„Við eigum ekki orð yfir þessa fáránlegu hugmynd“

Sum­ar­húsa- og hót­el­eig­endur í nágrenni Seyð­is­hóla í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi leggj­ast gegn áformum um áfram­hald­andi námu­vinnslu. Suð­ur­verk hyggst vinna meira efni og á skemmri tíma en hingað til. Efnið yrði að mestu flutt úr landi.

Náma hefur verið starfrækt í Seyðishólum í yfir sjö áratugi.
Náma hefur verið starf­rækt í Seyð­is­hólum í yfir sjö ára­tugi. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Þegar áform­uðum námu­greftri í Seyð­is­hólum í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi lýkur mælist Skipu­lags­stofnun til þess að látið verði staðar numið í efn­is­töku og þeir hlutar gígs­ins sem eftir standi verði varð­veittir.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti stofn­un­ar­innar á fyr­ir­hug­aðri fram­kvæmd Suð­ur­verks sem felur í sér áfram­hald­andi efn­is­töku úr hól­unum. Náma hefur verið á svæð­inu í um sjö­tíu ár en efn­istakan sem nú stendur fyrir dyrum er mun umfangs­meiri. Þannig á að vinna um hálfa milljón rúmmetra af efni á fimmtán árum en frá árinu 1950 er talið að um 450 þús­und rúmmetrar hafi verið fjar­lægðir.

[adspot]

Samtök sum­ar­húsa­eig­enda í nágrenni Seyð­is­hóla gagn­rýna áformin og segj­ast „stand­andi hissa“ á að sveit­ar­stjórn, Land­vernd og stofn­anir skuli ekki vilja aftra „óaft­ur­kræfum skemmdum“ á einu fal­leg­asta og helsta kenni­leiti Gríms­ness­ins. „En græðg­is­stefnan virð­ist verða ofan á og því mót­mælum við enn og aftur,“ skrifar Guðrún M. Njáls­dóttir, for­maður stjórnar í sam­lagi fjög­urra frí­stunda­byggða við Seyð­is­hóla en í þessum byggðum eru 244 sum­ar­húsa­lóðir. Samtökin lýsa „megn­ustu óánægju“ með þá miklu efn­is­vinnslu sem er fyr­ir­huguð og segja að miklu heldur ætti að friða Seyð­is­hóla.

[links]Eigendur Ker hót­els, sem einnig er í næsta nágrenni námunnar, mót­mæla áformunum einnig. Þeir segja að efn­istakan yrði mjög nálægt hót­el­inu „og við höfum miklar áhyggjur af því hvaða áhrif það hafi á umhverfið að ráð­ast meira á þennan fal­lega hól sem á sér sér­staka sögu“.

Í umsögn sinni um umhverf­is­mats­skýrslu Suð­ur­verks segja þeir einnig: „Við eigum ekki orð yfir þessa fárán­legu hug­mynd að stækka námuna og auka efn­is­töku sem á að mestu að flytja úr sveit­ar­fé­lag­inu og fórna þessum sér­stöku minjum sem eru 5.000-6.000 ára.“

Þegar raskað svæði

En Skipu­lags­stofnun gefur grænt ljós og segir umhverf­is­mats­skýrsl­una stand­ast lög. Helstu nei­kvæðu áhrif hennar séu sjón­ræns eðlis en svæðið sé nú þegar mjög raskað. Fram­kvæmdin muni ekki koma til með að breyta veru­lega ásýnd svæð­is­ins miðað við núver­andi aðstæður. Stofn­unin telur áhrif á jarð­mynd­anir hins vegar verða óhjá­kvæmi­lega stað­bundið nokkuð nei­kvæð þar sem um sé að ræða umfangs­mikla efn­is­töku á svæði sem nýtur sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd og mun efn­istakan koma til með að hafa í för með sér var­an­legt og óaft­ur­kræft rask á jarð­mynd­un­inni. „Skipu­lags­stofnun tekur undir með Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands um að þegar þess­ari efn­is­töku líkur verði látið staðar numið og þeir hlutar gígs­ins sem eftir standa varð­veittir.“

Skipu­lags­stofnun telur ekki lík­legt að ónæði vegna efn­is­vinnsl­unnar eða efn­is­flutn­inga verði veru­legt hvorki hvað varðar hávaða né ryk­mengun.

Líkja má Seyð­is­hólum á margan hátt við Rauðhóla í Heiðmörk sem er mikið raskað svæði eftir efn­is­töku. Rauð­hólar voru fyrst frið­lýstir sem nátt­úru­vætti 1961 og sem fólk­vangur 1974 og er svæðið vin­sælt úti­vist­ar­svæði í dag. Vernd­ar­gildi Rauðhóla felst fyrst og fremst i vís­inda- og fræðslu­gildi. „Raskið hefur opnað tæki­færi fyrir vís­inda­menn að skoða innri gerð gervi­gíga með góðu aðgengi,“ sagði í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar á umhverf­is­mats­skýrsl­una.

Hins vegar leggur stofn­unin til að þeir aðilar sem eiga námu­rétt­indi við Seyð­is­hóla setji sér tak­mörk á heild­ar­efn­is­töku. „Ef við viljum ekki glata Seyð­is­hólum til fram­búðar þarf að skil­greina þau tak­mörk. Ef miðað er við núver­andi áform ætti að meta hvort ekki sé ástæða til að nema staðar þar og eftir að efn­is­tök­unni lýkur að vernda það sem eftir stendur á þeim grund­velli að varð­veita gos­mynd­anir sem eru mik­il­vægur þáttur í sögu eld­virkni Gríms­neskerf­is­ins og sem eru merki­leg á lands­vísu.“

Nátt­úru­fræði­stofnun leggur einnig til að á næstu árum komi land­eig­endur sér saman um að frið­lýsa Kerhól og það sem eftir er af Seyð­is­hólum.

Njóta verndar samkvæmt lögum

Umhverf­is­stofnun benti í sinni umsögn á að Seyð­is­hólar eru jarð­myndun sem nýtur sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum. Í umhverf­is­mats­skýrslu Suð­ur­verks segir að svæð­inu hafi þegar verið raskað á óaft­ur­kræfan hátt og það sé því mat skýrslu­höf­unda að 61. gr. nátt­úru­vernd­ar­laga eigi ekki við. Umhverf­is­stofnun bendir á að það er ekki mats­at­riði hvort að þessi grein eigi við um Seyð­is­hóla. Seyð­is­hólar séu ein­fald­lega gjall- og klepra­gígur sem njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Einnig bendir stofn­unin á að þrátt fyrir að svæð­inu hafi verið raskað þá rétt­lætir það ekki frekara rask.

[adspot]

Stærð námu­svæð­is­ins er 3,5 hekt­arar í dag og er áætlað að raskað svæði verði við áfram­hald­andi efn­is­töku í heild 4,4 hekt­arar. Fyr­ir­hugað er að um 20.000-25.000 rúmmetrar af efni verði fluttir árlega til Þor­láks­hafnar til útflutn­ings en að annað efni verði notað í nágrenn­inu. Gert er ráð fyrir efn­is­vinnslu og flutn­ingum í um 150 daga á ári og áætlað að fjöldi flutn­inga­bíla frá svæð­inu verði um 1.500 bílar á ári eða um 10 bílar á dag. Það gerir 20 bíl­ferðir milli námunnar og Þor­láks­hafnar á dag.

Fram­kvæmda­að­ili segir að miðað við núver­andi aðstæður séu efn­is­flutn­inga­bílar að fara í kringum 14 ferðir á dag til og frá námunni. Fyrir liggur því að ferðum flutn­inga­bíla mun því fjölga. Ekki verður um að ræða dag­lega efn­is­flutn­inga en að með­al­tali er gert ráð fyrir að efni verði flutt í um 150 daga á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár