar­lega“. Hann segir fjöl­marga aðila sem hafa áhuga á því að byggja upp starf­semi á Íslandi í mis­mun­andi geirum. „Almennt tjáir HS Orka sig ekki um ein­stök verk­efni á frum­stigi en getur þó stað­fest að við höfum átt í óform­legum við­ræðum við for­svars­menn Heidel­berg, eins og ég geri ráð fyrir að gildi um alla aðra raf­orku­fram­leið­endur á Íslandi.“

Umfram orka er takmörkuð

En eru til 40-60 MW í kerf­inu líkt og tals­maður Heidel­berg sagði?

„Það er erfitt að svara þess­ari spurn­ingu með já eða nei,“ segir Jóhann Snorri. „Við leggjum ekki sjálf­stætt mat á hversu mikil raf­orka er í heild í kerf­inu hverju sinni en í ljósi orku­skorts síð­ustu ára liggur fyrir að umfram orka er tak­mörkuð, hvort sem um er að ræða til orku­skipta eða ann­arra nýrra verk­efna. Hvað varðar afhend­ingu til Heidel­berg miðað við núver­andi fram­leiðslu­getu í kerf­inu, þá fer það fyrst og fremst eftir tíma­setn­ingu og stöðu ann­arra raf­orku­kaupa­samn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heidelbergmaterials

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár