Vilja stækka og dýpka gjallnámu í Seyðishólum – Flutningabílar ferja efnið til Þorlákshafnar

Til stendur að vinna sama magn efnis úr gjall­námu í Seyð­is­hólum í Gríms­nesi á fimmtán árum og gert hefur verið síð­ustu 70 árin. Meiri­hlut­inn yrði fluttur úr landi.

Náman eins og hún er í dag.
Náman eins og hún er í dag. Mynd: Úr umhverfismatsskýrslu

Áformað er að auka efn­is­töku úr gjall­námu í Seyð­is­hólum í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi í um 74 pró­sent á ári svo flytja megi meira magn á markað í útlöndum. Við vinnslu­aukn­ing­una myndu fleiri og stærri flutn­inga­bílar flytja efni frá námunni, ýmist til kaup­enda inn­an­lands eða til Þor­láks­hafnar þaðan sem það yrði flutt úr landi. Fram­kvæmda­að­il­inn Suðurtak metur heildar umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar óveru­leg.

[adspot]

Efn­istaka úr námunni hófst fyrir 1950 þegar Jón Loftsson ehf hóf fram­leiðslu mát­steina úr Seyð­is­hóla­gjalli. Samkvæmt mæl­ingum er ætlað að búið sé að vinna alls um 450 þús­und m3 af gjalli úr þess­ari námu frá upp­hafi. Með stækkun námunnar, sem fjallað er um í nýrri umhverf­is­mats­skýrslu, er fyr­ir­hugað að taka úr henni allt að 500 þús­und rúmmetra (m3) á næstu 15 árum eða um 33 þús­und m3 á ári að með­al­tali. Suðurtak er með námuna á leigu en útflutn­ingur efn­is­ins er í höndum Jarð­efna­iðn­aðar ehf. Miðað við þessar magn­tölur á að vinna svipað magn af efni úr námunni á 15 árum og gert hefur verið á meira en 70 árum til þessa.

Hver flutn­inga­bíll Suð­ur­taks, sem flytur efnið til kaup­enda inn­an­lands, tekur um 15 rúmmetra af gjalli. Bílarnir sem Jarð­efna­iðn­aður myndi nota eru mun stærri og tækju um 30 rúmmetra. Miðað við að unnið yrði í námunni 150 virka daga á ári þyrfti um 1.500 bíl­ferðir á ári, að jafn­aði um tíu bíla á hverjum þeim degi, þar af fimm bíla á dag með gjall um 50 kíló­metra leið til Þor­láks­hafnar. „Þessar tölur kunna að rokka veru­lega í sam­ræmi við eft­ir­spurn,“ segir í umhverf­is­mats­skýrslu Suð­ur­taks. Þar segir enn­fremur að þar sem helm­ingi stærri bílar en nú eru not­aðir kæmu til sög­unnar myndi umferð þeirra frá námunni aukast um 46 pró­sent þrátt fyrir að vinnslu­aukn­ingin næmi 74 pró­sentum.

Seyð­is­hólar eru rauð­leitir gjall­gígar sem rísa um 100 metra upp úr flat­lend­inu umhverfis. Þeir eru áber­andi kenni­leiti í Gríms­nesi neð­an­verðu. Efstu kollar hól­anna eru að mestu ógrónir og sést rauð­leitur litur gjall­s­ins langt að.

Heildaráhrifin metin óveruleg

Náman sem fyr­ir­hugað er að stækka og dýpka kall­ast E30b og er við Hóla­skarð. Námu­svæðið er mest áber­andi af Bisk­ups­tungna­braut sunnan Kerhóls og niður fyrir Kerið og frá frí­stunda­byggð­inni sunnan og vestan við neðri Seyð­is­hól­inn. Að henni liggur 1 kíló­metra mal­ar­vegur frá Búr­fells­vegi. Sem mót­væg­is­að­gerð til að draga úr ryk- og hávaða­mengun frá auknum flutn­ingum yrði kafl­inn mal­bik­aður, segir í skýrslu Suð­ur­taks.

Í fyrstu skrefum mats á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar bár­ust athuga­semdir um gjall­fok frá námunni í vondum veðrum yfir frí­stunda­byggðir við hól­ana. Suðurtak telur að gjall­fok, hvort sem það eigi upp­runa sinn í námunni eða í ógrónu, nátt­úru­legu umhverfi, muni ekki aukast með stækkun námu­hol­unnar. Áhrif á loft­gæði fram­kvæmd­ar­innar eru því metin óveru­leg.

Áhrif fram­kvæmdar á ásýnd Seyð­is­hóla, frá því sem nú er, eru metin frekar nei­kvæð og óaft­ur­kræf. Áhrif á gróður eru metin óveru­leg og sömu sögu er að segja um áhrif á fugla­líf. Þá telur fram­kvæmda­að­ili, í ljósi þess að námu­gröftur hefur verið stund­aður á svæð­inu í ára­tugi, að áhrif á jarð­mynd­anir verði lítil sem engin umfram það sem þegar er orðið. Námu­holan mun stækka nokkuð og nýtt yfir­borð náma­veggj­anna mun koma í ljós, segir í mats­skýrsl­unni en þrátt fyrir að hól­arnir séu eld­vörp sem njóti verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum telur Suðurtak það ekki eiga við vegna mik­illar rösk­unar svæð­is­ins nú þegar.

Þrátt fyrir að aukn­ing verði á umferð vöru­bíla á akst­ursleiðum til Þor­láks­hafnar eru áhrif á umferð talin óveru­leg og þar sem efn­istakan og útflutn­ingur á gjalli sé atvinnu- og gjald­eyr­is­skap­andi eru áhrif á sam­fé­lag metin frekar jákvæð.

Nið­ur­staðan: Fram­kvæmda­að­il­inn Suðurtak metur heild­ar­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar óveru­leg.

Stærð námu­svæðis í dag er um 3,5 hekt­arar. Síð­ast­liðin fjögur ár hefur efn­istakan numið sam­tals um 75 þús­und rúmmetrum eða tæpum 19 þús­und m3 á ári. Þar hefur Jarð­efna­iðn­aður flutt árlega út 5-10 þús­und m3. Sá útflutn­ingur mun aukast veru­lega með stækkun námunnar eða í 20-25 þús­und rúmmetra á ári.

Jarð­efna­iðn­aður flytur gjallið úr Seyð­is­hólum til Norð­ur­land­anna þar sem það er notað sem grunnefni í ræktun á gróðri á hús­þökum í sam­keppni við önnur rækt­un­ar­efni. „Þak­ræktun þykir mik­il­væg vegna þeirra lofts­lags­breyt­inga sem hafa orðið á síð­ustu ára­tugum og í sumum borgum í Evrópu og Banda­ríkj­unum er ein­ungis leyft að reisa opin­berar bygg­ingar hafi þær græn þök,“ stendur í umhverf­is­mats­skýrslu Suð­ur­taks.

Inn­an­lands hefur gjallið verið notað í stíga- og gatna­gerð, fyll­ingar að mann­virkjum og til iðn­að­ar­fram­leiðslu.

Kvika hátt í loft upp varð að gjalli

Seyð­is­hólar eru hluti af hinni litlu og afmörk­uðu Grím­nes­gos­rein. Gríms­nes­gosin áttu sér stað fyrir 7.500-9.500 árum, eftir að ísöld lauk og liggja gos­efnin mis­lægt ofan á rofnum jarð­lagastafla sem mynd­aður er á ísöld. Upp­streym­is­hraði kvik­unnar var all­mik­ill sem leiddi til þess að gosin urðu blanda af hraun­rennsli og háum kviku­strókum. Í gos­unum þaut því til­tölu­lega mikið magn af kviku hátt í loft upp og til­tölu­lega mik­ill hluti þeirrar kviku storkn­aði í loft­inu og varð að gjalli, sem að miklu leyti hlóðst upp í mynd­ar­leg gígupp­vörp á goss­taðnum.

Seyð­is­hólar eru að sögn fram­kvæmda­að­ila víða raskaðir af gömlum námu­svæðum. Búið sé að taka efni úr mörgum gíg­anna á Gríms­nes­gos­rein­inni á und­an­geng­inni öld og „er nú lík­lega aðeins Kerhóll einn eftir nán­ast ósnertur að kalla“. Þannig sé „ara­grúi náma“ stórra og smárra hingað og þangað á svæð­inu.

„Af til­lits­semi við umhverfið hefur stærð námu­svæðis verið haldið í lág­marki í stað þess að fletja það út,“ segir í skýrslu Suð­ur­taks. „Staðan er því sú að hér er náma sem er til­tölu­lega lítil að umfangi en djúp og með bröttu stáli.“

Umhverf­is­mats­skýrslu Suð­ur­taks ehf. má lesa hér á vef Skipu­lags­stofn­unar. Allir geta veitt umsögn um hana til 20. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

námuvinnsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár